Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Léttist um 85 kíló og sagði skilið við Bakkus

Léttist um 85 kíló og sagði skilið við Bakkus

„Ég var þekktur sem íþrótta­maður og þegar ég fór úr því í þetta man ég að fólk sagði: Guð minn góður, hvað gerð­ist?“ segir Noah Kingery í við­tali við vefritið Men’s Health.

Noah segir sögu sína í við­tal­inu, en á yngri árum spil­aði hann knatt­spyrnu í Brasilíu. Hann borð­aði hollan mat og æfði mikið en þegar hann var átján ára þurfti hann að velja milli þess að bjarga sam­bandi sínu við kær­ustu sína í heima­bænum Dallas í Banda­ríkj­unum eða halda áfram að láta fer­il­inn blómstra í Brasilíu. Hann valdi að snúa aftur heim til að halda kærust­unni.

Sam­bandið hins vegar gekk ekki upp og það fékk mikið á Noah. Hann leit­aði að huggun í mat og áfengi og þyngd­ist um rúm 96 kíló á einu ári. Þá var hann orð­inn rúm 160 kíló og hafði aldrei verið jafn þungur.

Alltaf maðurinn á bak við tjöldin

Árið 2009 flutti Noah til Los Angeles til að stofna sitt eigið fata­merki, Prep Couture, en meðal við­skipta­vina hans voru Kanye West og Justin Bieber.

„Ég gat ekki klæðst neinu sem ég bjó til. Ég var alltaf mað­ur­inn á bak við tjöldin og vildi ekki láta sjá mig,“ segir Noah. Þátta­skil urðu í lífi hans ári síðar þegar náinn vinur hans lést í bílslysi þegar öku­maður undir áhrifum áfengis keyrði á hann.

„Ég sagði við sjálfan mig: Ókei, ég verð að hætta að drekka og ná stjórn á þessu. Ég þarf að verða aftur fót­bolta­mað­ur­inn sem ég var í mið­skóla.“

Léttist um 67 kíló en sjálfstraustið vantaði

Noah ákvað að borða og æfa eins og þegar hann var í formi. Hann hætti að borða sjö þús­und kalor­íur af kín­verskum mat á dag og byrj­aði að borða hreinan mat. Hann æfði af fullum krafti og lyfti lóðum til að byggja upp vöðvamassa. Og hann hætti að drekka. Allt þetta varð til þess að hann létt­ist um 67 kíló.

„En ég fékk ekki meira sjálfs­traust. Mér fannst ég enn vera rúm 160 kíló. Ég var alltaf að berj­ast við það,“ segir Noah og níu mán­uðum síðar féll hann.

„Ég vildi ekki hugsa um hve illa mér leið þannig að ég féll aftur í mína gömlu fíkn – áfengi.“

Langaði að hoppa

Noah byrj­aði í kjöl­farið að borða óhollan mat og hætti að æfa. Fljót­lega bætti hann nán­ast öllu aftur á sig og var fljót­lega orð­inn 145 kíló. Á þessum tíma­punkti íhug­aði hann sjálfs­víg.

„Mér fannst eins og ég væri með pálmann í hönd­unum fjár­hags­lega en í einka­líf­inu fannst mér ég vera tómur. Mig lang­aði ekki að halda áfram að lifa. Þannig að einn dag keypti ég vod­kaflösku og verkja­still­andi og fór uppá 31. hæð í hús­inu sem ég bjó í. Mig lang­aði til að hoppa. En einn af bestu vinum mínum hringdi og ég sagði honum hvað ég ætl­aði að gera og hann flýtti sér til mín. Næsta sem ég man er að hann sagði: Ef ein­hver getur breyst, getur þú það en þú verður að finna sjálfan þig. Ef þessi stund breytir þér ekki, þá gerir ekk­ert það,“ segir Noah.

Hann ákvað að breyta fíkn­inni í eitt­hvað gott – að borða góðan og hollan mat og hugsa vel um lík­amann. Hann ákvað að æfa aftur eins og hann gerði og í dag æfir hann fimm daga vik­unnar í einn til tvo tíma. Hann borðar fjórar mál­tíðir á dag og borðar mál­tíð sem er rík af kol­vetnum annað hvort fyrir eða rétt eftir æfingar. Hann borðar mikið af próteini, eins og fitu­lítið kjöt, egg og gríska jógúrt. Hann velur að borða ein­göngu mat sem honum finnst góður.

„Þú verður að elska það sem þú borðar. Ef þú sérð þig ekki borða það næstu þrjá mán­uði þá er það ekki að fara að virka.“

Getum ekki breytt gærdeginum

Í dag er Noah 75 kíló og vinnur sem nær­ing­ar­fræð­ingur. Nú nýtur hann lífs­ins við að hjálpa öðrum og hjálp­aði meira að segja móður sinni að losa sig við 48 kíló.

„Ég hef verið þarna. Ég veit hvernig það er að reyna að losa sig við slæma ávana. Mig lang­aði að hafa til­gang í veg­ferð ann­arra og sjá hvernig líf þeirra breyt­ist,” segir Noah og bætir við.

„Við getum ekki breytt því sem gerð­ist í gær en við getum gert það sem við getum í dag til að breyta morg­un­deg­inum.“

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife