Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þær breyttu til batnaðar

Eft­ir­taldir fata­hönn­uðir og kven­skör­ungar hristu upp í úreldum hefðum og höfðu mikil áhrif á það hvernig við klæðum okkur í dag.

Þær breyttu til batnaðar
LONDON, ENGLAND – FEBRUARY 21: Dame Vivienne Westwood watches rehe­ar­sals ahead of her show during London Fashion Week Autumn/Winter 2016/17 at Royal College of Surgeons on February 21, 2016 in London, England. (Photo by John Phillips/Getty Images)

Mary Quant

Mary Quant kynnti meðal ann­ars til sög­unnar mínipilsið sem breytti því hvernig konur klædd­ust til fram­búðar.

Það varð mikil bylt­ing í tísk­unni þegar fata­hönn­uð­ur­inn Mary Quant mætti á svæðið á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar. Hún kynnti meðal ann­ars til sög­unnar mínipilsið sem breytti því hvernig konur klædd­ust til fram­búðar. Á þessum árum varð önnur bylgja fem­inískra hreyf­inga til og konur upp­lifðu kyn­ferð­is­legt frelsi með komu getn­að­ar­varn­arpill­unnar á markað. Það var engu lík­ara en þær vant­aði áþreif­an­lega tákn­mynd í stíl við vax­andi frelsið.

Það tóku ekki allir vel í þessar breyt­ingar á klæða­burði kvenna en í ævi­sögu Mary Quant minn­ist hún þess að upp­á­klæddir eldri karl­menn hafi barið regn­hlífum sínum harka­lega í glugg­ana á fyrstu búð hennar og öskrað ókvæð­is­orð á borð við: „sið­laust!“ og „ógeðs­legt!“.

… í ævi­sögu Mary Quant minn­ist hún þess að upp­á­klæddir eldri karl­menn hafi barið regn­hlífum sínum harka­lega í glugg­ana á fyrstu búð hennar og öskrað ókvæð­is­orð á borð við: „sið­laust!“ og „ógeðs­legt!“

En Mary hélt ótrauð áfram að breyta tísku­heim­inum með því að hrista upp í íhalds­sömum hefðum. Hún hjálp­aði konum að tjá sig og gaf þeim það sem þær sótt­ust eftir: upp­reisn. Mínipilsið var tákn­mynd upp­reisnar gegn gömul hefðum og stóð fyrir kyn­þokka og kyn­líf og að klæð­ast því var pott­þétt leið til þess að pirra íhalds­sama for­eld­rana.

Áður var ætl­ast til þess að stúlkur líktu eftir klæða­burði mæðra sinna en femínista­hreyf­ing­arnar gáfu skít í þá hug­mynda­fræði. Mary gerði sér grein fyrir því að mínipilsat­ískan átti upp­tök sín í götu­tísk­unni og við­skipta­vinir hennar gerðu kröfur um æ styttri pils og þannig hjálp­aði hún til við að frelsa konur á sjö­unda ára­tug­inum undan úreltum hefðum og gömlum gildum.

Vivienne Westwood

Það varð mikil breyt­ing á lands­lagi tísk­unnar á átt­unda ára­tugnum, þegar glimmer og glamrokk sixtís-tím­ans rann sitt skeið þar sem David Bowie og Bítl­arnir voru helstu tísku­fyr­ir­mynd­irnar. Í miðjum umsvipt­ing­unum var breski fata­hönn­uð­ur­inn Vivienne Westwood.

Hún byrj­aði fer­il­inn með því að reka versl­un­ina SEX með kærasta sínum en þau hönn­uðu rennilása, pinna, nælur og arm­bönd með póli­tískum skila­boðum.

Hún byrj­aði fer­il­inn með því að reka versl­un­ina SEX með kærasta sínum en þau hönn­uðu rennilása, pinna, nælur og arm­bönd með póli­tískum skila­boðum.

Seint á átt­unda ára­tugnum varð pönk­tón­list leið breskra ung­menna til þess að fá útrás og tjá reiði sína gegn stjórn­völdum. Tvær millj­ónir atvinnu­lausra fékk meðal ann­ars útrás í gegnum pönkið og með því að klippa og næla saman skota­pilsið, sem var gjarnan notað sem tákn­mynd drottn­ing­ar­innar.

Vivienne var rétt kona á réttum stað og gaf anar­kist­unum rödd innan hátísk­unnar. Hún bland­aði köfl­óttu skota­mynstri saman við gadd­aðar hunda­ólar, skreytti allskyns fatnað með örygg­is­nælum og gerði hátísku­vöru úr kyn­lífs­klæðn­aði.

Diane Von Furstenberg

Diane Von Fursten­berg er við­skipta­mó­gull í sinni tær­ustu mynd. Ekki nóg með að sam­kvæmt Forbes er hún ein allra rík­asta kona Banda­ríkj­anna með til­liti til tekna heldur náði hún heldur betur að snúa vörn í sókn þegar fyr­ir­tæki hennar átti í erf­ið­leikum á níunda ára­tugnum og kom enn sterk­ari inn á markað aftur með sívin­sælu bundnu kjól­ana sína sem hún sló upp­runa­lega í gegn með á átt­unda ára­tugnum.

Saga Diane er einkar merki­leg því hún hefur aldrei í raun þurft að vinna. Hún kynnt­ist eig­in­manni sínum, prins­inum Egon von Fursten­berg í háskóla­fríi í sviss­nesku Ölpunum og stuttu síðar giftu þau sig.

Diane var þó alltaf stað­ráðin í að gera meira en að njóta lífs­ins lystisemda í boði eig­in­manns­ins og hefur löngum sagt að það sé henni einna mik­il­væg­ast í líf­inu að skapa sínar eigin tekjur.

Og það gerði hún heldur betur. Bundni kjóll­inn hennar varð óend­an­lega vin­sæll. Árið 1975 fram­leiddi hún 15.000 kjóla á viku og hönn­un­inni klædd­ust hinar ólík­ustu konur á borð við Betty Ford og Gloriu Steinem.

Diane Von Fursten­berg er við­skipta­mó­gull í sinni tær­ustu mynd.
Kjóllinn varð flíkin sem gerði allt fyrir kon­una sem reyndi að gera allt, svipað og konan sem stóð á bak við hönnun hans.

Og ástæðan fyrir vin­sæld­unum var óneit­an­lega vegna þess að í honum leið konum eins og þær lang­aði að líða í miðri kyn­lífs­bylt­ingu: kyn­þokka­fullum og óheftum og kjóll­inn varð tákn­mynd fyrir frelsi kvenna á þessum tíma.

Bundni kjóll­inn hennar Diane hent­aði vel sem vinnu­klæðn­aður þar sem hann var bund­inn þétt upp við lík­amann en böndin voru leyst eftir vinnu til að mæta á diskó­tekið og ef til­efni gafst til var auð­velt að leysa hann með einu hand­taki seinna um kvöldið.

Kjóllinn varð flíkin sem gerði allt fyrir kon­una sem reyndi að gera allt, svipað og konan sem stóð á bak við hönnun hans. Hönnun Diane nýtur enn mik­illa vin­sælda í dag enda erfitt að finna klass­ísk­ari hönnun sem hægt er að klæð­ast við hin ýmsu til­efni.

Donna Karan

Á níunda ára­tugnum, þegar konur kepptu við karla upp met­orða­stig­ann í við­skipta­líf­inu varð vöntun á fatn­aði sem und­ir­strik­aði metn­að­inn og stöðu þeirra á vinnu­mark­aði. Árið 1984 kom á markað frá Donnu Karen fata­lína sem bar nafnið Seven Easy Pieces, fatn­aður sem konur gátu klæðst og liðið í senn bæði kven­lega og fag­mann­lega á vinnu­staðnum.

Donna Karan lagði áherslu á nokkrar ein­faldar flíkur sem hægt var að blanda saman að vild; sam­fellur, stutt­erma­bolir og hné­síð pils urðu bestu vinir hinnar vinn­andi konu. Karan varð sjálf tákn­mynd fyrir þá konu.

Donna Karan kvart­aði undan því að það eina sem var í boði áður en hún kom til sög­unnar var að klæð­ast karl­mann­legum drögtum eða allt of fín­legum kjólum sem hent­uðu ekki þeim sem voru úti á vinnu­mark­aðnum. Konur klædd­ust nokkurn veg­inn eins og karl­menn og það vant­aði allan kven­legan þokka.

Fata­línan hennar sendi öflug skila­boð og und­ir­strik­aði kon­una sem klædd­ist þeim en reyndi ekki að líkja eftir klæðn­aði manns­ins sem hún þurfti að standa uppi í hár­inu á á skrif­stof­unni.

Í fyrsta sinn í sög­unni var hægt að fá fatnað fyrir konur sem lét þær ekki líta út fyrir að vera karl­kyns og gerði heldur ekki lítið úr þeim með syk­ur­sætri hönnun. Hún fyllti upp í plássið sem vant­aði á milli rönd­óttu jakka­fatanna og pífupilsa.

Fata­línan hennar sendi öflug skila­boð og und­ir­strik­aði kon­una sem klædd­ist þeim en reyndi ekki að líkja eftir klæðn­aði manns­ins sem hún þurfti að standa uppi í hár­inu á á skrif­stof­unni.

Donna Karan lagði áherslu á nokkrar ein­faldar flíkur sem hægt var að blanda saman að vild; sam­fellur, stutt­erma­bolir og hné­síð pils urðu bestu vinir hinnar vinn­andi konu. Karan varð sjálf tákn­mynd fyrir þá konu og bar ein­falda og þægi­lega hönnun sína ein­stak­lega vel. Ólíkt því sem þekkt­ist hjá yngri kyn­slóð­inni á þessum árum þá ein­beitti Donna sér að því að hanna ein­faldar flíkur úr þægi­legum efnum en konur flykkt­ust í versl­anir hennar og tóku vel í nútíma­lega hönn­un­ina og Donna varð ókrýnd drottn­ing Sjöundu Breið­götu.

Höfundur / Helga Krist­jáns

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu