LandiðSnævi þaktar lúpínur ofan við Húsavík – Hlýnar aftur í vikunni4. júlí 2023 Hreinn Hjartarson tók hreint út sagt ótrúlega ljósmynd í dag og birti á Facebook en hún hefur vakið verðskuldaða athygli. Ljósmyndin sýnir snævi þaktar lúpínur á Grjótahálsi, rétt ofan við Húsavík. Það furðulega við myndina er sú staðreynd að Hreinn tók myndina í dag, fjórða júlí. Til gamans má geta þess að líkur eru á að hlána taki á Grjótahálsi...
InnlentÍbúar höfuðborgarsvæðisins þurfa að taka fram úlpurnar – Sjö gráður og rigning í kortunum26. júní 2023 Íbúar höfuðborgarsvæðisins gætu þurft að bíða lengur eftir sumarveðri en samkvæmt Veðurstofu Íslands er spáð þungbúnu veðri fram á laugardag. Á miðvikudag kólnar töluvert og verður hiti á bilinu 7-9 stig. Á fimmtudag er spáð rigningu og sjö gráðum á höfuðborgarsvæðinu en hlýjast verður á Egilsstöðum. Á vef Veðurstofunar segir: „Á miðvikudag: Vestlæg eða breytileg átt 5-15 m/s og rigning...
InnlentHelgarveðrið – Sjáðu hvar sólin verður um helgina16. júní 2023 Nú þegar helgin er að renna í hlað er vert að vita hvert sækja megi sólina. Á höfuðborgarsvæðinu er spáð mildu veðri en skýjuðu. Það ætti víst að koma fáum á óvart að glampandi sól og blíðviðri verður austan lands og norðan. Veðurspáin fyrir laugardaginn 17. júní. Mynd / Veðurstofa Íslands Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands segir: „Suðlæg átt 3-10 m/s,...
MenningJón Gnarr man ekki eftir verra vori: „Hef aldrei séð plönturnar mínar jafn illa farnar af kulda“7. júní 2023 Jón Gnarr er ekki ánægður með nýliðið vorið. Segist hann aldrei hafa séð plönturnar hans jafn illa farnar af kulda. Í nýlegri Facebook-færslu tjáir sig grínistinn og fyrrum borgarstjórinn Jón Gnarr, um liðið vor sem hann segir það kaldasta sem hann muni eftir. Segist hann vera mikill vormaður en að nú hafi hann aldrei séð plönturnar sínar jafn illa farnar....
InnlentStormur og snjókoma í kortunum – Vegir á óvissustigi27. maí 2023 Íslendingar virðast þurfa að bíða með útilegur og sólböð. Veðurstofan varar við hvössum vindkviðum og lélegu skyggni en gular viðvaranir eru nú í gildi á nær öllu landinu. Varasamt ferðaveður er á fjallvegum og má búast við snjókomu. Vegir geta því lokað með stuttum fyrirvara. Nú þegar er Vegagerðin búin að loka veginum frá Kirkjubæjarklaustri að Höfn. Samvkæmt veðurspám helgarinnar...
MenningJón Gnarr er ósáttur og vill að einhver axli ábyrgð vegna veðursins23. maí 2023 Fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur og grínistinn Jón Gnarr skrifaði skondna á Twitter þar sem hann kvartar undan veðrinu og segir haustlægðina vera komna. Íslendingar hafa keppst um að komast úr landi í sólina undanfarna mánuði en veðrið hér á landi þessa dagana, sem hefur verið vægast sagt misjafnt, hefur aukið þá samkeppni töluvert. „ekki kominn júní og fyrsta haustlægðin er komin!...
InnlentEinar boðar sólríkt og hlýtt sumar: „Hægari vindar og sólin ætti að fara að láta sjá sig“23. maí 2023 Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að langtímaspár bendi til þess að það muni hlýna um mánaðamótin; að fátt bendi til annars en að sumarið á Íslandi verði gott. Og það er gott. „Við sjáum að um mánaðamótin að hér er að byggjast upp háþrýstisvæði í staðinn fyrir förulægðir er einkennt hafa veðráttuna síðustu tvær vikurnar; þetta háþrýstisvæði verður einkennandi hér á...
LandiðGulri viðvörun framlengt á Austfjörðum – Vegfarendur beðnir um að fara með gát10. apríl 2023 Það á ekki af Austfirðingum að ganga þessa dagana. Nú þegar snjó- og krapaflóðahættan er úr sögunni og hætt er að snjóa er það rigningin sem ógnar. Ákveðið hefur verið að framlengja gulri viðvörun fram undir morgun 11. apríl. Austurfrétt segir frá því að Veðurstofa Íslands hafi framlengt gula viðvörun vegna úrkomu á Austfjörðum þar til klukkan fjögur í fyrramálið,...
InnlentKolvitlaust veður á höfuðborgarsvæðinu og lögregla biðlar til landsmanna – MYNDIR7. apríl 2023 Gul viðvörun er nú í gildi á höfuðborgarsvæðinu og hefur veðrið líklega ekki farið framhjá mörgum borgarbúum. Töluvert hefur verið um eignartjón, hjólhýsi fauk á bíl í Kópavogi og gjörskemmdist. Flugvél Play þurfti að breyta um stefnu og lenda á Akureyri í stað Keflavíkur, eftir þrjár misheppnaðar tilraunir. Lögregla sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem hún biðlar til...
LandiðÁfram varúðarráðstafanir fyrir austan – Íhuga opnun vegkafla á milli Neskaupsstaðar og Eskifjarðar30. mars 2023 Ráð er gert fyrir því að úrkoma á Austurlandi nái hámarki í dag og samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi eru af þeim sökum allar varúðarráðstafanir enn til staðar vegna snjóflóðahættu. Í tilkynningunni kemur einnig fram að verið sé að skoða mögulega opnun milli Neskaupsstaðar og Eskifjarðar um Fannardal sem og frá Reyðarfirði yfir á Egilsstaði um Fagradal. Vegkaflarnir eru...
LandiðRýmingu aflétt að hluta í Neskaupsstað – Slæm veðurspá á morgun28. mars 2023 Samkvæmt tilkynningu Lögreglunnar á Austurlandi var ákveðið á fundi með Veðurstofu Ísland í morgun, að aflétta rýminingu á svæði 18 í Neskaupsstað. Fundur var með Veðurstofu í morgun þar sem staðan var metin á austfjörðum m.t.t. snjóflóðahættu og veðurs framundan. Ákveðið var að aflétta rýmingu á svæði 18 í Neskaupstað. Hins vegar kemur fram í tilkynningunni að vegna aðstæðna á...
InnlentViðvörun frá Veðurstofu28. mars 2023 Á vef Veðurstofunnar segir að gul viðvörun taki gildi klukkan 22 í kvöld á Suðurlandi og Suðausturlandi Mun viðvörunin gilda til klukkan 11 í fyrramálið; segir ennfremur á vef Veðurstofunnar að búast megi við snjókomu eða skafrenningi með slæmu skyggni sem og versnandi akstursskilyrðum. Á Suðurlandi má búast við austanátt, 18-25 m/s undir Eyjafjöllum með ansi snörpum vindhviðum; hægari vindur...