Heimur„Það gerir ekki lítið úr neyð Íslendinga að hjálpa útlendingum“15. mars 2020 Nokkur ummæli sem voru látin falla í vikunni. „Það er komin kreppa. Hún verður sú dýpsta frá hruni og allt annars eðlis en það sem við höfum undirbúið okkur fyrir.“ – Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. „Það gerir ekki lítið úr neyð Íslendinga að hjálpa útlendingum.“ – Séra Davíð Þór Jónsson skrifar svo í pistli sem hann deilir á Facebook...
InnlentCovid-19Mikilvægt að auka ekki kvíða nemenda15. mars 2020 Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, fór yfir stöðuna í skólamálum á upplýsingafundi Almannavarna sem fram fór fyrr í dag. Benti hann á að fylgjast með leik barna sem láti oft hugsanir sínar sem þau geti ekki orðað birtast í leik. Nefndi hann sem dæmi að vinsælasti leikurinn í frímínútum sé eltingaleikur þar sem krakkarnir flýja þann sem er kórónuveiran....
InnlentCovid-19Smit orðin 171 talsins15. mars 2020 Smit vegna COVID-19 kórónuveirunnar eru orðin 171 hér á landi samkvæmt vefsíðu embættis landlæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Covid.is. Er þetta fjölgun um átta tilfelli frá því á upplýsingafundinum sem hófst klukkan tvö í dag og stóð yfir í fjörutíu mínútur. Alls eru 1.672 í sóttkví en 1.868 sýni hafa verið tekin.
HeimurCovid-19Nístandi myndband sýnir áhrif COVID-19 á Ítalíu15. mars 2020 Nístandi myndband sýnir hvaða áhrif COVID-19 kórónaveiran hefur haft haft á Ítalíu. Í myndbandinu hér fyrir neðan má heyra karlmann tala á ítölsku um leið og hann sýnir forsíðu dagblaðsins L’Eco di Bergamo, sem gefið er út í borginni Bergamo, um 50 km frá Milanó, í Lombardy héraðinu þar sem kórónuveirufaraldurinn hefur haft gríðarleg áhrif. Um er að ræða eintak...
InnlentCovid-19Þrír á Landspítala vegna COVID-19: Greind smit 16315. mars 2020 Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fóru yfir stöðu mála vegna COVID-19 kórónuveirunnar á fimmtánda upplýsingafundi Almannavarna í dag. Á fundinum sat einnig Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, sem fór yfir þá stöðu sem blasir við í skólum landsins vegna samkomubanns sem hefst á miðnætti í dag. Og Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sem ræddi stöðu og verkefni...
InnlentCovid-19„Í guðanna bænum fylgið leiðbeiningum sóttvarnalæknis“15. mars 2020 „Gefum okkur að eitt prósent Íslendinga séu smitaðir, þá eru það 3400 manns. Faraldsfræðin hingað til segir að 15% veikist alvarlega og 5% þurfi gjörgæslu. Það eru þá 510 manns sem þurfa innlögn og 170 sem þurfa gjörgæslu!,“ segir Jón Magnús Kristjánsson, yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi, í færslu á Facebook. Jón Magnús telur að þetta séu sennilega allt...
InnlentCovid-19Allt að 1% landsmanna með COVID-19 kóronaveiruna samkvæmt skimun ÍE15. mars 2020 Fyrstu niðurstöður skimunar Íslenskrar erfðagreiningar fyrir COVID-19 kórónaveirunni benda til þess að um eitt prósent landsmanna séu með veiruna. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir greindi frá niðurstöðunum í Silfrinu á RÚV í dag. Eitt 1% þjóðarinnar jafngildir um 3.600 manns. Þórólfur sagði að tilgangurinn með sýnatöku ÍE væri að sjá hversu mikil útbreiðsla veirunnar er í samfélaginu almennt, en fram að þessu...
InnlentCovid-19Sjónum beint að skólum á upplýsingafundi15. mars 2020 Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í Skógarhlíð 14. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19, staðfestra smita hér á landi, aðgerða stjórnvalda o.fl. Á fundinum verður sérstaklega beint sjónum að skólum landsins og mun Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, fara yfir þá stöðu sem blasir við...
InnlentCovid-19Samdráttur þjónustu SÁÁ vegna COVID-1915. mars 2020 SÁÁ hefur viðhaft mikinn viðbúnað við smitvarnir á öllum stöðvum og undirbúning á fjarveru starfsfólks. Það hefur ekki komið upp smit meðal sjúklinga eða starfsfólks ennþá, en þegar það gerist mun starfssemin augljóslega breytast fljótt og enn frekar. SÁÁ mun halda úti þjónustu eins og mögulegt er, og rúmast innan fyrirmæla yfirvalda. Talsverður samdráttur verður á þjónustu sjúkrahússins Vogs tímabundið,...
InnlentSjúkást í þriðja sinn: „Það er ekkert að því að spyrja, það er bara kjút“15. mars 2020 Sjúkást átak Stígamóta er nú hafið þriðja árið í röð, en því er sérstaklega beint að ungu fólki. Umfjöllunarefnið er heilbrigt kynlíf, eðlileg samskipti, klám, ýmsar ranghugmyndir sem eru á sveimi og mikilvægi þess að skoða, þekkja, njóta, elska – og umfram ALLT – tala saman. Átakinu fylgja þrjú myndbönd sem unnin voru af Pipar/TBWA, í þeim koma nokkur ungmenni...
InnlentCovid-19Fjöldi smitaðra einkennalítill15. mars 2020 Mannlíf ræddi við Nicola Montano, prófessor og forstöðumann lyflækninga við háskólasjúkrahúsið í Mílanó, um ástæður þess hve hratt kórónuveiran hefur breiðst út og hvað hann telji að verði að gera til að stöðva útbreiðsluna. Nicola Montano, prófessor og forstöðumaður lyflækninga við háskólasjúkrahúsið í Mílanó. Mynd / Læknablaðið Aðspurður um hvers vegna Ítalía hafi orðið svo illa úti á skömmum tíma...
InnlentCovid-19Kári furðar sig á viðbrögðum Dana – „Ég tek ofan fyrir þessu fólki í auðmýkt“14. mars 2020 Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar furðar sig á viðbrögðum dönsku ríkisstjórnarinnar vegna COVID-19 kórónuveirunnar, en dönsku landamærunum var lokað á hádegi í dag til að hefta útbreiðslu veirunnar þar í landi. Flugsamgöngur eru takmarkaðar sem og bíla- og lestaumferð við landamærin með örfáum undantekningum. Lokunin gildir í fjórar vikur eða til 13. Apríl. „Þeir loka landamærum eftir að veiran hefur...