MenningAuður gefur út svítuna „ljós“3. apríl 2020 Tónlistarmaðurinn Auður gefur nú út svítuna „ljós“, föstudaginn 3. apríl. „Verkið er hvort tveggja í senn eitt lag og skipt í fjóra sjálfstæða kafla. Formið svipar því til svítu í klassískri tónlist,“ segir Auður, sem vann nýlega Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir lag ársins 2019, Enginn eins og þú, auk þess sem hann var valinn söngvari ársins og tónlistarflytjandi ársins. Að hans...
MenningCovid-19Fimm uppáhaldsplötur Atla Steins: Ómissandi í samkomubanni1. apríl 2020 Tónlistarmaðurinn Atli Steinn hefur verið ansi iðinn á íslensku tónlistarsenunni og óhætt að segja að hann hafi svo sannarlega ekki verið við eina fjölina felldur.
Innlent„Ég lít á þetta sem tækifæri til að styrkja mig og efla“31. mars 2020 Már Gunnarsson sundkappi og tónlistarmaður segir í færslu á Facebook að það sé undarleg tilfinning að Olympíuleikunum sem fara áttu fram í Tokyó í ár hafi verið frestað um eitt ár. „Þetta er að sjálfsögðu undarleg tilfinning þar sem leikarnir hafa verið stimplaðir inn í höfuðið á mér í mörg ár og ég og mitt teymi höfum smíðað allar okkar... Myndband
MenningSYSTIR sendir frá sér sitt fyrsta lag30. mars 2020 Lagið Remember er fyrsta lag hljómsveitarinnar SYSTIR og fjallar um samtakamátt kvenna, valdeflingu, samstöðu og samhljóm. Það fjallar m.a. um að rísa upp eftir áföll, losa sig undan höftum óttans og skína skærar, vera skýr og taka pláss. Lagið er tileinkað öllum systrum jarðar. SYSTIR er samstarfsverkefni systranna Láru og Margrétar Rúnarsdætra. Þær hafa báðar getið sér gott orð innan...
MenningSamdi nýja tónlist í samkomubanni29. mars 2020 Ingi Þór Tryggvason, sem gengur undir listamannsnafninu Mosi, hefur lekið tveim glænýjum lögum, Wilde og Love, á Soundcloud. Líkt og fleiri Íslendingar hefur tónlistarmaðurinn haldið sig heima að miklu leyti vegna COVID-19 veirunnar og nýtti hann tímann til að semja þessi tvö lög. Í samtali við Albumm segir hann að veiran sé fjárhagslegur skellur fyrir marga listamenn. „Í kjölfarið hefur...
MenningÁstarlag samið handa kærustunni29. mars 2020 Vestfirðingurinn Arnar Logi var að senda frá sér nýtt lag, Golden Eyes. Lagið er önnur smáskífa af væntanlegri breiðskífu sem hann stefnir á að gefa út með vorinu. Arnar Logi segir að um sé að ræða ástarlag, sem hann samdi handa kærustu sinni, en það snýst um það hvernig lífið getur í raun leitt mann hvert sem er, en á...
MenningRétt slapp inn áður en landamærunum var lokað27. mars 2020 Jófríður Ákadóttir, einnig þekkt sem JFDR, sendi nýverið frá sér plötuna New Dreams sem hún segir vera töluvert frábrugðna fyrri verkum sínum. Albumm tók tónlistarkonuna tali, fékk að forvitnast um plötuna, ferilinn og búflutning til Ástralíu, sem byrjaði heldur betur með látum. „Tónleikaferðalögum hefur verið frestað til haustsins þannig að ég nýti bara tímann í að vera skapandi á meðan...
InnlentBob Dylan sendir frá sér nýtt lag – fyrsta frumsamda lagið í átta ár27. mars 2020 Goðsögnin og Nóbelsverðlaunahafinn Bob Dylan kom aðdáendum sínum rækilega á óvart í nótt þegar hann póstaði glænýju frumsömdu lagi á Twitter-prófílinn sinn. Lagið heitir Murder Most Foul og er sautján mínútna löng ballaða þar sem textinn fjallar um morðið á John F. Kennedy bandaríkjaforseta í Dallas í nóvember 1963 og hnignun Bandaríkjanna síðan þá. Dylan lýsir í textanum morðinu á... Myndband
HeimurCovid-19Söngvari Rammstein á gjörgæslu vegna COVID-1927. mars 2020 Þýska blaðið Bild greinir frá því að Till Lindemann, söngvari Rammstein, er á gjörgæslu á sjúkrahúsi í Berlín eftir að hafa greinst með COVID-19 kórónaveiruna. 15. mars hélt sveitin tónleika í Moskvu í Rússlandi, eftir heimkomu til Berlínar var Lindemann lagður inn á sjúkrahús með háan hita og greindist hann með veiruna í kjölfarið. Var hann fluttur á gjörgæslu í...
InnlentFyndnasta myndband útgöngubannsins – örvæntingarfull húsmóðir með jákvæð skilaboð25. mars 2020 Útgöngubannið sem er í gildi í mörgum löndum Evrópu reynist ýmsum þungbært og fólk tekur upp á öllu mögulegu til að reyna að gera það léttbærara. Myndband þar sem ónafngreind bresk húsmóðir syngur og leikur sína útgáfu af I will survive, sem við þekkjum öll í flutningi Gloriu Gaynor, hefur síðastliðna daga tröllriðið internetinu og fengið fólk til að veltast... Myndband
MenningÚtsending út í tómið24. mars 2020 Hljómsveitin Grísalappalísa kom sem stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf árin 2013 og 2014 með plötunum Ali og Rökréttu framhaldi. Eftir langt og strangt sköpunarferli hefur Týnda rásin, þriðja breiðskífa sveitarinnar, litið dagsins ljós. Að sögn sveitarinnar er platan bylgjulengdin sem enginn stillir á, „útvarpsstöðin sem er falin á tíðni sem þú nærð ekki sambandi við, útsending út í tómið. Hún...
MenningFannst hann búinn að vera24. mars 2020 Tónlistarmaðurinn Bergþór Smári, eða Beggó eins og hann er iðulega kallaður, var að senda frá sér lagið Einnar nætur gaman. „Ég gaf lagið fyrst út árið 2011, heima í Skagafirði, eftir að það var valið besta frumsamda lagið í undankeppni Söngkeppni framhaldsskólanna á Sauðárkróki,“ segir hann.