Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Stóð á haus í 6.935. sinn á afmælisdaginn

„Í gær reyndi fés­bókin enda­laust að selja mér stinn­ing­ar­lyf, örvandi krem og ýmis konar hólka og tappa sem ég botn­aði lítið sem ekk­ert í.“

Afmælisbarnið
Afmæl­is­barnið Karl Ágúst Úlfsson segir frá afmælis­kveðj­unum í gam­an­samri Facebook-færslu.

Karl Ágúst Úlfsson, leik­ari og rit­höf­undur, fagn­aði 69 ára afmæli sínu í gær og fékk af því til­efni fjölda afmælis­kveðja, meðal ann­ars frá vinum og gömlum skóla­fé­lögum í Banda­ríkj­unum. Í gam­an­samri færslu á Facebook seg­ist hann þó hafa fengið sér­staka kveðju frá banda­rísku þjóð­inni, sem hafi kosið „rétt“ í þing­kosn­ingum þar í landi, í til­efni af afmæl­inu.

„Fyrir þann heiður þakka ég hrærður,“ skrifar Karl Ágúst, en bætir við að hann hafi hins vegar ekki fengið neina vin­ar­kveðju frá Donald Trump.

Í færsl­unni gerir hann einnig grín að því að sam­fé­lags­mið­ill­inn Facebook hafi túlkað töl­una 69 með nokkuð sér­stökum hætti.

„Nú er sem sagt runnin upp talan 69. Hún þótti ákaf­lega mögnuð og merki­leg þegar ég var yngri, miklu merki­legri en 70, einkum vegna þess hvað hún væri kyn­ferð­is­leg eða jafn­vel klám­fengin. Kannski var það ástæðan fyrir því að í gær reyndi fés­bókin enda­laust að selja mér stinn­ing­ar­lyf, örvandi krem og ýmis konar hólka og tappa sem ég botn­aði lítið sem ekk­ert í. “

Hann grín­ast með að Facebook virð­ist hafa talið sig þurfa meira á slíkum vörum að halda en þakk­læt­inu sem hann var að reyna að koma á fram­færi við þá sem ósk­uðu honum til ham­ingju með dag­inn.

Karl Ágúst segir að Facebook hafi ítrekað frosið þegar hann reyndi að svara afmælis­kveðj­unum og veltir því fyrir sér hvort það hafi verið vegna álags­ins, töl­unnar 69 eða jafn­vel orku­notk­unar hug­bún­að­ar­ins.

„Þegar ég afþakk­aði aftur og aftur það sem í boði var sýndi hún mér ýmist hæðni, pirr­ing, óþol­in­mæði eða jafn­vel fyr­ir­lit­ingu og fraus slag í slag - kannski vegna fjöld­ans sem ég var að reyna að þakka. Eða kannski var það 69 að kenna. Eða kannski var það Lands­virkjun sem var að reyna að halda mér í skefjum vegna orkunnar sem hug­bún­að­ur­inn hám­aði í sig þegar ég reyndi æ ofan í æ að þakka fyrir mig. Var kannski verið að segja mér að ef ég ætl­aði að senda ykkur öllum kveðjur til baka þyrfti að finn­ast ný Kröflu­virkjun eða reisa nokkra tugi af vind­myllum,“ skrifar hann.

Að lokum seg­ist hann þó hafa náð að þakka öllum fyrir kveðj­urnar, þar á meðal banda­rísku þjóð­inni, þótt kveðjan frá Trump hafi ekki skilað sér. Hann grín­ast með að ein­hverjir ill­vilj­aðir Norðmenn kunni að hafa gómað hana og sturtað niður úr kamr­inum.

Færsl­unni lýkur á enn einni vísun í afmæl­is­ald­ur­inn. Karl Ágúst seg­ist hafa staðið á haus í 6.935. skipti „í þess­ari törn“ og segir það sína eigin leið til að vísa í töl­una 69: að standa til skiptis í lappir eða á haus en leik­ar­inn góð­kunni birtir með færsl­unni ljós­mynd af sér þar sem hann stendur á haus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Fólk

Fólk

Hjátrúin um föstu­dag­inn þrett­ánda hefur raun­veru­leg áhrif

Margir fresta brúðkaupum og ferðum vegna ótta við dagsetninguna, þótt rannsóknir sýni ekki að hún sé hættulegri en aðrir dagar.
Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Fólk

Glúmur er rif­beins­brot­inn

Fólk

Gusu­m­eist­ari og fag­ur­keri taka höndum saman

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?