Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Borg með stórt hjarta

Guðrún Ósk Sig­urð­ar­dóttir flutti á sínum tíma til Torino á Ítalíu til að vera au pair en ílengd­ist í nokkur ár en ákvað að koma aftur heim eftir að hún eign­að­ist elstu dóttur sína.

Borg með stórt hjarta

Guðrún segir að helstu kostir Ítalíu séu mat­ar­menn­ingin og sólin ásamt því sem lífs­gæða­kapp­hlaup Ítala sé af öðrum toga en Íslend­inga.

„Ég vann meðal ann­ars á kaffi- og veit­inga­húsum, fór í ferða­mála­skóla, vann á ferða­skrif­stofu og próf­aði að vera leið­sögu­maður,“ segir Guðrún sem starfar nú við bók­hald hér á Íslandi og á þrjár dætur. „Einnig vann ég við hina árlegu bóka­sýn­ingu sem haldin er í Torino þar sem saman koma bóka­út­gef­endur og rit­höf­undar. Endaði samt í veit­inga­húsa­rekstri áður en ég kom aftur heim ásamt elstu stelp­unni minni. Eftir að hún kom í heim­inn tog­aði Ísland í mig aftur og vildi ég að hún myndi kynn­ast fjöl­skyld­unni hérna heima og upp­lifa það „frelsi“ sem íslensk börn alast upp við. Kostir við Ítalíu eru að mínu mati mat­ar­menn­ingin og sólin. Lífs­gæða­kapp­hlaup Ítala er öðru­vísi en Íslend­inga og maður lærir mikla þol­in­mæði.“

Bogagöng Torino var fyrsta höf­uð­borg sam­eig­in­legrar Ítalíu árið 1861. Þar eru mjög margar fal­legar sögu­frægar bygg­ingar sem fáir vita af, heilu hall­irnar sem vert er að skoða. Eitt ein­kenni borg­ar­innar eru yfir 18 kíló­metra löng boga­göng sem liggja um bæinn og gera göngut­úrana þægi­legri, ekki síst sem skjól fyrir sól­inni. Annað sem ein­kennir borg­ina eru breið­göt­urnar prýddar háum og tign­ar­legum trjám. Hönnunin er eldri en á sams­konar götum í Par­ís­ar­borg. Torino er einna fræg­ust fyrir FIAT-verk­smiðj­urnar.

„Lífs­gæða­kapp­hlaup Ítala er öðru­vísi en Íslend­inga og maður lærir mikla þol­in­mæði.“

Einstakt útsýni Ég mæli fyrst af öllu með því að fara og skoða hina fal­legu kirkju Basilica di Superga sem stendur hátt yfir Torino. Þaðan er ein­stakt útsýni yfir alla borg­ina. Páfinn Pio XII sagði þetta fal­leg­asta útsýni Evrópu. Kirkjan er byggð í barokkstíl af Filippo Juvarra og var lokið við hana 1731. Innan í henni er marmari frá Carrara og er hún bara ólýs­an­lega fal­leg að innan sem utan.

Kon­ungs­höll Í hjarta borg­ar­innar, Piazza Palazzo, má sjá hina fögru kon­ungs­höll Palazzo Reale þar sem Carlo Emanuele I bjó. Þar er einnig Palazzo Madama, sem er á heimsminja­skrá UNESCO. Þar bjó Maria Cristina af Savoya-ætt Frakk­lands og lét hún fegra hana að utan og innan. Nú í dag er þar Civic Museum of Ancient Art sem er alveg þess virði að skoða.

Líkklæði Jesú Stutt frá kon­ungs­höll­inni er sér­stök kapella frá árinu 1694 sem var byggð til að geyma lík­klæði Jesú. Það er lakið sem Jesús var settur á þegar hann var tek­inn niður af kross­inum og lagður í hell­inn. Eru þessi klæði auð­vitað mjög umdeild og miklar rann­sóknir hafa verið gerðir á klæð­inu sem ber merki manns sem hefur verið kross­festur. Lakið barst til Torino 1562. Myndin er eins og nega­tíva af ljós­mynd og þykir auð­vitað krafta­verk, hvort sem þetta hafi verið Kristur sjálfur eða ekki. Myndin sem birt­ist af and­liti manns­ins er það „and­lit“ sem við þekkjum af Jesú, skeggj­aður maður með sítt hár. Það er mjög sjaldan til sýnis fyrir almenn­ing en ég var svo heppin að fá að berja það augum árið 2000 í sér­stakri alda­móta­sýn­ingu. Mæli hik­laust með að hafa það í huga ef farið er til Torino.

Söfn og sam­tíma­list Annað mjög frægt safn í Torino er Egypska safnið sem er stærsta egypska safn í heimi, fyrir utan það sem er í sjálfri Kaíró. Þeir sem elska söfn mega ekki missa af þessu sem geymir yfir 8.000 hluti: styttur, pap­írus, múm­íur, leir­muni, mat, áhöld, spegla, skart og snyrti­vörur Egypta svo eitt­hvað sé nefnt.
Torino geymir líka nútíma­legri list, eins og húsið með lásnum. Það lista­verk er kallað Baci Rubati og er eftir arki­tekt­inn Corrado Levi. Það hangir risa­lás utan á hús­inu sem var settur upp 1996 og átti aðeins að vera tíma­bundið. Mjög sér­stakt er að ganga eina af elstu götum borg­ar­innar, ekki í alfara­leið, og reka augun í lás­inn.

Markaðir Eitt af því skemmti­leg­asta sem ég gerði í Torino var að þræða mark­að­ina sem eru þar út um allt. Sá fræg­asti er við Porta Palazzo og er stærsti úti­mark­aður Evrópu. Hægt er að finna nán­ast allt á úti­mörk­uð­unum en nauð­syn­legt að vita hvar þeir eru því þeir flakka á milli borg­ar­hluta. Sumir eru aðeins með mat, aðrir með antík og enn aðrir með tísku­vörur og skó, hús­gögn, bækur, nýtt og notað. Þar gerði ég alltaf hag­stæð kaup. Upp­á­halds­mark­að­ur­inn minn er í Crocetta á sunnu­dögum frá 8.30-18.45. Þar er allt sem maður gæti girnst: mat­vara, tísku­fatn­aður, skór, skart, list­munir, metra­vara, antík og margt fleira. Fyrir þá sem finn­ast gaman af marköðum mæli ég sér­stak­lega með þessum.

Eitt sinn hæst í Evrópu Síðast en ekki síst er tákn borg­ar­innar, la Mole Ant­on­elli­ana, sem er 167, 5 metra bygg­ing með turni. Þessi bygg­ing var á sínum tíma hæst í Evrópu og þótti mjög mikið afrek. Byrjað var á henni 1863 og árið 1889 varð hún 167,35 metra há. Ásamt stjörn­unni sem nú trónir á toppnum er hún 167,5 metrar. Úr turn­inum er flott útsýni yfir einn af elstu hlutum borg­ar­innar. Í dag hýsir bygg­ingin safnið Museo Nazionale del Cinema sem geymir sögu kvik­mynd­ar­innar og ýmsa hluti tengda henni.

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu