Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

„Það væri svo sem ekk­ert nýtt á þeim bæ“

Þór Saari
Þór Saari Er fyrr­ver­andi þing­maður Mynd: Þór Saari/Facebook

Þór Saari, fyrr­ver­andi þing­maður Hreyf­ing­ar­innar, lætur þung orð falla um Viðreisn og for­ystu flokks­ins í umræðu um ákvörðun Jóns Gnarr að segja sig úr þing­flokki Við­reisnar. Þór tengir starf­semi flokks­ins við það sem hann kallar alkó­hól­ískan hugs­un­ar­hátt og gengur svo langt að tengja hann við alkó­hól­isma félags­manna og for­ystu flokks­ins.

Jón Gnarr sagði sig úr þing­flokki Við­reisnar í gær og hyggst starfa sem þing­maður utan þing­flokka. Hann sagði ákvörð­un­ina meðal ann­ars tengj­ast því að ákveðin mál sem hann hefði lagt mikla áherslu á hefðu ekki fengið þann for­gang sem hann vildi.

„Ég kem inn í þetta sam­starf með ákveðnar vænt­ingar um ákveðnar aðgerðir og þá sér­stak­lega í mál­efnum barna í flóknum vanda, alvar­legum vanda. Ég hef beitt mér mjög per­sónu­lega í því,“ sagði Jón.

Hann hefði viljað sjá mála­flokk­inn ofar á for­gangs­lista þing­flokks­ins.

„Ég vildi að það væri ofar á for­gangs­lista þing­flokks­ins og ég hef viljað fá það framar, ofar, á for­gangs­list­ann en það hefur kannski ekki verið nægi­lega ofar­lega finnst mér.“

Jón nefndi einnig frels­is­mál sem mik­il­vægan þátt í ákvörðun sinni.

„Frels­is­mál sem eru mér mjög kær, ein­stak­lings­frelsi og athafna­frelsi, ég er ósáttur við það,“ sagði Jón.

Þór tengir Viðreisn við alkóhólisma

Björn Leví Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, velti ákvörðun Jóns fyrir sér á Facebook og gagn­rýndi rök­stuðn­ing hans. Hann sagði alla þing­menn vera með eigin mark­mið og vilja koma fjöl­mörgum málum áfram.

Þór Saari bland­aði sér í umræð­una og setti fram mun harð­ari full­yrð­ingar um Viðreisn.

„Mér sýn­ist Jón Gnarr ein­fald­lega hafa áttað sig á því að Viðreisn sem stjórn­mála­flokkur og sem þing­flokkur Við­reisnar sé fyrst og fremst drifin áfram af alkó­hól­ískum hugs­un­ar­hætti sem að sjálf­sögðu á rætur að rekja í alkó­hól­isma félags­manna og for­ystu.“

Þór bætti síðan við

„Það væri svo sem ekk­ert nýtt á þeim bæ sem íslensk stjórn­mál eru.“

Björn Leví hafnar orðum Þórs

Björn Leví svar­aði Þór og hafn­aði þess­ari lýs­ingu á Viðreisn.

„Það er ekki reynsla mín af þing­flokki Við­reisnar. Og hef ég unnið þó nokkuð með þeim,“ skrif­aði Björn.

Hann tók síðan af allan vafa um afstöðu sína.

„Þannig að nei. Þú hefur rangt fyrir þér með þetta.“

Orð Þórs vekja spurn­ingar um ábyrgð fyrr­ver­andi kjör­inna full­trúa í opin­berri umræðu, sér­stak­lega þegar settar eru fram alvar­legar full­yrð­ingar um per­sónu­leg mál­efni heils hóps stjórn­mála­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Pólitík

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
  • Pólitík

    „Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun