Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Menning

Ris og fall Krumma

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Steinunn Ólína sló í gegn í Forystusætinu: „Alltaf svaraði hún brosandi og upplýst til baka“

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir Mynd: Facebook

Óhætt er að segja að for­seta­fram­bjóð­and­inn Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir hafi slegið í gegn hjá fjöl­mörgum í gær, þegar hún mætti í við­tals­þátt­inn For­ystu­sætið á RÚV.

Gríð­ar­lega margir hafa tjáð sig um frammi­stöðu Stein­unnar Ólína í þætt­inum á sam­fé­lags­miðlum en hún þótti standa sig afar vel gegn Jóhönnu Vigdísi Hjalta­dóttur sem þótti ganga helst til of langt gagn­vart Höllu Hrund Loga­dóttur í sama við­tals­þætti.

Einn þeirra sem dásamað hefur frammi­stöðu Stein­unnar Ólínu, er Atli Þór Fanndal, sam­skipta­stjóri Pírata.

„Ég hef eig­in­lega sjaldan verið jafn stoltur af því að telja Steinunn Ólínu Þor­steins­dóttur til vina. Frá því að hún ákvað að bjóða fram krafta sína sem for­seta hefur hún gengið fram af heið­ar­leika og ást. Hún hefur neitað að und­ir­gang­ast áróður um að emb­ætti for­seta sé svo ópóli­tískt að raunar sé bara dóna­skapur að tala um nokkuð. Fyrir þetta hefur hún verið kölluð öllum illum nöfnum af slef­berum valds­ins.“ Þannig hefst Facebook-færsla Atla Þórs en svo heldur hann áfram:

„Steinunn hefur frá fyrsta degi komið hreint og beint fram. Hún hefur rutt veg­inn fyrir aðra fram­bjóð­endur sem á fyrstu dögum kosn­inga­bar­áttu voru skamm­aðir fyrir að svo mikið sem tjá sig um þá fárán­legu stöðu að for­sæt­is­ráð­herra fyrr­ver­andi ætli sér að skipta um kenni­tölu og lög­heim­ili á meðan við eigum bara að láta það vera að minn­ast á feril Katrínar og það þrotabú sem hún skilur eftir. Það er ekki alltaf þannig að maður eign­ist marga vini með því að segja hluti upp­hátt en maður eign­ast rétta vini. Steinunn Ólína er enn eitt dæmið um konu sem gefur af sér og er ósér­hlífin. Það er aðdá­un­ar­vert.“

Að lokum dregur Atli Þór upp nokkur höf­uð­atriði úr þætt­inum þar sem hann þótti Steinunn skara framm úr.

„Í þætt­inum í gær afhjúpaði hún svo snyrti­lega og vel það yfir­gengi­lega snobb sem okkur sem ekki erum í réttum flokki mætir í hvert sinn sem við viljum hafa eitt­hvað um sam­fé­lagið að segja. Allt var gert til að geta litið úr mál­flutn­ingi hennar í við­tal­inu og alltaf svar­aði hún bros­andi og upp­lýst til baka. Bjarni Bene­dikts­son er ekki kjör­inn for­sæt­is­ráð­herra. RÚV notar sjálft skoð­ana­kann­anir til að flokka fólk í A og B lið en ekki þegar kemur að því að meta hvort rík­is­stjórnin eða Bjarni séu raun­veru­lega með lýð­ræð­is­legt mandate. Og já, lagar­eldi er til­raun til að auka ójöfnuð. Til ham­ingju Steinunn!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Er einn þekktasti og sigursælasti þjálfari í sögu Íslands
Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Ung­lingur stakk mann í síð­una og réðst á annan með járn­röri

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum