Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leggja hjarta og sál í starfsemina

Pink Iceland er ferða­skrif­stofa sem sér­hæfir sig í skipu­lagn­ingu ferða-, við­burða- og brúð­kaupa fyrir hinsegin gesti.

Leggja hjarta og sál í starfsemina

En tekið er vel á móti öllum svo lengi sem þeir eru ekki for­dóma­fullir.

Eig­end­urnir Eva María, t.h., og Birna Hrönn en Hannes Páll var vant við­lát­inn. Mynd/Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Hug­myndin að fyr­ir­tæk­inu kvikn­aði fyrir all­nokkrum árum hjá Evu Maríu Þór­ar­ins­dóttur Lange sem er eig­andi þess ásamt Birnu Hrönn Björns­dóttur og Hannesi Páli Pálssyni. „Ég hafði lengi haft þann draum að koma á lagg­irnar þjón­ustu fyrir hinsegin ferða­menn. Ástæðan var aðal­lega sú að hinsegin ferða­menn verða oft fyrir hindr­unum á ferða­lögum sínu, óþæg­indum, for­dómum og jafn­vel ofbeldi. Með Pink Iceland er mark­miðið að bjóða upp á þjón­ustu­við­mót þar sem hinsegin gestum land­ins líður vel og geta ferð­ast frjálsir.

Ég stofn­aði fyr­ir­tækið árið 2011 þegar ég stund­aði nám í ferða­mála­fræði við Háskóla Íslands og tók þátt í frum­kvöðla­keppn­inni Gul­legg­inu. Ég fann strax að mig lang­aði ekki vera ein á þessu ferða­lagi sem var að stofna nýtt fyr­ir­tæki svo að unnusta mín Birna Hrönn hopp­aði um borð í lest­ina. Skömmu síðar bætt­ist vinur okkar Hannes Páll við í eig­enda­hóp­inn og við fundum strax að við höfðum öll þrjú sömu ástríðu fyrir mál­efn­inu og vildum byggja upp fal­legt fyr­ir­tæki saman,“ segir Eva María sem er fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins.

Pink Iceland er að sögn Evu Maríu 21. aldar ferða­skrif­stofa sem sér­hæfir sig í skipu­lagn­ingu ferða-, við­burða- og brúð­kaupa fyrir hinsegin gesti. Eva er eig­andi, ferða- og brúð­kaups­skipu­leggj­andi, ásamt þeim Birnu Hrönn og Hannesi Páli. Birna er að auki mark­aðs­stjóri staf­rænnar mark­aðs­setn­ingar og Hannes er einnig hönn­uður og mark­aðs­stjóri.

„Þó að áherslur og mark­aðs­setn­ing bein­ist aðal­lega að þjón­ustu fyrir hinsegin gesti tökum við vel á móti öllum góðum gestum, svo lengi sem þeir eru ekki for­dóma­fullir. Það er mik­ill munur á okkar fyr­ir­tæki og ferða­skrif­stofu­form­inu sem fólk þekkir frá því áður en Inter­netið og bók­un­ar­síður urðu helstu tæki og tól ferða­langa til að skipu­leggja fríin sín.

„Við segjum stundum að það megi líkja okkur við kaup­mann­inn á horn­inu, það er kannski aðeins dýr­ara en alltaf jafn­nota­legt þegar manni er heilsað eins og gömlum vini og er þjón­u­staður í sam­ræmi við það.“

Þessi munur liggur kannski einna helst í því að við þurfum að keppa í verðum við risa­vaxnar alþjóð­legar bók­un­ar­vélar en veita á sama tíma per­sónu­lega þjón­ustu og hanna hágæða­upp­lifun fyrir gest­ina okkar. Við segjum stundum að það megi líkja okkur við kaup­mann­inn á horn­inu, það er kannski aðeins dýr­ara en alltaf jafn­nota­legt þegar manni er heilsað eins og gömlum og vini og er þjón­u­staður í sam­ræmi við það. Gestir okkar eru nær allir erlendir enda er þjón­usta okkar miðuð að þeirra þörfum.“

Náttúran aðdráttarafl

Brúð­kaups­þjón­usta Pink Iceland er fjöl­þætt og starfs­fólkið aðstoðar til­von­andi hjón með allt sem við­kemur því að gift­ast og upp­lifa Ísland. „Verk­efnin eru ótal­mörg og mis­mun­andi og það verða til fjöl­mörg dags­verk við skipu­lagn­ingu hinna ein­föld­ustu brúð­kaupa. Við vinnum náið með til dæmis ljós­mynd­urum, stílistum, athafna­stjórum, leið­sögu­fólki, prestum, land­eig­endum, veit­inga­fólki, tón­list­ar­fólki og opin­berum stofn­unum. Þegar brúð­kaups­gestir koma til land­ins þá vilja þeir líka ferð­ast og því tvinn­ast brúð­kaups- og ferða­skipu­lagn­ingin gjarnan saman.

Mynd / Pink Iceland

Mikill meiri­hluti okkar gesta er frá Banda­ríkj­unum. Náttúra lands­ins er aðal aðdrátt­ar­aflið fyrir ferða­lögum fólks til Íslands og það sama á við með brúð­kaup. Ísland verður því oft fyrir val­inu þegar pör eru að leita að fal­legum nátt­úru­legum stöðum til þess að láta gefa sig saman enda fara 90% okkar athafna fram utandyra.

Okkar þjón­usta er ein­stök því hún er sér­sniðin að ákveðnum hópi ferða­manna, þ.e. hinsegin ferða­mönnum. Við til­heyrum sjálf þessum hópi og þekkjum hann vel. Við höfum svo til­einkað okkur ákveðna stefnu sem er það að vera hrein­skilin við okkar gesti, erum með svo­kall­aða „honesty policy“ þar sem við segjum hvernig við­skipta­mód­elið okkar virkar og það kann fólk að meta. Við höfum stundum talað um að við séum með ágætis „síu“ því að það kemur mjög skýrt fram hvað við stöndum fyrir og þá fáum við oft­ast ekki til okkar gesti sem eru með for­dóma. Gestir okkar ganga iðu­lega í takt við þá lífs­sýn sem við, sem störfum hjá fyr­ir­tæk­inu, höfum.“

Mikilvægt að lesa í aðstæður

Eva segir starfið mjög gef­andi og þakk­lætið sé þar efst á blaði. „Það er ómet­an­legt að finna þakk­lætið hjá fólki þegar allt er yfir­staðið. Sem brúð­kaups­skipu­leggj­andi myndar maður náin tengsl við brúð­hjón, vini þeirra og ætt­ingja sem gerir allt ferlið svo gef­andi. Í dag eigum við vini út um allan heim. Það er ótrú­lega dýr­mætt. Skemmti­leg­ast er að upp­lifa stóra dag­inn með fólki. Sjá allt smella saman, upp­lifa gleð­ina og allar til­finn­ing­arnar hjá gestum. Það er líka gaman að fá að vinna með fólki sem kann að meta þegar maður gefur sig allan í það að búa til einn mik­il­væg­asta dag í lífi þess.

Hafþór Ósk­ars­son, ferða- og brúð­kaups­skipu­leggj­andi, og Sigríður Páls­dóttir brúð­kaups­skipu­leggj­andi.

Veðrið getur oft verið mikil áskorun en við reynum þó að líta á það meira sem ævin­týri sem kryddar dag­inn. Það getur verið erfitt að þurfa að breyta dag­skrá dags­ins vegna veð­urs eftir að hafa skipu­lagt dag­inn í heilt ár eða lengur. Sem betur fer gerir fólk sér nú yfir­leitt grein fyrir því að það er allra veðra von á Íslandi og kippir sér ekki upp við óvæntan snjóstorm eða smá­vegis rign­ingu. Það eru einna helst Íslend­ing­arnir sem signa sig þegar þykkir upp og verða með­virkir með íslenskri veðr­áttu. Ætt­ingjar brúð­hjóna geta líka verið erf­iðir á köflum og þá þarf brúð­kaups­skipu­leggj­andi að takast á við þá til þess að létta undir með brúð­hjón­unum. Það er mik­il­vægt að lesa vel í aðstæður og vinna úr þeim áskor­unum sem koma upp án þess að brúð­hjónin finni fyrir nokkru.

Við leggjum mikla áherslu á að fólkið njóti þessa ferða­lags sem felst í því að skipu­leggja brúð­kaup í ókunn­ugu landi. Þá er gagn­kvæmt traust mik­il­vægt, þ.e. að til­von­andi par treysti okkur fyrir að hjálpa sér að taka réttar ákvarð­anir. Fólk á það til að týn­ast í smá­at­riðum og þá er það okkar hlut­verk að fá það til þess að for­gangs­raða og ein­blína á stóru mynd­ina – það sem virki­lega skiptir máli. Við hvetjum fólk alltaf til að fylgja hjart­anu og henda hefðum út um glugg­ann. Það þarf ekki að bjóða fulla frænd­anum eða óvið­eig­andi fræn­kunni sem eyði­leggja allar veislur. Það má alveg bjóða upp á „burger og bjór“ í veislu. Það má alveg gifta sig á tásl­unum og strákar mega alveg vera með blóm­vönd.“

„Það fékk því mikið á alla þegar ein systirin kvað sér hljóðs og bað um að fá að lesa bréf frá móður manns­ins, en þau höfðu á þessum tíma­punkti ekki tal­ast við í mörg ár.“

Hún segir að kostn­aður sé eins mis­mun­andi og brúð­kaupin eru mörg. „Bara blómin í stóru brúð­kaupi geta kostað jafn­mikið og öll þjón­ustan á bak við lítið brúð­kaup. Eins og áður sagði er hrein­skilni og gagn­sæi okkur mik­il­væg og við reynum bara að vinna með það sem til­von­andi brúð­hjón hafa úr að spila. Ef við sjáum fram á að brúð­hjón hafi ekki efni á okkar þjón­ustu þá reynum við samt alltaf að gefa þeim góð ráð og beina þeim í réttar áttir. Ef við berum þetta saman við það sem pörin væru að eyða í sínu heima­landi þá er oft­ast ódýr­ara fyrir þau að gifta sig á Íslandi þar sem veisla er oft minni í sniðum og færri gestum boðið en í öðrum löndum. Það er þá verið að fjár­festa í öðrum hlutum, minna eytt í til dæmis skreyt­ingar og meira í hluti sem bæta upp­lifun gesta og pars, til dæmis ævin­týra­legar ferðir, góðan mat, skemmti­leg tón­list­ar­at­riði og svo fram­vegis.“

Allir hágrétu

Starf­semin hefur skilið eftir sig margar góðar minn­ingar og Eva segir að alltaf standi eitt­hvað upp úr í hverju brúð­kaupi. „Eft­ir­minni­leg­ustu sög­urnar tengj­ast gjarnan til­finn­ing­ar­ríkum upp­á­komum. Okkur er minnistætt brúð­kaup sem við skipu­lögðum fyrir nokkru þar sem for­eldrar ann­ars brúð­gumans höfðu afneitað syni sínum eftir að hann kom út úr skápnum. Systur þessa manns náðu þó að smygla sér úr landi til að vera við brúð­kaup bróður síns, án vit­neskju for­eldr­anna eftir því sem við best vissum. Það fékk því mikið á alla þegar ein systirin kvað sér hljóðs og bað um að fá að lesa bréf frá móður

Mynd / Pink Iceland

manns­ins, en þau höfðu á þessum tíma­punkti ekki tal­ast við í mörg ár. Við vissum ekki hverju við ættum von á og settum okkur í stell­ingar og vorum til­búin að slökkva á hljóð­nem­anum. Þess gerð­ist þó ekki þörf því bréfið var fullt af ást og við­ur­kenn­ingu móður á syni sínum. Það kom fram að pabb­inn vissi hvorki af brúð­kaup­inu né bréf­inu sem var lesið og móð­irin, sem var orðin okkuð öldruð, vildi full­vissa strák­inn sinn um að hann væri elsk­aður, þó ekki væri nema af öðru for­eldr­inu. Allir sem urðu vitni að þessu hágrétu hvort sem það voru gestir, gumar, þjónar eða brúð­kaups­skipu­leggendur.“

Gott orðspor dýrmætt

Eva María er stolt af því orð­spori sem þau hafa skapað sér. „Við erum til dæmis komin með tæp­lega 300 fimm stjörnu umsagnir á Tripa­dvisor og þeir sem ferð­ast með okkur koma iðu­lega til okkar vegna þess að ein­hver mælti með okkar ferðum. Það er búið að fjalla fal­lega um okkur um allan heim og við trúum því að ef maður leggur hjarta og sál í það sem maður gerir og passar að njóta þess á hverjum degi komi það marg­falt til baka. Við höfum vaxið hratt á síð­ustu árum en þó ekk­ert í lík­ingu við mikið af fyr­ir­tækjum í kringum okkur og það er ein­fald­lega vegna þess að við viljum halda rétt á spöð­unum, fara ekki fram úr okkur og passa að þjón­ustan sem við bjóðum upp á sé ein­stök.

Við erum alltaf að bralla eitt­hvað. Þessa dag­ana tökum við til dæmis þátt í Hönn­un­ar­Mars þar sem við bjóðum upp á DesignWalk-göngu­ferð um mið­borg­ina. Við erum líka að skipu­leggja heim­sóknir kór­a­hópa til lands­ins. Svo erum við alltaf að leita nýrra leiða til að tengja saman skap­andi greinar, menn­ingu og ferða­þjón­ustu enda finnst okkur þetta vera náskyldar greinar.“

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu