Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Var neydd til að sturta hamstrinum niður á flugvélasalerni

Var neydd til að sturta hamstrinum niður á flugvélasalerni

Saga hinnar 21 árs Belen Aldecosea hefur náð athygli heims­ins, en hún er harla óvenju­leg. Þann 21. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn var Belen bókuð í flug með flug­fé­lag­inu Spirit frá Baltimore til Suður-Flórída. Hún seg­ist hafa hringt í flug­fé­lagið til að athuga hvort að hamst­ur­inn hennar Pebbles, sem læknir skrif­aði uppá að væri stuðn­ings­dýrið hennar, mætti fljúga með henni. Belen segir að svarið frá flug­fé­lag­inu hafi verið jákvætt.

En þegar að Belen mætti í flug sagði starfs­maður flug­fé­lag­ins að dýrið mætti ekki fljúga. Ráðlagði starfs­mað­ur­inn henni að sturta ham­str­inum niður inni á einu sal­erni flug­vél­ar­innar svo hún gæti flogið með vél­inni. Og þar sem þetta var í aðdrag­anda þakk­ar­gjörð­ar­há­tíð­ar­innar voru allir vinir Belen upp­teknir og hún of ung til að leigja sér bíla­leigu­bíl og keyra.

Það end­aði því með því að hún gerði eitt það erf­ið­asta sem hún hafði gert á lífs­leið­inni – hún sturt­aði Pebbles niður.

„Hún var hrædd. Ég var hrædd. Það var hræði­legt að setja hana í kló­settið. Ég varð mjög til­finn­inga­leg. Ég grét. Ég sat í góðar tíu mín­útur á sal­ern­inu og grét,“ segir Belen í sam­tali við Miami Herald.

Öll nagdýr bönnuð

Belen íhugar að lög­sækja flug­fé­lagið, en for­svars­menn þess hafa stað­fast­lega neitað því að starfs­maður á þeirra vegum hafi sagt henni að sturta ham­str­inum niður.

Belen fékk Pebbles síð­asta haust eftir að hún fékk kýli á háls­inn og talið var að hugs­an­lega væri um krabba­mein að ræða. Kýlið reynd­ist síðar vera jákvætt. Hún býr í Baltimore en bók­aði flug til Suður-Flórída til að láta fjar­lægja kýlið.

For­svars­menn flug­fé­lags­ins játa að mis­tök hafi átt sér stað þegar að starfs­maður hafi sagt Belen að hamst­ur­inn mætti koma með í flugið, en nag­dýr af öllu tagi eru bönnuð í flugum hjá Spirit. Þeir segja einnig að Belen hafi verið boðið að fljúga níu tímum seinna svo hún hefði tíma til að finna stað fyrir hamst­ur­inn að vera á.

„Gögn okkar sýna að gest­ur­inn þáði seinna flugið án mót­mæla,“ segir Derek Dombrowski, tals­maður flug­fé­lags­ins í sam­tali við BuzzFeed News og bætir við að Belen hafi verið boð­inn afslátt­ar­miði vegna óþæg­ind­anna en að flug­fé­lagið hafi ekki heyrt meira í henni. Belen sturt­aði dýr­inu niður eftir að hún þáði boð um að fljúga síðar um dag­inn og segir að starfs­maður hafi stungið uppá því að hún los­aði sig við dýrið á þann hátt eða sleppti því lausu.

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta