InnlentSegir áherslu lagða á að finna lausnir sem henta namibísku samfélagi6. febrúar 2020 Útgerðarfyrirtækið Samherji hefur undanfarið unnið að því að draga úr starfsemi sinni í Namibíu með það að markmiði að hætta öllum rekstri í landinu. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu á vef Samherja. Þar segir að áhersla sé lögð á að finna lausnir sem henta namibísku samfélagi. Af þeim þremur skipum sem hafa stundar veiðar í namibískri lögsögu undanfarið ár,...
InnlentFlugfélag í eigu Íslendinga greiðir ekki laun7. janúar 2020 Flugfélagið Cabo Verde Airlines hefur ekki greitt laun fyrir desembermánuð af ótilgreindum ástæðum, sem „félagið hefur ekki stjórn á“. Frá þessu greinir ch-aviation.com en 51% hluta í Cabo Verde er í eigu Loftleidir Cabo Verde, sem aftur er í eigu dótturfélags Icelandair Group og íslenskra fjárfesta, þeirra á meðal Björgólfs Jóhannssonar. Framkvæmdastjóri Cabo Verde Airlines, Jens Bjarnason, sagðist í yfirlýsingu...
InnlentMarkmið Samherja að „standa af sér storminn“23. desember 2019 Í jólakveðju sem Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Samherja, sendir starfsmönnum Samherja í dag segir hann markmið félagsins vera að „standa af sér storminn“ í kringum fréttaflutning af viðskiptum félagsins í Namibíu. Í bréfinu segir hann að rannsókn sem Samherji setti af stað í kjölfar umfjöllunar Wikileaks, RÚV og Stundarinnar gangi ágætlega. „Við vonumst til þess að niðurstöður hennar liggi fyrir fljótlega...
InnlentTelur vinnubrögð Kristins brjóta í bága við verklagsreglur Wikileaks19. desember 2019 Í kjölfar þess að Samherji sakaði uppljóstrarann Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi starfsmann Samherja, um að handvelja þann tölvupóst úr innhólfi sínu til að afhenda Wikileaks fyrir umfjöllun Stundarinnar og RÚV um viðskipti Samherja í Namibíu skrifaði Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, opið bréf til Björgólfurs Jóhannssonar, núverandi forstjóra Samherja. „Þetta er rangt. WikiLeaks hefur fleiri pósta en þá sem þegar eru birtir...
InnlentReiðisímtal Jóhannesar sem fer sem eldur um sinu12. desember 2019 Upptaka af samtali Jóhannesar Stefánssonar, uppljóstrara og fyrrverandi starfsmanns Samherja, við fyrrverandi eiginkonu sína fer nú sem eldur um sinu á netinu. Samtalið við birt fyrr í dag á Youtube-rásinni JohannesTruth. Samtalið, sem átti sér stað í gegnum síma, mun hafa átt sér stað fyrir nokkrum árum. Í samtali við Stundina segir Jóhannes að á þeim tímapunkti sem símtalið átti...
InnlentReynt að ráða Jóhannes af dögunum með eitri11. desember 2019 Jóhannes Stefánsson, uppljóstrari og fyrrverandi starfsmaður Samherja, segir undarlega hluti hafa farið að gerast í kringum hann um leið og hann hætti hjá Samherja í júlí árið 2016. Jóhannes segir frá þessu í viðtali við Kastljós sem sýnt verður í kvöld. Þar kemur fram að namibíska lögreglan rannsaki nú tilraunir til að ráða Jóhannes af dögum. Hann segir skrítna hluti...
InnlentFyrrum sjávarútvegsráðherra Angóla handtekinn vegna Samherjamálsins10. desember 2019 Gefin hefur verið út handtökuskipun á hendur Victóriu de Barros Neto, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Angóla, vegna tengsla hennar við Samherjamálið svokallaða. Þetta kemur fram á vef angólska ríkisútvarpsins, en Fréttablaðið greinir frá. Þar kemur fram að bankareikningar de Barros Neto, bankareikningar eiginmanns hennar og sömuleiðis barna hafi verið frystir vegna Samherjaskjalanna svokölluðu eftir að dómsmálaráðherra Angóla gaf út tilskipun þess efnis....
InnlentÚtilokar ekki að fleiri íslensk fyrirtæki séu flækt í spillingarmál6. desember 2019 Aðstoðarframkvæmdastjóri Rússlandsdeildar Transparency International segir Samherjamálið sýna fram á hversu berskjaldað Ísland er fyrir spillingarmálum. Hann segir landið vera lítið og að smæðin bjóði upp á spillingu.
InnlentSamherji mun birta þann tölvupóst sem Jóhannes afhenti ekki5. desember 2019 Í tilkynningu sem Samherji birti á vef sínum í gær var Jóhannes Stefánsson, uppljóstrari um viðskiptahætti Samherja í Namibíu, sakaður um að hafa „handvalið“ þann tölvupóst sem hann afhenti Wikileaks til að varpa ljósi á spillta starfsemi Samherja í Afríku. Gögnin voru notuð í umfjöllun Kveiks og Stundarinnar en í tilkynningu Samherja er bent á að sá póstur sem Jóhannes...
InnlentSamherji segir Jóhannes hafa „handvalið“ þann tölvupóst sem Wikileaks fékk4. desember 2019 Í nýrri tilkynningu á vef Samherja segir að Samherji hafi undanfarið látið kanna þau gögn sem Wikileaks hefur birt um félagið, þá aðallega tölvupóst úr pósthólfi Jóhannesar Stefánssonar, fyrrverandi starfsmanns Samherja. Í tilkynningunni segir að þetta séu þau gögn sem fjölmiðlar hafa stuðst við í umfjöllun sinni um viðskipti Samherja í Namibíu en að Jóhannes hafi „handvalið“ þann tölvupóst sem...
InnlentSamherji segir upp allri áhöfninni á stærsta netabát sínum3. desember 2019 Samherji sagði upp í gær allri áhöfn Önnu EA 305, stærsta línuveiðiskipi landsins. Áhöfnin samanstendur af 18 skipverjum, þar á meðal skipstjóranum Unnsteini Líndal Jensson. Var allri áhöfninni gert að hætta störfum samdægurs. Kristjan Vilhelmsson útgerðarstjóri Samherja staðfestir þetta í samtalið við Fréttablaðið, sem greinir frá þessu og segir hann að ástæðuna megi rekja til nauðsynlegra breytinga á skipinu. „Nú...
HeimurEkkert sem bendir til spillingar í öðrum löndum2. desember 2019 Norski Miðillinn DN greinir frá því að Samherji stefni á að hætta starfsemi sinni í Afríkuríkinu fyrr en áætlað var. „Stefnt er að því að vera burt frá Namibíu einhvern tímann á næstu mánuðum,“ segir Geir Sviggum, hjá norsku lögmannsstofunni Wikborn Rein, sem hefur umsjón með innri rannsókn á viðskiptum Samherja í Namibíu. Starfandi forstjóri Samherja, Björgólfur Jóhannson, hefur áður...