Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Máttugar matartegundir

Mat­ar­teg­undir sem auka kraft og úthald.

Máttugar matartegundir
Granat­epli inni­halda öflug andox­un­ar­efni og rann­sóknir hafa sýnt fram á að neysla þeirra getur haft áhrif á það hvernig slag­æðar okkar eld­ast.

Flestar mat­ar­teg­undir hafa áhrif á okkur. Þær gefa okkur nær­ing­ar­efni, orku og vítamín til að takast á við verk­efni dags­ins og því rétt að huga að því hvaða mat­ar­teg­undir við ættum að leit­ast eftir að bæta inn í okkar dag­legu neyslu til að auka okkur kraft og úthald, ekki síst þessa köld­ustu og dimm­ustu vetr­ar­mán­uði.

Granat­epli inni­halda öflug andox­un­ar­efni og rann­sóknir hafa sýnt fram á að neysla þeirra getur haft áhrif á það hvernig slag­æðar okkar eld­ast. Líklegt þykir að granat­epli hafi góð áhrif á tíðni krabba­meins, sér­stak­lega blöðru­háls­kirtil­skrabba­meins, en engum rann­sóknum á þessum eig­in­leikum hefur enn verið lokið.

Bygg inni­heldur átta lífs­nauð­syn­legar amínó­sýrur og sam­kvæmt nýlegri rann­sókn getur neysla á því komið reglu á blóð­syk­ur­inn í allt að 10 klst. eftir neyslu þess. Bygg er einnig talið hjálpa til við lækkun kól­ester­óls í blóði og draga úr hætt­unni á teg­und 2 syk­ur­sýki.

Magurt kjöt er ein besta upp­spretta járns sem til er og hefur einnig áhrif á getu lík­am­ans til að taka upp járn úr öðrum fæðu­teg­undum. Kjöt inni­heldur sínk sem talið er bæta minnið og B-vítamín sem hjálpa lík­am­anum að nýta ork­una úr matnum. Kjöt af dýrum sem fóðruð hafa verið á grasi í stað hafra inni­heldur meira af E-vítamíni og omega-3 fitu­sýrum. Villi­bráðin okkar er mögur og bítur gras, mosa og fjalla­grös allan árs­ins hring.

Feitur fiskur er fullur af fjör­efnum og omega-3 fitu­sýrum sem sannað er að hafa góð og víð­tæk áhrif í lík­am­anum. Omega-3 fitu­sýrur hafa m.a. verið taldar hafa góð áhrif á liði og lund­ar­far og hjálp­legar í bar­átt­unni gegn þung­lyndi og kvíða auk þess að hafa góð áhrif á starf­semi heil­ans. Fiskur er klár­lega rétta hrá­efnið til að byrja á þegar við viljum bæta matar­æði okkar.

Feitur fiskur er fullur af fjör­efnum og omega-3 fitu­sýrum sem sannað er að hafa góð og víð­tæk áhrif í lík­am­anum … Fiskur er klár­lega rétta hrá­efnið til að byrja á þegar við viljum bæta matar­æði okkar.

Kanill er bragð­góður í bæði sæta og krydd­aða rétti og það er kannski ekki af ástæðu­lausu að margir sækja í hann. Hann er tal­inn koma jafn­vægi á blóð­syk­ur­inn og hefur í gegnum ald­irnar verið not­aður gegn tann­verkjum og andremmu og einnig sem vörn gegn kvefi og melt­ing­ar­trufl­unum.

Villtur lax inni­heldur mikið af D-vítamíni og omega-3 fitu­sýrum og sára­lítið af þung­málmum. Íslenski lax­inn, sér í lagi sá villti, er hér í algjörum sér­flokki. Fitu­sýr­urnar í lax­inum hafa góð áhrif á húð­ina og lund­ar­farið og berj­ast gegn fitu­söfnun, hjarta­sjúk­dómum og áhrifum liða­gigtar.

Til eru margar teg­undir af hollum olíum svo sem ólífu­olía, sesam­olía, hörfræj­a­olía og hveitikíms­olía en þær henta mis­vel í elda­mennsku og eru mis­bragð­góðar. Til að hámarka heilsu­sam­lega eig­in­leika þeirra er best að geyma þær í dökkum flöskum á köldum stað, jafn­vel í kæli­skáp.

Eggja­r­auður inni­halda mörg tor­fengin nær­ing­ar­efni, s.s. choline sem tengt hefur verið lægri tíðni brjóstakrabba­meins (ein rauða upp­fyllir ¼ af ráð­lögðum dags­skammti). Auk þess inni­halda eggja­r­auður mik­il­væg andox­un­ar­efni. Margir hafa forð­ast egg vegna tengsla þeirra við hjarta­sjúk­dóma en fyrir flesta er engin ástæða til þess. Þeir sem þegar þjást af hjarta­sjúk­dómum ættu að tak­marka neysl­una við 1-2 rauður á viku en öðrum er óhætt að borða a.m.k. eitt egg dag­lega, rann­sóknir hafa sýnt fram á að það eykur ekki lík­urnar á hjarta­sjúk­dómum eða hjarta­á­falli.

Spirul­ina er ein þekktasta ofur­fæða sem til er en hún er jafnan þurrkuð og hennar yfir­leitt neytt sem fæðu­bót­ar­efnis. Það er ekki að ástæðu­laus að Spirul­ina lendir ofar­lega á öllum ofur­fæðu­listum, hún inni­heldur gríð­ar­legt magn nær­ing­ar­efna, t.d. beta karótín, járn, kal­íum, kalk, B-12 vítamín, blað­grænu og góðar fitu­sýrur.

Rann­sóknir sem gerðar voru á dýrum sýndu m.a. að neysla á blá­berjum gæti lækk­aði kól­ester­ól­magn í blóði og hjálpað til við stjórnun blóð­þrýst­ings.

Blað­laukur, laukur og hvít­laukur búa yfir mörgum ótrú­legum kostum. Laukur er tal­inn geta hjálpað til við að lækka blóð­þrýst­ing­inn og kól­esteról í blóði. Rann­sóknir benda einnig til að laukur geti haft hamlandi áhrif á vöxt krabba­meins­fruma í blöðru­háls­kirtli, maga og ristli. Laukur hefur hamlandi áhrif á fjölgun bakt­ería og hvít­laukur er t.d. tal­inn geta minnkað lík­urnar á kvefi.

Mikil vín­drykkja verður seint talin heilsu­sam­leg en því er þó haldið fram að hóf­leg neysla á rauð­víni geti haft góð áhrif á starfs­semi hjarta og æða­kerfis, þetta er stundum kallað „franska mót­sögnin“. Rauðvín inni­heldur polyfenól og res­ver­atol, efni sem m.a. eru talin eiga þátt í þessum meintu áhrifum rauð­víns. Rauðvín er einnig ríkt af andox­un­ar­efnum. Við leggjum hér aftur áherslu á orðin „hóf­leg neysla“.

Bláber inni­halda mikið magn andox­un­ar­efna og talið er að neysla þeirra geti dregið úr ein­kennum hjá Alzheimer-sjúk­lingum og þeim sem þjást af elli­glöpum. Rann­sóknir sem gerðar voru á dýrum sýndu m.a. að neysla á blá­berjum gæti lækk­aði kól­ester­ól­magn í blóði og hjálpað til við stjórnun blóð­þrýst­ings.

Rauðrófan er mjög mik­il­væg fæðu­teg­und og hefur stóru hlut­verki að gegna fyrir lík­amann. Í rauðróf­unni er járn, C-, Bl-, B2-, B6-, og P-vítamín ásamt mik­ils­verð­ustu amínó­sýr­unum. Rauðrófan hefur gagn­ast vel við blóð­leysi og bólgum í lík­am­anum og ætti skilið að gegna miklu stærra hlut­verki hjá okkur en hún gerir. Síðustu ár hefur verið hægt að fá mjög góðar, ferskar rauðrófur í versl­unum hér­lendis.

Texti / Guðrún Vaka Helga­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni