Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Æðisleg íbúð við Lækinn í Hafnarfirði

Æðisleg íbúð við Lækinn í Hafnarfirði
Karitas Möller arki­tekt.

Karitas Möller arkitekt og Kristinn Már Reynisson lögfræðingur fluttu á sérhæð við Lækinn í Hafnarfirði fyrir tæpum tveimur árum og hafa gert hana upp á einstaklega fallegan og sjarmerandi hátt.

Þegar Hús og híbýli kíkti í heim­sókn var Karitas ein heima og búin að vera á haus að gera fínt. „Ég er búin að gera jóla­hrein­gern­ing­una í júlí,“ sagði hún og hló smit­andi hlátri. Karitas seg­ist hafa ein­stak­lega mikla unun af því að dekra við sitt nærum­hverfi og íbúðin ber þess merki því hver ein­asti fer­metri er fal­legur á heim­il­inu.

Upprunalega eldhúsið gullfallegt eftir yfirhalningu

,,Þetta eld­hús er til að mynda upp­runa­legt og er um 70 ára gam­alt en það kom aldrei til greina að taka það niður heldur bara að gera það eins fal­legt og hægt væri. Við héldum inn­rétt­ing­unni en breyttum aðeins upp­röð­un­inni á því; færðum til skápa og smíð­uðum nýja skápa í sama stíl og inn­rétt­ingin er í. Við settum svo marm­ara­plötu á eld­hús­bekk­ina sem breytti miklu fyrir útlitið. Höld­urnar eru líka upp­runa­legar en þær voru illa farnar og ég lét pólý­húða þær sem

Ljósið yfir eld­hús­borð­inu heitir IC og er frá Flos. Karitas keypti það í París og hafði mikið fyrir því að ferja það heim í hand­far­angri.

bjarg­aði þeim, þetta lítur vel út og kost­aði alls ekki mikið. Við settum svo hvítar vegg­flísar og völdum svört blönd­un­ar­tæki á móti gamla stál­vask­inum sem hefur staðið vakt­ina í öll þessi ár, mér finnst hann sjar­mer­andi,“ segir hún bros­andi. Kop­ar­ljós hanga yfir gamla vask­inum en þau keypti Karitas í Kaup­manna­höfn þegar hún var þar í arki­tekta­námi.

Á eld­hús­gólf­inu er vín­ylmotta úr versl­un­inni KAIA sem er í List­hús­inu við Engja­teig. Gólfið er í raun hálf­klárað því þetta eru bara kross­við­arplötur úr Bauhaus sem átti að setja annað efni ofan á en Karitas var svo ánægð með útlitið á þeim og ákvað að leyfa þeim að vera í bili.

Meiri samkeppni í Danmörku

„Ég bjó úti í örugg­lega 12 ár, lærði í Kaup­manna­höfn og flutti svo til Sví­þjóðar og síðar Árósa með kærast­anum þar sem hann var í námi. Ég vann á arki­tekta­stofum úti í Danmörku sem var mjög lær­dóms­ríkt og krefj­andi, en ég finn að það er á ein­hvern hátt þægi­legra að vinna

Karitas og Kristinn tóku bað­her­bergið í gegn og stækk­uðu það aðeins; rýmið þar sem sturtan er núna var áður partur af hjóna­her­berg­inu.

hér heima, þar sem maður er meira á heima­velli. Það er líka tölu­vert meiri sam­keppni í þessu umhverfi í Danmörku og erf­ið­ara að kom­ast að kannski vegna þess líka að Danir eru þekktir fyrir góða hönnun og margt hæfi­leika­fólk kemur úr öllum áttum. En þetta var mjög lær­dóms­ríkur og æðis­legur tími.“

Það voru tvær stofur í íbúð­inni en ákveðið var að loka á milli þeirra. Til að nýta rýmið í gamla hurða­op­inu, teikn­aði Karitas skrif­stofu­skáp sem kærast­inn og pabbi hans smíð­uðu. Inni í þess­ari mublu er bæði heima­skrif­stofa og hirslur. Stofan er sér­lega kósí, þar er blár sófi úr ILVA.

Karitas á mikið af fal­legum hlutum og less is more á sann­ar­lega ekki við um þetta per­sónu­lega og hlýja heim­ili í Hafn­ar­firði.

Fallegt barna­her­bergi.

Meira af sér­hæð­inni við Lækinn í sept­em­ber­blaði Húsa og híbýla sem er fáan­legt á sölu­stöðum til 20. sept­em­ber þegar nýtt blað kemur út.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni