Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Fremstu sérfræðingar á sviði þjóðarmorðs staðfesta að Ísrael sé að fremja þjóðarmorð

Helför Ísraela gegn Palest­ínu­mönnum heldur áfram eins og ekk­ert hafi í skorist

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels
Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels Fræði­menn hafa lýst yfir að aðgerðir þeirra séu þjóð­ar­morð Mynd: RONEN ZVULUN/POOL/AFP

Í dag eru það ekki margir sem mót­mæla því að Ísrael stundi þjóð­ar­morð gegn Palest­ínu­mönnum og nú hafa fremstu þjóð­ar­morðs­fræði­menn heims­ins sagt opin­ber­lega að Ísrael sé fremja þjóð­ar­morð.

Nú þegar hel­för Ísraela gegn íbúum Palest­ínu er enn á ný að ná nýjum hæðum hafa Alþjóða­sam­tök þjóð­ar­morðs­fræði­manna lýst því yfir og ályktað um að stefna sem og aðgerðir Ísraels á Gaza upp­fylli laga­lega skil­yrði þjóð­ar­morðs, sam­kvæmt sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Hinn tækni­væddi og vel þjálf­aði her Ísraela heldur morð­æði sínum áfram í áköfum hern­aði í Gaza-borg, sem sami her skil­greindi sem víg­völl fyrir helgi þótt þar sé ein­göngu að finna rústir og vopn­laust fólk sem er aðfram­komið af hungri og hrylli­legum sjúk­dómum því tengdu.

Í hel­för Ísraels gegn vopn­lausu fólki, körlum, konum og börnum hafa minnst þrettán verið myrt með köldu blóði í dag.

Alþjóða­sam­tök þjóð­ar­morðs­fræði­manna (IAGS), voru stofnuð fyrir 30 árum síðan. Telja sam­tökin um 500 með­limi og sam­þykktu þeir sam­eig­in­lega ályktun þar sem kemur skýrt fram að stefna Ísraels og hern­að­ar­að­gerðir þess á Gaza upp­fylli skil­grein­ingu þjóð­ar­morðs sam­kvæmt sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna um þjóð­ar­morð frá árinu 1948 - sem er einmitt sama ár og Ísrael lýsti yfir sjálf­stæði sínu.

Mikill meiri­hluti félags­manna, eða 86 pró­sent tals­ins, kaus með álykt­un­inni:

„Hér er afdrátt­ar­laus yfir­lýs­ing frá sér­fræð­ingum á sviði þjóð­ar­morðs­rann­sókna um að það sem Ísrael er að gera á Gaza sé ekk­ert annað en þjóð­ar­morð,“ sagði Melanie O'Brien sem er for­seti IAGS, við Reuters frétta­stof­una.

Að minnsta kosti 63 þús­und íbúar Palest­ínu hafa verið myrtir í ofsa­fengnum hefnd­ar­að­gerðum Ísra­els­hers á Gaza síðan 7. októ­ber 2023.

Morðin halda áfram á hverjum degi og hafa ísra­elsk stjórn­völd tak­markað nær algjör­lega flæði hjálp­ar­gagna til Gaza; hafa leikið sér að því að myrða með köldu blóði hund­ruð manna að minnsta kosti við dreif­ing­ar­stöðvar hjálp­ar­gagna; svangt, alls­laust fólk - mikið af börnum og konum - hefur verið slátrað eins og búfén­aði fyrir það eitt að reyna að sækja sér hjálp­ar­gögn því hel­förin heldur áfram og ef eitt­hvað er þá hefur þungi hennar auk­ist jafnt og þétt og er Gaza í raun orðin að einni stórri útrým­inga­búð sem er að einu leyti ólík þeim er nas­istar settu upp í síð­ari heims­styrj­öld­inni; hún er öllum opin og eng­inn ber stjörnu.

RÚV sagði frá mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helförin

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Mike O'Malley ræddi við Anthony Clark aðeins þremur vikum fyrir andlát hans og minnist hans sem einstaklega fyndins manns.
Heimur

Kynlíf enn eitt öfl­ug­asta vopn leyni­þjón­usta

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Lindberg kallar eftir því að stríð­inu í Súdan verði hætt

Heimur

Kona fannst látin í bíl á Fuer­teventura

Heimur

Tveir heið­ursverðir hnigu niður við hlið Macrons í opin­berri mót­töku