Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Geymilegar gersemar

Ýmsar ger­semar leyn­ast í geymslum lands­ins og það á ekki síst við um geymslur Hönn­un­ar­safns Íslands.

Geymilegar gersemar
29. tbl. 2017, Geymi­legir hlutir, hönnun, Hönn­un­ar­safn Íslands, nytja­munir, sýn­ing, VI1707193911, vikan

Sýningin Geymi­legir hlutir hefur staðið yfir frá árinu 2015. Þar má sjá sýn­is­horn af þeim fjögur þús­und munum sem eru í saf­n­eign­inni, en sýn­ingin er einmitt hönnuð með það fyrir augum að auð­velt sé að skipta hlutum út og setja nýja inn.

Sýningin Geymi­legir hlutir hefur staðið yfir frá árinu 2015. Þar má sjá sýn­is­horn af þeim fjögur þús­und munum sem eru í saf­n­eign­inni. Hér er Fund­ar­stóll eftir Gunnar H. Guð­munds­son, húsa­meist­ara Reykja­víkur, úr fund­ar­sal borg­ar­stjórnar Reykja­víkur að Skúla­túni 2. Einn af þremur mis­háum stólum úr sömu seríu sem safnið varð­veitir. Þessir stólar eru enn í notkun hjá Reykja­vík­ur­borg.

Aðdrag­and­inn að stofnun Hönn­un­ar­safns Íslands var all­nokkur en umræð­una um nauð­syn á slíku safni má rekja aftur til árs­ins 1992 þegar félagið Form Ísland setti saman hóp með full­trúum hönn­uða, mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins, Lista­safns Íslands, Þjóð­minja­safns Íslands og Reykja­vík­ur­borgar um slíkt safn. Í fram­hald­inu var þeim til­mælum beint til mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins að skipa nefnd er mæti með hvaða hætti stofna mætti safn er sinnti list­iðn­aði.

Í byrjun árs 1997 var nið­ur­staða þeirra nefndar að mikil þörf væri á safni er sinnti list­hand­verki og iðn­hönnun. Árið 1998 gerðu því mennta­mála­ráðu­neytið og Garðabær sam­komu­lag um að reka í sam­ein­ingu íslenskt hönn­un­ar­safn er safn­aði og sýndi list­iðnað.

Fyrst um sinn var safnið deild í Þjóð­minja­safni Íslands en með nýjum samn­ingi við mennta­mála­ráðu­neytið árið 2006 tók Garðabær við rekstri Hönn­un­ar­safns Íslands og starfar safnið sem stofnun á vegum bæj­ar­fé­lags­ins. Þá hafði safnið til afnota lít­inn sal við Garða­torg þar sem haldnar voru nokkrar sýn­ingar á ári en skrif­stofu og varð­veislu­rými var að finna á öðrum stað.

Árið 2009 var safn­inu val­inn staður við Garða­torg 1 og flutt­ist öll starf­semi safns­ins þangað þegar reglu­bundið sýn­inga­hald safns­ins hófst í maí 2010.

Safneign safns­ins stækkar jafnt og þétt og telur nú um fjögur þús­und gripi.

Í dag starfa á safn­inu for­stöðu­maður og sér­fræð­ingur ásamt gæslu- og afgreiðslu­fólki. Nýbúið er að útbúa sýn­ing­ar­rými í and­dyri safns­ins þar sem verða settar upp minni sýn­ingar á verkum eða verk­efnum hönn­uða.

Gripir safns­ins falla í eft­ir­far­andi flokka: hús­gagna­hönnun, graf­ísk hönnun, arki­tektúr, fata­hönnun, vöru- og iðn­hönnun, textíl­hönnun, skart­gripa­hönnun, gull- og silf­ur­smíði, keramík og gler­l­ist.

Safneign safns­ins stækkar jafnt og þétt og telur nú um fjögur þús­und gripi. Safnið kaupir reglu­lega inn gripi í saf­n­eign­ina en einnig berst tölu­vert af gjöfum til þess. Það er safn­inu mik­ils virði að fólk hugsi til þess, hvort sem það vill gefa eða fá hjálp við að greina hluti í sinni eigu.

Sífellt meiri fróðleikur um hönnunarsögu Íslendinga

Nýir gripir sem koma í safnið á hverju ári leggja grunn að efni til rann­sókna og þeir eru í sjálfu sér vitn­is­burður á hverjum tíma um það sem sér­fræð­ingar álíta æski­legt að sé varð­veitt í safni. Gildi þeirra hluta sem koma til safns­ins breyt­ist, merk­ing getur orðið önnur – og jafn­vel meiri.

Und­an­farin ár hafa safn­inu borist nokkrar stórar gjafir sem styrkja saf­n­eign þess mjög. Má þar nefna gjöf frá graf­íska hönn­uð­inum Gísla B. Björns­syni á munum frá ævi­starfi hans. Gjöf frá Einari Þor­steini Ásgeirs­syni arki­tekt á gripum sem tengj­ast vinnu hans og nú síð­ast gjöf frá Bláa lón­inu á stóru keramíksafni sem hefur að geyma afar gott yfir­lit yfir íslenska leir­lista­sögu.

Eitt af hlut­verkum Hönn­un­ar­safns Íslands er að stuðla að rann­sóknum á íslenskri hönn­un­ar­sögu. Með stækk­andi saf­n­eign safn­ast sífellt inn meiri fróð­leikur um hönn­un­ar­sögu Íslend­inga.

Safnið hefur fengið hrós fyrir það að hafa örlítið aðra hug­sjón en önnur hönn­un­ar­söfn erlendis, það er, á safn­inu er að finna bæði hvers­dags­lega og hástemda hönnun. Þannig má glöggt sjá hvernig íslensk hönnun hefur haft áhrif á heim­ili, sam­fé­lag og menn­ingu þjóð­ar­innar – og öfugt.

Breidd saf­n­eign­ar­innar er greini­leg á sýn­ingu safns­ins Geymi­legir hlutir sem nú er í gangi.

Þar eru til sýnis nokkrir af þeim úrvals­munum sem safnið varð­veitir af ýmsum ástæðum – sem dæmi má nefna Don Cano-krumpugalla og fal­legt Max-sófa­sett. Lýs­ing­ar­orðið geymi­legur er lítt þekkt í dag. En gömul merk­ing orðs­ins var sett í sam­hengi við gjaf­mildi og stór­hug, eins og vitnað er um í tíma­rit­inu Skírni árið 1913 á eft­ir­far­andi hátt: „… þá verður sá tal­inn mestur er mest gaf af geymi­legum hlutum,“ en í þess­ari setn­ingu liggur einmitt kjarn­inn í starf­semi Hönn­un­ar­safns­ins.

Höfundur / Hildur Frið­riks­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu