Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Músur sem mótuðu tískuna

Ekki er óal­gengt að lista­menn eigi sér músur sem þeir sækja anda­gift sína í.

Músur sem mótuðu tískuna
Stella segir að fatasmekkur for­eldra sinna hafi verið henni inn­blástur.

Fata­hönn­uðir eiga sér oftar en ekki fleiri en eina músu; sumar hafa tíma­bundin áhrif og veita inn­blástur að ákveð­inni vöru­línu eða tísku­sýn­ingu á meðan aðrar rista dýpra og hafa mótað hönn­uð­ina og sýn þeirra á tísku.

Samkvæmt Tom Ford er allt tísku­vit hans sprottið frá þeim tíma sem hann varði með hönn­uð­inum Halston þá aðeins sautján ára.

Tom Ford
Tán­ings­árin eru mjög mót­andi tími og það á ekki síst við um Tom Ford. Samkvæmt honum er allt tísku­vit hans sprottið frá þeim tíma sem hann varði með hönn­uð­inum Halston þá aðeins sautján ára.

Halston klæddi allt fína og fræga fólkið á þessum tíma, Lizu Minnelli, Elizabeth Taylor og Angelicu Houston.

„Ég var eins og svampur og saug þetta í mig og mikið af upp­lif­unum mínum frá þessum tíma hafa mótað fag­ur­fræði mína.“

„Ég fór kvöld eitt fullur heim til Halstons og hann eld­aði egg handa okkur. Á þessum árum kynnt­ist ég fólki, eins og Biöncu Jagger, sem ég þekki enn í dag og það segir stundum: „Bíddu hvenær kynnt­ist ég þér fyrst?“ Ég var bara sautján ára krakki sem var með vini þeirra.

Ég var eins og svampur og saug þetta í mig og mikið af upp­lif­unum mínum frá þessum tíma hafa mótað fag­ur­fræði mína.“

Rachele Regini er helsti inn­blástur móður sinnar Mariu Grazia Chiuri, list­ræns stjórn­anda Dior.

Maria Grazia Chiuri

Listrænn stjórn­andi Dior, Maria Grazia Chiuri, fetar óhrædd í fót­spor heims­frægra hönn­uða. Það kemur því ef til vill ein­hverjum á óvart að sú sem veitir henni helst inn­blástur er tví­tug dóttir hennar, Rachele Regini. „Að sjálf­sögðu er hún músan mín. Ég elska tísku af öllu hjarta og ég veit nákvæm­lega hvað ég vil fá út úr henni fyrir sjálfa mig. En ef ég á að vera alveg hrein­skilin þá hugsa ég nær aldrei um sjálfa mig í hönnun minni, þú verður að hlusta á hvað yngri kyn­slóðin vill. Stundum eru það því börnin sem kenna móð­ur­inni.“

Karl Lagerfeld

Það eru ekki aðeins lif­andi ein­stak­lingar sem eru hönn­uðum músur. Einn fræg­asti fata­hönn­uður sam­tím­ans, Karl Lag­er­feld, list­rænn stjórn­andi hjá Chanel og Fendi, sækir enn inn­blástur í fyrrum unnusta sinn, Jacques De Bascher, sem lést árið 1989 aðeins þrjá­tíu og sjö ára. „Ég er mik­ill fjöl­skyldu­maður en hann var eins og fjöl­skylda án þeirra skyldna sem fylgja fjöl­skyldum. Hann hleypti birtu inn í líf mitt á hátt sem engum hefur tek­ist síðan. Kannski er bara ein slík mann­eskja á mann og svo ekki meir.“

Ævilöng vin­átta Huberts de Givenchy og Audrey Hepburn er vel þekkt innan tísku­brans­ans. A

Hubert de Givenchy

Ævilöng vin­átta Huberts de Givenchy og Audrey Hepburn er vel þekkt innan tísku­brans­ans. Audrey Hepburn sagði að fötin hans væru þau einu sem henni liði sem sér sjálfri í. Hubert De Givenchy hann­aði eina fræg­ustu flík kvik­mynda­sög­unnar á Audrey, eða svarta kjól­inn sem hún klædd­ist í Break­fast at Tiffany’s. „Ég kann best við per­sónu­leika hennar og sjarma. Stíll hennar skín í gegn í kvik­myndum og í þeim fötum sem hún klæð­ist. Hún er ein­stök,“ sagði hann. Enn þann dag í dag sækir tísku­húsið fræga inn­blástur í Audrey.

Móðir Alessandro Michele er helsti inn­blást­ur­inn í hönnun hans.

Alessandro Michele

Mömmur eru bestar og það veit Alessandro Michele, list­rænn stjórn­anadi Gucci, vel. Móðir hans er helsti inn­blást­ur­inn í hönnun hans og hann lýsir henni sem algjör­lega klikk­aðri kerl­ingu sem lifir í stæl­legum heimi. „Okkur vantar fleiri sér­vitr­inga eins og hana svo ég hef hannað vöru­línur mínar og tísku­sýn­ingar með til­liti til ein­tak­lings­ins. Hvernig þú klæðir þig segir heil­mikið um það hvernig þér líður, hvernig þú lifir líf­inu, hvað þú lest og gildi þín. Það er einmitt það sem ég vildi koma inn hjá Gucci.“

„Hvernig þú klæðir þig segir heil­mikið um það hvernig þér líður, hvernig þú lifir líf­inu, hvað þú lest og gildi þín. Það er einmitt það sem ég vildi koma inn hjá Gucci.“
Stella segir að fatasmekkur for­eldra sinna hafi verið henni inn­blástur.

Stella McCartney

Sjaldan fellur eplið langt frá eik­inni segir mál­tækið en þó að for­eldrar Stellu McCartney, tón­list­ar­fólkið Paul og Linda McCartney, hafi svo sann­ar­lega verið hæfi­leik­a­ríkir og skap­andi þá var fatasmekkur þeirra ekk­ert til að hrópa húrra fyrir. Stella segir þó að það hafi einmitt verið henni inn­blástur. „For­eldrar mínir höfðu lít­inn áhuga á tísku sem gerði það að verkum að stíll þeirra var aldrei útpældur né ofhugs­aður. Það var þeim svo eðl­is­lægt að blanda saman nýju og gömlu, glamúr og klassík. Þau höfðu ómeð­vitað mikil áhrif á mig og vöru­merki mitt, mig lang­aði að gera eitt­hvað meira og stærra en bara að hanna fal­lega kjóla og sýna þá á tískupöll­unum.“

Höfundur / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu