Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Prinsinn hugsar mikið um dauðann: „Ég er annaðhvort ofanjarðar eða neðan“

Prinsinn hugsar mikið um dauðann: „Ég er annaðhvort ofanjarðar eða neðan“
Mynd/Skjáskot. Ingvar Haukur Guð­munds­son/RÚV.

„Nátt­úru­lega, sem Prins, þá er ég svona svo­lítið að dýrka hvers­dags­leik­ann og upp­hefja hvers­dags­leik­ann og setja hann í hátíð­legri bún­ing,“ segir Svavar Pétur Eysteins­son. Hann dýrkar hvers­dags­leik­ann með hlið­ar­sjálfi sínu Prins Póló meðan hann glímir við ólækn­andi krabba­mein á fjórða stigi. Hann hugsar mikið um dauð­ann en ótt­ast hann ekki. Þetta segir hann í sam­tali við Kveik.

Rætur Svavars liggja í Breið­holt­inu. Hann er mót­aður af menn­ing­ar­straumum níunda ára­tug­ar­ins og það kom ekki annað til greina en að feta list­ræna braut. Hann lauk námi í graf­ískri hönnun við Lista­há­skól­ann en hefur hitt þjóð­ina í hjarta­stað með marg­verð­laun­aðri tón­list sinni og textum þar sem yrk­is­efnið er nak­inn hvers­dags­leik­inn.

„Að ganga inn í góða sjoppu er bara eins og fara inn í gott gall­erí.“ Mynd/Skjáskot. Ingvar Haukur Guð­munds­son/RÚV.

Svavar og kona hans Berglind Häsler fluttu til Reykja­víkur síð­asta sumar með börn sín þrjú frá Karls­stöðum í Berufirði. Þar höfðu þau gert upp býlið, sinnt ferða­þjón­ustu, mat­ar­fram­leiðslu og blóm­legri menn­ing­ar­starf­semi í sjö ár.

Flutn­ing­ur­inn varð í kjöl­far þess að Svavar greind­ist með krabba­mein í vél­inda árið 2018. Meinið er óskurð­tækt og er á fjórða og síð­asta stigi, haldið niðri með reglu­legum lyfja­gjöfum.

Sú lífs­reynsla að grein­ast með ólækn­andi krabba­mein hefur haft áhrif á bæði sköp­un­ar­þrá Svavars og lista­verkin úr smiðju hans.

„Það er svo mikið sjokk að fá svona grein­ingu að þú ert kannski bara fyrsta árið svo­lítið stjarfur,“ segir Svavar.

Svavar seg­ist oft vera spurður á förnum vegi hvernig hann hafi það. Það sé auð­vitað eðli­leg spurn­ing í ljósi þess að margir vita að hann glímir við erfitt krabba­mein.

„Stundum þreyt­ist maður á að svara þess­ari spurn­ingu. Því að fyrir mér er það bara að ég er ann­að­hvort ofanjarðar eða neðan. Og meðan ég stend hérna fyrir framan þig er ég aug­ljós­lega ofanjarðar. Og það í raun­inni bara nægir mér. Þó svo að auð­vitað sé allt í lagi að ræða málin og fara í gegnum þau, taka stöð­una og svo­leiðis, þá finnst mér miklu skemmti­legra að hitta fólk bara og fara beint í að ræða eitt­hvað hvers­dags­legt sko. Því það verður oft að ein­hverju yrk­is­efni fyrir Prinsinn.“

HÉR er hægt að hlusta á þátt­inn í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina