Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þrír á Landspítala vegna COVID-19: Greind smit 163

Þrír á Landspítala vegna COVID-19: Greind smit 163
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir fóru yfir stöðu mála vegna COVID-19 kór­ónu­veirunnar á fimmt­ánda upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna í dag.

Á fund­inum sat einnig Ragnar Þór Pét­urs­son, for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, sem fór yfir þá stöðu sem blasir við í skólum lands­ins vegna sam­komu­banns sem hefst á mið­nætti í dag. Og Óskar Reyk­dals­son, for­stjóri Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, sem ræddi stöðu og verk­efni heilsu­gæsl­unnar.

1.800 sýni hafa verið rann­sökuð á Land­spít­al­anum vegna kór­ónu­veirunnar og alls hafa 163 greinst með smit. Flestir þeirra voru á skíða­svæðum í Evrópu, en 23% þeirra eru með óþekkta smit­leið.

Þórólfur sagði að rúm­lega helm­ingur þeirra sem hafa greinst með sýk­ing­una hafi verið í sótt­kví og ljóst sé að þær aðgerðir séu að skila árangri.

Þrír liggja á Land­spít­al­anum vegna COVID- 19 kór­ónu­veirunnar, þar af einn á gjör­gæslu. Um er að ræða ein­stak­linga á sex­tugs- og sjö­tugs­aldri. Tveir hafa verið útskrif­aðir.

Þórólfur benti á að var­huga­vert sé að heim­færa töl­fræði erlendis yfir á Ísland, slíkt geti skapað óþarfa tor­tryggni og áhyggjur.

Ef töl­fræði Hubei-hér­aðs í Kína væri heim­færð yfir á Ísland væri hægt að búast við því að sjá þrjá­tíu ein­stak­linga á gjör­gæslu, en í dag er einn ein­stak­lingur á Íslandi á gjör­gæslu.

Mikið álag á heilsugæsluna

Óskar benti á að mikið álag væri á sím­kerfi og net­spjalli heilsu­gæsl­unnar, í gær hefðu net­spjöll verið 800 tals­ins, sam­an­borið við 10-15 fyrir ári síðan. Óskar bað fólk um að hafa fyrst sam­band í gegnum síma eða net­spjallið, svo þeir sem mest þurfi á því að halda séu í for­gangi.

Óskar benti fólki á að skoða heima­síð­urnar covid.is og heilsuga­eslan.is til að nálg­ast upp­lýs­ingar. Sagði hann mikið um önd­un­ar­færa­sýk­ingar á þessum tíma og um tíu pró­sent þeirra sem hafa slík ein­kenni geta verið með COVID-19 kór­ónu­veiruna.

Fylgið fyrirmælum

Óskar ítrek­aði mik­il­vægi þess að fylgja fyr­ir­mælum sótt­varna­læknis. Haldið ykkur heima ef þið hafið minni­háttar ein­kenni, munið hand­þvott og virðið fólk í áhættu­hópum. Ekki er skyn­sam­legt að umgang­ast fólk sem er í áhættu­hópum ef ein­kenni eru fyrir hendi. 

Ekki senda börnin til ömmu og afa

Ragnar Þór fór yfir stöð­una í skóla­málum og benti hann á að fylgj­ast með leik barna sem láti oft hugs­anir sínar sem þau geti ekki orðað birt­ast í leik. Nefndi hann sem dæmi að vin­sæl­asti leik­ur­inn í frí­mín­útum sé elt­inga­leikur þar sem krakk­arnir flýja þann sem er kór­ónu­veiran.

Ragnar Þór árétt­aði mik­il­vægi þess að fylgja fyr­ir­mælum stjórn­valda. Skóla­kerfið muni raskast og álagið vera mest á leik­skólum, hversu mikið fer eftir ytri aðstæðum og hvort fólk sýni sam­fé­lags­lega ábyrgð. Mik­il­vægt sé að for­eldrar bregð­ist við ef börn þeirra þurfi að vera heima, ekki eigi að senda þau til afa og ömmu, af aug­ljósum ástæðum.

„Mig langar að höfða til ábyrgð­ar­kenndar almenn­ings og sér­stak­lega atvinnu­lífs­ins með það að ef fólk er í aðstöðu til þess að vinna heima, að veita sveigj­an­leika og halda leik­skóla­börnum heima – gerið það.“

Ekki verður strangt eftirlit með samkomubanni

Víðir sagði ekki standa til að hafa hert eft­ir­lit með sam­komu­bann­inu og sagð­ist treysta fólki til að virða fyr­ir­mæli yfir­valda. Víðir sagð­ist trúa því að ein­hugur sé í sam­fé­lag­inu að virða slíkar aðgerðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina