Slökkviliðið lauk ekki störfum við Kringluna fyrr en um klukkan eitt í nótt, en eins og hefur áður komið fram þá – á fjórða tímanum í gær – braust út eldur í þaki í austurhluta byggingarinnar. Nú er alveg ljóst er að tjónið er mikið.
Í samtali við mbl.is sagði Jónas Árnason, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, að síðustu bílar slökkviliðsins hafi horfið af vettvangi um klukkan eitt í nótt; áætlar Jónas að ábilinu 50 til 60 manns hafi tekið þátt í slökkvistarfinu í Kringlunni.
Jónas telur að tjónið vegna eldsvoðans sé gríðarlega mikið; af völdum vatns og reyks; fram undan sé afar mikil vinna eftir slökkvistarfið.
Kemur fram að slökkviliðið þurfti að rjúfa hluta af þaki Kringlunnar í gærkvöld til að tryggja að enginn eldur logaði í eldhreiðrum.
Eins og kom fram á Mannlífi í gær þá voru iðnaðarmenn voru við störf á þakinu þegar eldurinn kviknaði og er talið líklegt að hann hafi kviknað þegar verið var að bræða þakpappa.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir