InnlentÁróra segir frá ofbeldi í söfnuði utan borgarmarkanna – „Ég var hætt að reyna að fara“16. maí 2022 „Forstöðukonan var mest meðvituð um okkar samskipti og var alltaf að segja við mig að við þekktum svo ástina og hún hefði svo mikið að læra af okkur,“ sagði Áróra Helgadóttir í Kompás þætti gærkvöldsins. Þar sagði hún frá reynslu sinni af samfélagi, sem er eins konar söfnuður eða félag, sem þrífst utan borgarmarkanna. Áróra segist meðal annars hafa orðið...
InnlentFilm in Iceland: Með lagabreytingunni munu stærri kvikmyndaverkefni fá 35% endurgreiðslu í stað 25%15. maí 2022 Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, undirrituðu í dag samning um kynningu á endurgreiðslukerfi kvikmynda á Íslandi – Film in Iceland. Vaxandi áhugi hefur verið á Íslandi sem tökustað og verkefni Film in Iceland, er að kynna Ísland sem áhugaverðan tökustað, endurgreiðslukerfi vegna framleiðslu kvikmynda- og sjónvarpsefnis, innviði íslenska kvikmyndaumhverfisins og að taka við fyrirspurnum...
InnlentPrinsinn hugsar mikið um dauðann: „Ég er annaðhvort ofanjarðar eða neðan“15. maí 2022 „Náttúrulega, sem Prins, þá er ég svona svolítið að dýrka hversdagsleikann og upphefja hversdagsleikann og setja hann í hátíðlegri búning,“ segir Svavar Pétur Eysteinsson. Hann dýrkar hversdagsleikann með hliðarsjálfi sínu Prins Póló meðan hann glímir við ólæknandi krabbamein á fjórða stigi. Hann hugsar mikið um dauðann en óttast hann ekki. Þetta segir hann í samtali við Kveik. Rætur Svavars liggja...
InnlentBjarni var hinn brattasti: „Afturhvarf til bílisma yrðu hryllileg tíðindi“15. maí 2022 Egill Helgason ræddi við oddvita stjórnmálaflokka um úrslit kosninganna í Silfrinu í dag. Fram komu Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, Logi Einarsson, formaður Samfyllkingarinnar, Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins segir fólk horfa á Framsókn sem hinn sanna miðjuflokk Hik í uppbyggingu í samgöngumálum og afturhvarf til bílisma í Reykjavík yrðu...
InnlentMeirihlutinn í Kópavogi hélt og Vinir Kópavogs unnu mikinn sigur15. maí 2022 Sigurvegari kosninganna í Kópavogi var nýja framboðið, Vinir Kópavogs, en þeir unnu mikinn sigur í nótt þegar þeir komu tveimur fulltrúum inn. Meirihlutinn Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins hélt í kosningunum í nótt, þeir halda sex fulltrúum. Framsóknarflokkurinn bætti við sig fulltrúa en hann fór úr einum í tvo á meðan Sjálfstæðisflokkurinn missti einn og fór úr fimm niður í fjóra. Viðreisn,...
InnlentFramsókn ótvíræður sigurvegari kosninganna – Píratar og Sósíalistaflokkurinn neita samstarfi15. maí 2022 Biðin eftir fyrstu tölum úr Reykjavík var löng, en til stóð að tilkynna fyrstu tölur á miðnætti. Það gekk þó ekki eftir og voru fyrstu tölur lesnar upp í beinni útsendingu eftir klukkan hálf tvö í nótt. Samkvæmt þessu er núverandi borgarstjórnarmeirihluti fallinn og munu oddvitar flokkanna þurfa að leita nýrra leiða við myndun meirihluta. Einar Þorsteinsson og Framsóknarflokkurinn verða...
InnlentSérsveitin að störfum á Völlunum í Hafnarfirði í dag14. maí 2022 Sjónarvottar segja mikil læti hafa verið í íbúðinni í morgun og þar fyrir utan hafi sést blóðugur maður og menn með kylfur fyrr í dag. Sá blóðugi mun hafa verið fluttur á sjúkrahús í sjúkrabíl. Sérsveit Ríkislögreglustjóra var að störfum á Völlunum í Hafnarfirði í dag og virðist lögreglan með nokkurn viðbúnað á staðnum. Meðlimir sérsveitarinnar fóru inn í íbúð...
InnlentGísli Marteinn: „Þessi dagur verður stórkostlegur, ég hlakka mjög mikið til“14. maí 2022 Alls staðar þar sem Gísli Marteinn fer fylgir forvitni. Hvaðan kemur þessi mikli áhugi á samfélaginu og þessi forvitni? „Varðandi borgarmálin þá kom áhuginn á Reykjavík sjálfri alltaf á undan stjórnmálunum. Ég hef aldrei haft neinn einasta áhuga á að vera á Alþingi en hef haft brennandi áhuga á borgum mjög lengi. Það gerist ekki af því að ég hafi...
InnlentKjördagur – 277.127 á kjörskrá: „Maður gengur út í sól og blíðu, vor og fuglasöng“14. maí 2022 277.127 eru á kjörskrá í 69 sveitarfélögum landsins þegar gengið verður til sveitarstjórnarkosninga í dag; 140.688 karlar og 136.365 konur.Kjósendur eru flestir í Reykjavík eða 100.405, en samtals eru kjósendur í sveitarfélögunum sjö á höfuðborgarsvæðinu 177.816. Á vef Þjóðskrár má nálgast frekara talnaefni varðandi kosningarnar og fá upplýsingar um það hvar það á að kjósa. Gildandi kjörskrá miðast við lögheimili...
InnlentOfbeldi í andlega heiminum: „Þetta minnti mig á neysluumhverfi. Þetta var bara sjúkt“14. maí 2022 Selma Kröyer og Kolbeinn Sævarsson sögðu frá reynslu sinni af ofbeldi í andlega heiminum. Þau voru að leita að annarra lausna við sínum andlegu meinum. Í nýjasta Kompás þætti segja þau bæði frá kynnum sínum af manni sem þóttist vera hæfur leiðbeinandi til að stjórna kakóathöfnum, en reyndist svo vera ofbeldismaður í leit að athygli. Selma var búin að vera...
InnlentMisnotkunin hófst átta ára: „Ég var útskúfuð frá bænum og fólk öskraði á mig”14. maí 2022 Lilja Bjarklind Kristinsdóttir, 29 ólst upp í Garði í Suðurnesjabæ og var nýorðin átta ára þegar karlmaður á sextugsaldri byrjaði að brjóta á henni kynferðislega. Hann hélt áfram að brjóta á henni næstu tvö árin og var seinna dæmdur fyrir brot sín gegn henni. Lilja var gestur Eddu Falak í hlaðvarpsþættinum Eigin Konur. Hann byrjaði í sambandi með móður hennar...
InnlentMálverk af Hauki Hilmarssyni prýðir vegg í Aþenu: „Það vantar svona í Reykjavík“13. maí 2022 Hugsjónamaðurinn Haukur Hilmarsson, sem lést árið 2018 í Afrin-héraði í Sýrlandi í loftárás Tyrkjahers á Kúrda sem barist höfðu við hryðjuverkasamtökin Isis, dvaldi í Grikklandi áður en hann hóf að verja byggðir Kúrda í Afrin-héraði, fyrir ásókn Isis-liða. Haukur fór til Grikklands í kringum 2014 og þar bjó hann til ársins 2017. Til að byrja með vann hann við neyðarhjálp...