Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Stjórnvöld ráða Íslendingum frá ferðalögum og hvetja þá til heimfarar

Stjórnvöld ráða Íslendingum frá ferðalögum og hvetja þá til heimfarar
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Íslensk stjórn­völd ráða Íslend­ingum frá ferða­lögum og hvetja Íslend­inga á ferða­lagi erlendis til að íhuga að flýta heim­för. Er þetta gert að til­lögu utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra í ljósi þeirra yfir­grips­miklu ráð­staf­ana sem erlend ríki hafa gripið til til að hefta útbreiðslu COVID-19 og kunna að hafa áhrif á Íslend­inga erlendis.

„Með þessum ráð­legg­ingum er brugð­ist við þeirri stöðu sem upp er komin vegna við­bragða margra ríkja við far­aldr­inum sem nú geisar. Þær hafa að sjálf­sögðu mikil áhrif á sam­fé­lag okkar og stöðu Íslend­inga á ferða­lögum erlendis,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra í til­kynn­ingu.

Mörg erlend ríki hafa und­an­far­inn sól­ar­hring gripið til þess að loka landa­mærum og skylda alla sem þangað koma í sótt­kví, má þar nefna Danmörku og Noreg. Pólland hyggst loka landa­mærum sínum frá og með sunnu­degi og ekki er hægt að úti­loka að fleiri ríki muni grípa til svip­aðra ráð­staf­ana á næstu dögum. Stjórn­völd hér á landi hafa þó ekki tekið ákvörðun um að loka landa­mærum hér­lendis, eða í það minnsta hefur ekki verið til­kynnt um það enn þá.

Það er mat utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, að höfðu sam­ráði við for­sæt­is­ráð­herra, heil­brigð­is­ráð­herra, sótt­varn­ar­lækni og almanna­varnir, að tíma­bært sé að ráða Íslend­ingum form­lega frá því að leggja upp í ferða­lög. Þá eru Íslend­ingar á ferða­lagi erlendis beðnir að íhuga hvort ástæða sé til að flýta heim­för með til­liti til ofan­greindra þátta og Íslend­ingar búsettir erlendis hvattir til að kanna rétt sinn til heil­brigð­is­þjón­ustu.

„Víða eiga Íslend­ingar á hættu að verða inn­lyksa eða lenda í sótt­kví við erf­iðar aðstæður. Ekki er víst hvaða aðgang og rétt­indi Íslend­ingar munu hafa að heil­brigð­is­þjón­ustu auk þess sem heil­brigð­is­kerfi í mörgum ríkjum anna ekki álagi,“ segir Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra. „Í því ljósi höfum við ákveðið að ráða Íslend­ingum gegn ferða­lögum erlendis og þeim sem eru á ferða­lagi erlendis að íhuga að snúa heim fyrr en ella.“

Áfram gilda skil­grein­ingar sótt­varn­ar­læknis um áhættu­svæði og til­mæli hans um að Íslend­ingar sem þaðan komi fari í sótt­kví. Ekki er gert ráð fyrir að tak­marka ferðir erlendra ferða­manna hingað til lands.

Utan­rík­is­ráðu­neytið og sendi­skrif­stofur Íslands hafa unnið að því síð­asta sól­ar­hring að afla upp­lýs­inga frá stjórn­völdum ríkja um hvernig flugi og öðrum sam­göngum verður háttað yfir landa­mæri til að tryggja að Íslend­ingar kom­ist heim. Borg­ara­þjón­usta utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hefur aukið sím­svörun og svörun fyr­ir­spurna sem ber­ast með tölvu­pósti á [email protected]. Þá eru Íslend­ingar erlendis hvattir til að skrá sig í grunn borg­ara­þjón­ust­unnar á www.utn.is til að hægt sé að miðla til þeirra upp­lýs­ingum þegar þær ber­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti