Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Heimur

Tveir heið­ursverðir hnigu niður við hlið Macrons í opin­berri mót­töku

Verkfallsverðir hleyptu úr dekkjum og spreyjuðu ryðvarnarefni á rúður – Rúta keyrði á einn þeirra

Frá deilunum.
Frá deil­unum. Mynd: DV

Mikið gekk á morg­un­inn 15. jan­úar árið 1990, þegar þriggja daga verk­fall Bif­reiða­stjóra­fé­lags­ins Sleipnis hófst en Land­leiðir höfðu þá fengið menn til að ganga í störf þeirra rútu­bíls­stjóra sem voru í verk­falli.

Litlu mátti muna að ekki færi verr þegar rútu­bíls­stjórar á vegum Sleipnis mættu með verk­falls­verði til að stöðva það sem þeir köll­uðu verk­falls­brot. Hafði þá Land­leiðir fengið menn í störf þeirra öku­manna sem voru í verk­falli. Kom það ekki til greina að mati Sleipn­is­manna en þeir hindr­uðu með öllum til­tækum ráðum að akstur gæti haf­ist. Hleyptu verk­falls­verðir úr dekkjum bíl­anna, spraut­uðu ryð­varn­ar­efni á fram­rúðu þeirra og þá var jafn­vel skorið á eitt dekkið. Versta til­fellið varð þó þegar ein leigurútan ætl­aði að leggja af stað í Hafn­ar­firði, en verk­fallsvörður gekk þá í veg fyrir rút­una og varð fyrir henni. Slas­að­ist hann ekki en lög­reglan var kölluð á vett­vang.

Hér má lesa um átökin en DV skrif­aði frétt um málið á sínum tíma:

Verk­fallsá­tök hjá Land­leiðum í morgun: Hleypt úr dekkjum og ekið á verk­fallsvörð – engar stræt­ó­ferðir milli Hafn­ar­fjarðar og Reykja­víkur



Í morgun hófst þriggja daga verk­fall Bif­reiða­stjóra­fé­lags­ins Sleipnis sem í eru rútu­bif­reiða­stjórar. Og í morgun gekk mikið á bæði í Hafn­ar­firði og í Reykja­vík þegar hefja átti ferðir á milli með Land­leiða­bif­reiðum. Land­leiðir höfðu fengið menn til að ganga í störf þeirra bif­reiða­stjóra sem lagt höfðu niður vinnu. Sleipn­is­menn voru hins vegar mættir með verk­falls­verði og hindr­uðu með öllum ráðum að akstur gæti haf­ist. Að sögn Pálma Pálma­sonar hjá Land­leiðum hleyptu verk­falls­verðir úr dekkjum bif­reið­anna, spraut­uðu ryð­varn­ar­efni á fram­rúður þeirra og í einu til­felli sagði hann að skorið hefði verið á dekk bif­reiðar. Það var í Lækj­ar­göt­unni, þar sem er enda­stöð Land­leiða­bif­reiða sem ganga milli Hafn­ar­fjarðar og Reykja­víkur. Land­leiðir fengu líka leigurútur til að aka. Þegar ein slík ætl­aði af stað, við enda­stöð í Hafn­ar­firði, gekk verk­fallsvörður fram fyrir bíl­inn og var ekið á hann. Lög­reglan var kölluð til og málið kært. Maðurinn mun ekk­ert hafa slasast. Haf­steinn Snæland, í verk­falls­stjórn Sleipnis, sagð­ist ekki kann­ast við að dekk hefðu verið skorin. Aftur á móti að lofti hefði verið hleypt úr dekkjum og ryð­varn­ar­efni sprautað á rúður. Hann sagði að allir bif­reiða­stjóra Land­leiða væru í verk­falli en við­gerð­ar­menn og aðrir starfs­menn hefðu ætlað að ganga í störf þeirra. Það hefði verið stoppað og Sleipn­is­menn myndu halda uppi fullri verk­fallsvörslu meðan verk­fallið stæði yfir. Allar ferðir hjá Norð­ur­leið hf„ milli Akur­eyrar og Reykja­víkur, liggja niðri. Sömu­leiðis liggja niðri ferðir sem Kynn­is­ferðir hf. ann­ast, þar á meðal með far­þega í milli­landa­flugi milli Reykja­víkur og Kefla­vík­ur­flug­vallar. Nokkur rútu­fyr­ir­tæki, eins og til að mynda Vest­fjarða­leið, halda uppi áætlun á sínum leiðum þar sem um er að ræða fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki og eig­endur eru öku­menn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fíkniefnin vógu 11.720 grömm og voru ætluð til söludreifingar
Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Ung­lingur stakk mann í síð­una og réðst á annan með járn­röri

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum