InnlentStella Samúelsdóttir um orð Maríu Lilju: „Ég vísa því alfarið á bug að þetta hafi ekki áhrif“14. febrúar 2020 Framkvæmdastjóri UN Women á Íslandi segir lítið hæft í þeirri gagnrýni að viðburðurinn Milljarður rís sé tilgangslaus sýndarviðburður fyrir þotulið. Þvert á móti varpi hann kastljósi á ýmis knýjandi málefni og hvetji almenning til að taka afstöðu gegn ofbeldi. „Við skulum átta okkur á því að list er oft notuð í mótmælaskyni, dans þar á meðal,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra...
HeimurCovid-191.700 heilbrigðisstarfsmenn smitaðir – sex látnir14. febrúar 2020 Kínversk heilbrigðisyfirvöld hafa í fyrsta sinn gefið upp fjölda þeirra heilbrigðisstarfsmanna sem smitast hefur af kórónaveirunni COVID-19. Alls hafa um 1.700 smitast en sex látist. Samkvæmt nýjum tölum hafa 5.000 ný tilvik verið staðfest í landinu síðustu 24 klukkustundirnar og 121 látist af völdum veirunnar. Fjöldi smitaðra heilbrigðisstarfsmanna jafngildir 3,8% smitaðra í landinu. 1.500 tilfellanna voru greind í héraðinu Hubei,...
Innlent„Fólk á að geta haft svigrúm með launin sín, sama hvaða starfi það gegnir“14. febrúar 2020 Michael Bragi Whalley er 36 ára gamall og hefur starfað á leikskólanum Hömrum í 19 ár. Hann er leiðbeinandi 2 á Hömrum og situr auk þess í samninganefnd Eflingar. Michael hefur unnið aukavinnu í 11 ár til að geta greitt mánaðarlega reikninga og ná endum saman.
InnlentSpilaði fyrir 20 milljónir á tveimur árum14. febrúar 2020 „Við getum ekki unað við það lengur að það sé verið að níðast á spilafíklum í fjáröflunarskyni,“ segir Alma Hafsteinsdóttir, ráðgjafi og fyrrverandi spilafíkill. Hún birti í vikunni sláandi bankayfirlit manns sem var djúpt sokkinn í spilafíkn og gagnrýnir eigendur spilakassa harðlega. „Bankayfirlit sýna úttektir fyrir tæplega 20 milljónir á tveimur árum,“ segir Alma Hafsteinsdóttir, fíkni- og fjölskyldumarkþjálfi með sérhæfingu...
HeimurNatalie Portman svarar gagnrýninni – Segir hliðverði á öllum vígstöðvum13. febrúar 2020 Yfirlýsing bandarísku leikkonunnar Natalie Portman á Óskarsverðlaununum á sunnudaginn hefur vakið mikla athygli en Portman klæddist herðaslá frá Dior með útsaumuðum nöfnum fimm kvenkyns leikstjóra sem henni finnst akademía Óskarsins hafa litið fram hjá. Fimm karlar voru tilnefndir í flokki leikstjóra á Óskarnum en engin kona. Með yfirlýsingu sinni vildi Portman vekja fólk til umhugsunar um hvernig er gjarnan litið...
InnlentCovid-19Hátt í 1.400 látnir af völdum kórónaveirunnar13. febrúar 2020 Hátt í 1.400 eru nú látnir á heimsvísu af völdum kórónaveirunnar COVID-19 og yfir 60 þúsund smitaðir. Þetta kemur fram í upplýsingum bandaríska háskólans Johns Hopkins sem safnar saman gögnum um veiruna frá öllum heimshlutum. Heilbrigðisyfirvöld í Hubei, þar sem veiran er talin upprunin, hafa sagt frá því að yfir 240 manns hafi látið lífið þar í gær. Eins hafa...
InnlentForeldrar trans barna gefa lítið fyrir svör Landspítalans: „Þetta veldur börnunum gríðarlegum áhyggjum“12. febrúar 2020 Landspítalinn sendi gær frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að þjónusta sé enn í boði fyrir trans börn og ungmenni á barna- og unglingageðdeild spítalans, BUGL. Foreldrar trans barna og ungmenna segja hins vegar ekkert nýtt koma fram tilkynningu spítalans. Enn vanti starfsfólk með fagþekkingu sem geti veitt börnunum viðeigandi þjónustu og óljóst sé hvenær börn á biðlista komi...
HeimurFékk bleyju senda í pósti – „Er þetta ekki full langt gengið?“11. febrúar 2020 Í vikunni hafa einhverjum nýbökuðum foreldrum borist bleyjur frá Libero í pósti. Dagur Bollason er einn þeirra en hann vekur athygli á þessari markaðsherferð á Twitter. Hann setur spurningarmerki við aðferð Libero á Íslandi sem honum þykir heldur ósvífin. „Þetta fékk ég sent í pósti í morgun. Eru sem sagt markaðsfyrirtæki að skrapa saman kennitölum nýfæddra barna úr þjóðskrá og...
InnlentHeldur áfram að fækka í Þjóðkirkjunni og í Zuism11. febrúar 2020 Skráðum í Þjóðkirkjuna hefur fækkað um 129 síðan 1. desember sl.. Meðlimum í trúfélaginu Zuism fækkaði um 83 á sama tímabili samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands. Alls voru 231.025 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. febrúar. Alls voru 1.172 skráðir í Zuism þann 1. febrúar. Ef litið er á tímabilið 1. desember 2018 til 1. desember 2019 hefur fækkað í Þjóðkirkjunni...
InnlentKvennaathvarfið hefur byggingu fjölbýlishúss á Valentínusardag11. febrúar 2020 Kvennaathvarfið stefnir að því að hefja byggingu fjölbýlishúss sem ætlað er skjólstæðingum athvarfsins næsta föstudag, 14. febrúar, á sjálfan Valentínusardag. Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir í viðtali við Stundina að það sé kannski á einhvern hátt viðeigandi að hefja byggingu hússins þann dag. Húsinu hefur verið valinn staður nálægt lögreglustöð og hefur verið rætt sérstaklega við lögregluna um að veita...
InnlentLandspítalinn segir þjónustu enn í boði fyrir trans börn – þótt fagmenntað fólk skorti11. febrúar 2020 Landspítalinn hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að þjónusta sé enn í boði fyrir trans börn og ungmenni á barna- og unglingageðdeild spítalans, BUGL. „Vegna frétta í fjölmiðlum um transteymi barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL) vill spítalinn árétta að þjónusta fyrir þennan hóp er ennþá til staðar á deildinni en unnið er að því að finna bót...
InnlentLilja um ráðningu útvarpsstjóra: „Ég hefði kosið fullt gagnsæi í ráðningarferlinu öllu“11. febrúar 2020 Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefði viljað fullt gagnsæi í ráðningarferli útvarpsstjóra. „Það hefur þegar komið fram í þessu máli að ég hefði kosið fullt gagnsæi í ráðningarferlinu öllu og það á líka við um ákvörðun stjórnar að rökstyðja ekki,“ segir Lilja í skriflegu svari til mbl.is og vísar þar til ákvörðunar stjórnar RÚV að vilja ekki veita rökstuðning fyrir...