InnlentCovid-19Fjöldi smitaðra einkennalítill15. mars 2020 Mannlíf ræddi við Nicola Montano, prófessor og forstöðumann lyflækninga við háskólasjúkrahúsið í Mílanó, um ástæður þess hve hratt kórónuveiran hefur breiðst út og hvað hann telji að verði að gera til að stöðva útbreiðsluna. Nicola Montano, prófessor og forstöðumaður lyflækninga við háskólasjúkrahúsið í Mílanó. Mynd / Læknablaðið Aðspurður um hvers vegna Ítalía hafi orðið svo illa úti á skömmum tíma...
InnlentCovid-19Kári furðar sig á viðbrögðum Dana – „Ég tek ofan fyrir þessu fólki í auðmýkt“14. mars 2020 Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar furðar sig á viðbrögðum dönsku ríkisstjórnarinnar vegna COVID-19 kórónuveirunnar, en dönsku landamærunum var lokað á hádegi í dag til að hefta útbreiðslu veirunnar þar í landi. Flugsamgöngur eru takmarkaðar sem og bíla- og lestaumferð við landamærin með örfáum undantekningum. Lokunin gildir í fjórar vikur eða til 13. Apríl. „Þeir loka landamærum eftir að veiran hefur...
InnlentCovid-19Noregur lokar14. mars 2020 Alþjóðleg flug og hafnir í Noregi loka frá og með klukkan átta að norskum tíma á mánudag, 16. mars. Samkvæmt færslu á Facebook-síðu Utanríkisráðuneytisins er unnið að því að afla frekari upplýsinga.
InnlentCovid-19Íslendingum í Póllandi ráðlagt að aka til Þýskalands eða annarra landa14. mars 2020 Utanríkisráðuneytið ráðleggur Íslendingum sem staddir eru í Póllandi og vilja komast úr landinu fyrir lokun landsins, til þess að fara landleiðina akandi yfir landamærin til Þýskalands, eða annarra landa þar sem hægt er að komast í alþjóðlegt flug. Pólsk stjórnvöld hafa lokað alþjóðlegum flugsamgöngum og munu aðrar almenningssamgöngur leggjast af að mestu leyti. Lestarsamgöngur munu leggjast af frá og með...
InnlentCovid-19Áhættumat hækkað fyrir Frakkland, Spán og Þýskaland14. mars 2020 Sóttvarnalæknir hefur hækkað áhættumat fyrir Spán, Þýskaland og Frakkland í ljósi útbreiðslu COVID-19 í þeim löndum. Önnur slík svæði eru: Kína, Íran, Suður Kórea, Ítalía og skíðasvæði í Ölpunum. Ástæða hækkunar á áhættumati er mikil fjölgun sýktra og alvarlega veikra í þessum löndum. Spánn (þar á meðal Kanaríeyjar), Þýskaland og Frakkland teljast því nú til hááhættusvæða. Sóttkví Íslendingar sem koma...
InnlentCovid-19Mikilvæg skilaboð til þjóðarinnar: „Við verðum að nota tímans til góðs“14. mars 2020 Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, var ein þeirra sem sat fyrir svörum á upplýsingafundi vegna COVID-19 kórónuveirunnar fyrr í dag. Á fundinum undirstrikaði hún mikilvægi þess að hreyfa sig og passa vel upp á mataræðið, en hún sagðist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum að sjá matarkörfur margra landsmanna í fréttum í gær. Þar hafi verið lítið annað en ruslfæði,...
InnlentCovid-19Stjórnvöld ráða Íslendingum frá ferðalögum og hvetja þá til heimfarar14. mars 2020 Íslensk stjórnvöld ráða Íslendingum frá ferðalögum og hvetja Íslendinga á ferðalagi erlendis til að íhuga að flýta heimför. Er þetta gert að tillögu utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra í ljósi þeirra yfirgripsmiklu ráðstafana sem erlend ríki hafa gripið til til að hefta útbreiðslu COVID-19 og kunna að hafa áhrif á Íslendinga erlendis. „Með þessum ráðleggingum er brugðist við þeirri stöðu sem upp...
InnlentCovid-19156 smit vegna COVID-19 hér á landi – Einstaklingum í sóttkví fjölgar hratt14. mars 2020 Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn greindi frá því á upplýsingafundi Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra sem var klukkan 14 í dag að alls hafa verið tekin 1.526 sýni til hádegis í dag. „Staðfest annars stigs innlend smit eru 31, fimm þriðja stigs smit og þrjú sem ekki hafa verið rakin. 14 sýni eru enn í rakningu.“ „Um 1400 eru í sóttkví og þeim fjölgar hratt,“...
InnlentCovid-19Upplýsingafundur vegna COVID-19 kórónaveirunnar14. mars 2020 Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til reglulegs blaðamannafundar klukkan 14 í dag í Skógarhlíð 14. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Alma D. Möller landlæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19, staðfestra smita hér á landi, aðgerða stjórnvalda og fleira. Alls eru 138 smit staðfest hér á landi og rúmlega þúsund manns í sóttkví. Á fundinum verður sérstaklega fjallað um eldri...
InnlentSprenging í sumarbústað – Þrír fluttir á slysadeild14. mars 2020 Sprenging varð í sumarbústað í Langadal, nærri bænum Geitaskarði, um klukkan ellefu í morgun. Þrír voru fluttir á slysadeild á Akureyri, tveir þeirra með sjáanlega áverka. Einstaklingarnir eru þó ekki taldir í lífshættu. RÚV greinir frá. Sex einstaklingar, allt ungt fólk, voru í bústaðnum þegar sprengingin varð. Fjölmennt lið lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita fór á vettvang og þurfti að losa...
InnlentCovid-19Einn á gjörgæslu vegna COVID-19 kórónuveirunnar14. mars 2020 Tveir eru innlagðir á Landspítala vegna veikinda af völdum COVID-19 kórónuveirunnar. Annar þeirra liggur á gjörgæslu. Vísir greinir frá. Alls eru 138 smit staðfest hér á landi og 1035 einstaklingar eru í sóttkví.
InnlentCovid-19Ríkisstjórnin fundar vegna COVID-19 kórónuveirunnar14. mars 2020 Ríkisstjórnin situr nú á fundi í Stjórnarráðinu. Mbl.is greinir frá. Dagskrá vegna fundarins var ekki gefin út, en líklegt verður að telja að verið sé að ræða viðbrögð nágrannaríkja við kórónuveirunni. Danir lokuðu landamærum sínum í vikunni og Norðmenn lokuðu einnig sínum landsmærum fyrir öðrum en norðurlandabúum. Pólverjar munu loka sínum landamærum frá og með sunnudegi.