Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Út um allar trissur

Margir kjósa að stunda heilsu­rækt í utan­lands­ferðum sínum. Því bjóða flestar ferða­skrif­stofur upp á spenn­andi ferðir til útlanda, allt árið um kring, þar sem meg­in­til­gang­ur­inn er lík­ams­rækt og úti­vist. Ferð­irnar eru af ýmsum toga en hér eru nokkur vin­sæl dæmi.

Út um allar trissur
Göngu­hópar spretta nú alls staðar upp eins og gorkúlur og áhug­inn á göngum hefur auk­ist mikið á und­an­förnum árum.
Boðið er upp á klass­ískar skíða­ferðir til hinna ýmsu skíða­svæða í Evrópu og Banda­ríkj­unum eða ferðir helg­aðar göngu­skíðum sem njóta sífellt meiri vin­sælda.

Gaman í brekk­unum
Það er draumur margra að skella sér í vetr­ar­frí á skíði, gista í glæsi­legum skíða­skálum, hafa það skemmti­legt í góðum félags­skap og renna sér á skíðum í fal­legu umhverfi.

Ýmist er boðið upp á klass­ískar skíða­ferðir til hinna ýmsu skíða­svæða í Evrópu og Banda­ríkj­unum eða ferðir helg­aðar göngu­skíðum sem njóta sífellt meiri vin­sælda.

Þó svo að um skipu­lagðar ferðir sé að ræða hefur fólk frjálst val um hvernig það vill haga degi sínum og hversu mikið það vill vera í brekk­unum.

Yfir­leitt er þó boðið upp á dag­legar ferðir með far­ar­stjórum þar sem eitt­hvað nýtt og skemmti­legt er skoðað.

Innri friður
Fyrir jóga­iðk­endur jafn­ast fátt á við það tæki­færi að ferð­ast til Indlands, vöggu jóga­menn­ing­ar­innar.

Und­an­farin ár hefur verið hægt að fara í skipu­lagðar ferðir um Indland þar sem blandað er saman skoð­un­ar­ferðum og jóga. Ferð­irnar eru því hann­aðar fyrir þá sem vilja rækta sjálfa sig en jafn­framt upp­lifa ævin­týra­lega feg­urð Indlands, sögu­fræga staði og fram­andi mat­ar­gerð­ar­list.

„ … hefur fólk frjálst val um hvernig það vill haga degi sínum og hversu mikið það vill vera í brekk­unum.“

Íslenskir far­ar­stjórar, sem eru líka lærðir jóga­kenn­arar, eru með í för og veita leið­sögn og jóga­kennslu. Einnig er farið í „ashram“ eða jóga­stöðvar þar sem ind­verskir gúrúar leið­beina ferða­mönnum og gera þeim kleift að kom­ast upp á næsta stig í sinni iðkun.

Skemmti­leg sveifla
Hér á landi eru margir góðir golf­vellir sem eru nýttir allt árið um kring. Golfarar sækj­ast þó einnig mikið í að fara til útlanda og prófa nýja og meira krefj­andi golf­velli.

Ferða­skrif­stofur hafa lengi boðið upp á ferðir til­eink­aðar golfi til áfanga­staða bæði nær og fjær, frá Mexíkó til Spánar.

Ferða­skrif­stofur hafa lengi boðið upp á ferðir til­eink­aðar golfi til áfanga­staða bæði nær og fjær, frá Mexíkó til Spánar. Ekki skemmir fyrir að í þeim löndum sem boðið er upp á er oft mun betra veður en hér á landi og því er hægt að spila eins og mann lystir.

Holt og hæðir
Vinsælt hefur verið fyrir úti­vi­star­fólk, sem er oft og tíðum búið að fara flestar af vin­sæl­ustu göngu­leiðum lands­ins, að halda í ferðir til útlanda sem helg­aðar eru göngu­ferðum. Slíkar ferðir eru frá­bært tæki­færi til að kynn­ast ákveðnum svæðum mjög vel. Vinsælir staðir eru til dæmis Alparnir, fjöllin í Andalúsíu á Spáni, Toscana-dal­ur­inn á Ítalíu og Kletta­fjöllin í Kanada.

Ekki er endi­lega um að ræða erf­iðar göngur en þær krefj­ast engu að síður nokk­urs þols því yfir­leitt er gengið allan dag­inn, alla daga.

Flestar ferða­skrif­stofur flokka ferðir eftir erf­ið­leika­stigum, þar sem tekið er til­lit til þols, þess tíma sem ganga tekur, hækk­unar og lækk­unar, eðli gönguslóð­anna og svo fram­vegis, því ættu allir að geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu