Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fjöldi smitaðra einkennalítill

Fjöldi smitaðra einkennalítill
Nicola Montano

Mannlíf ræddi við Nicola Montano, pró­fessor og for­stöðu­mann lyf­lækn­inga við háskóla­sjúkra­húsið í Mílanó, um ástæður þess hve hratt kór­ónu­veiran hefur breiðst út og hvað hann telji að verði að gera til að stöðva útbreiðsl­una.

Nicola Montano, pró­fessor og for­stöðu­maður lyf­lækn­inga við háskóla­sjúkra­húsið í Mílanó. Mynd / Lækna­blaðið

Aðspurður um hvers vegna Ítalía hafi orðið svo illa úti á skömmum tíma vegna kór­ónu­veirunnar svarar Nicola að í upp­hafi hafi stjórn­völd ekki verið með skipu­lagða áætlun til að mæta far­aldr­inum, þrátt fyrir ábend­ingar lækna. Ítalir hafi ein­blínt á fólk sem kom frá Kína. „Það var svo 38 ára maður, lík­am­lega mjög vel á sig kom­inn, sem kom á bráða­mót­töku í bæ nálægt Mílanó. Hann var með háan hita og kvef en var sendur heim og sagður með flensu. Næsta dag kom hann aftur, var kom­inn með lungna­bólgu og greind­ist þá með COVID-19,“ segir Nicola. „Þá kom í ljós að hann hafði umgeng­ist fólk sem hafði verið í Kína. Það fólk reynd­ist hins vegar nei­kvætt þegar prófað var fyrir kór­ónu­veirunni. Þá hófum við að prófa mjög marga, m.a. fólk almennt sem var með lungna­bólgu. Við fundum marga sem reynd­ust vera jákvæðir fyrir veirunni. Það varð til þess að við gátum gert okkur betur grein fyrir sjúk­dómnum og hvernig hann dreifð­ist. Svæðið þar sem þessi fyrr­greindi maður grein­ist var sett í sótt­kví og tveimur vikum síðar var svæðið orðið hreint. Á Ítalíu hefur fjöldi ein­stak­linga með lítil sem engin ein­kenni greinst með COVID-19 og eru taldir hafa smitað aðra.“

Þróunin í öðrum löndum lík og á Ítalíu

Mat Nicola er að mik­ill fjöldi úti í sam­fé­lag­inu á Ítalíu sé þegar smit­aður, jafn­vel hund­ruð þús­unda. ,,Við teljum að allt að ein milljón kunni að vera smituð á Ítalíu því útbreiðsla veirunnar hefur verið mjög hröð en þegar töl­fræðin er borin saman við Kína þá er um að ræða mjög svip­aða útbreiðslu miðað við fólks­fjölda.“

Spurður um hvort hann telji að þró­unin verði svipuð í öðrum löndum Evrópu og á Ítalíu svarar Nicola: ,,Án efa. Í öllum löndum. Við lifum í heimi þar sem fólk er á ferð og flugi. Spánn er um viku á eftir okkur, veiran dreif­ist mjög hratt þar. Sama er að segja um Frakk­land, Þýska­land og fleiri lönd. Enginn vafi er á að heims­far­aldur er í upp­sigl­ingu,“ segir hann. ,,Dán­ar­tíðnin er það sem skiptir mestu máli hér. Miðað við þekk­ingu okkar í dag er COVID-19 með aðeins hærri dán­ar­tíðni en inflú­ensa.“

Hvernig gengur á sjúkra­húsum að eiga við kór­ónu­veiruna, þarf starfs­fólk að vinna lengur og hefur það smit­ast þar? „Veiran leiðir ekki til hærri tíðni alvar­legra veik­inda en fer með svo miklum hraða vegna skorts á ónæmi gegn þess­ari nýju veiru í sam­fé­lag­inu að fjöldi þeirra sem leita á spít­ala er mjög mik­ill á skömmum tíma. Því verða heil­brigð­is­starfs­menn útsettir fyrir veirunni. Starfs­fólk bráða­deilda og smit­sjúk­dóma­læknar eru hópar sem eru útsett­ari en aðrir. Álagið á spít­ölum er mikið og við þolum ekki slíkt álag nema í stuttan tíma.“

Róttækar aðgerðir þarf

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin gaf út að ein­stak­lingar sem smit­ast af kór­ónu­veirunni fengu ákveðin ein­kenni eins og háan hita og fleira, er það raunin?
„Hér fá 85% mjög væg ein­kenni, 15% þurfa að leggj­ast á spít­ala og dán­ar­tíðni er 3%. Fyrir hverja fimm sjúk­linga sem eru á gjör­gæslu eru 50 í ein­angrun eða þurfa sér­staka með­höndlun.“

Nicola telur að þegar til­felli eru farin að koma úr sam­fé­lag­inu, þar sem smitið kemur í gegnum þriðja aðila frá upp­haf­slind­inni, þurfi að prófa alla sem hafa ein­hver ein­kenni um önd­un­ar­færa­sýk­ingu. Ekki nægi að meta ein­göngu þá sem hafa átt sam­skipti við smit­aða ein­stak­linga. Hann segir að það geti þurft end­ur­tekin próf til að greina COVID-19 ef grunur leikur á að ein­stak­lingur sé smit­aður. Sýni séu oft ekki nægi­lega góð og það þurfi jafn­vel 3-4 sýni áður en grein­ing fáist. Slíkt hafi komið ber­lega í ljós.

Þá segir Nicola að það borgi sig að vera við­bú­inn því versta og gera allt til fækka smitum. Það feli í sér rót­tækar aðgerðir eins og að banna sam­komur og við­burði þar sem fólk kemur saman. „Það er eini mögu­leik­inn til að draga úr smiti.“

Ítarleg umfjöllun er um málið í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ