Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fjör fyrir alla fjölskylduna

Það er hægt að gera margt með skemmti­legt með krökk­unum heima.

Fjör fyrir alla fjölskylduna

Sam­veru­stundir fjöl­skyld­unnar eru mjög dýr­mætar. Oft er talað um gildi úti­veru og hvernig má gera skemmti­lega hluti með börnum utan veggja heim­il­is­ins. En inni­vera er ekki síður góð og gild, það er hægt að gera margt fleira skemmti­legt en bara að horfa á sjón­varpið. Hér eru nokkrar góðar hug­myndir.

Mat­reiðsla getur aukið áhuga, sjálfs­traust, for­vitni og frum­kvæði barna.

Allir í eld­hús­inu
Góð leið til að verja tíma með börn­unum er að elda eða baka eitt­hvað með þeim. Mat­reiðsla getur aukið áhuga, sjálfs­traust, for­vitni og frum­kvæði barna. Þau eru flest vön að sjá for­eldra sína í eld­hús­inu þannig að við það að fá að taka þátt finna þau fyrir trausti frá hinum full­orðnu og gera sér grein fyrir að þau séu að læra eitt­hvað sem er mik­il­vægt. Með því að taka þátt fer barnið einnig að velta fyrir sé hvað það borðar, hvað er í matnum sem það borðar og hvaðan hrá­efnið kemur. Með því að kynn­ast öllu ferl­inu og hrá­efnum frá grunni getur gert það að verkum að mat­vendni minnki ef hún er til staðar. Það skiptir miklu máli fyrir allt lífið að fá áhuga á mat­reiðslu og geta eldað sér nær­ing­ar­ríkan mat. Því upp­lýst­ara sem barnið verður því minni líkur verða á að það velji ein­göngu skyndi­bita í fram­tíð­inni. Mat­reiðsla stuðlar einnig að ýmiss konar færni, svo sem stærð­fræði, því það þarf að mæla hrá­efni, telja og stundum leggja saman, og einnig eykst orða­forði barns­ins. Það er líka mikil áskorun að takast á við afleið­ing­arnar ef eitt­hvað fer úrskeiðis og vinna að lausnum í þeim efnum.

Lita­gleði
Flestir for­eldrar þekkja það að vera beðnir um að sitja og teikna með barn­inu sem getur reynst flókið ef maður hefur litla sem enga hæfi­leika á því sviði. Hins vegar geta allir litað og und­an­farin ár hafa vin­sældir lita­bóka fyrir full­orðna auk­ist til muna. Margir trúa því að það sé róandi fyrir hug­ann að lita og þessi iðja er oft tengd við hug­myndir um gjör­hygli, eða mind­ful­ness, og litir hafa lengi verið not­aðir í ýmiss konar list­með­ferð. Helsti mun­ur­inn á lita­bókum fyrir börn og full­orðna er erf­ið­leika­stigið, lita­bækur full­orð­inna eru með smærri og flókn­ari myndum. Þannig að nú geta for­eldrar og börn setið saman með sína lita­bók­ina hvert og notið þess að lita saman.

Fjöl­skyldan getur setið saman og lesið bók þannig að hver fjöl­skyldu­með­limur fær sitt tæki­færi til að lesa upp­hátt fyrir hina … Þetta eykur bæði lesskiln­ing og lestr­ar­færni barna.

Sögu­st­und
Margir, ef ekki flestir, for­eldrar lesa fyrir börnin sín þar til þau ná þeim aldri að byrja að lesa sjálf. En það er ekki síður skemmti­legt að lesa með börn­unum sínum þegar þau eru farin að geta það sjálf. Til dæmis getur fjöl­skyldan setið saman og lesið bók þannig að hver fjöl­skyldu­með­limur fær sitt tæki­færi til að lesa upp­hátt fyrir hina. Síðan má ræða saman um atvik í bók­inni og spá í sögu­þráð­inn. Þetta eykur bæði lesskiln­ing og lestr­ar­færni barna auk þess sem orða­forði þeirra eykst. Einnig getur þetta aukið sjálfs­traust barna því þau munu oft þurfa að lesa upp­hátt fyrir jafn­ingja sína í skól­anum sem getur verið ógn­vekj­andi fyrir marga.

Því ekki grafa upp spila­stokk og kenna börnum nokkra góða leiki sem þið spil­uðuð í æsku?

Spilerí
Í dag spila börn frekar tölvu­leiki en hefð­bundin spil. Það er allt gott og blessað því leik­irnir æfa oftar en ekki svip­aða tækni og færni, svo sem kænsku, úrlausn vanda­mála og þol­in­mæði. Það getur þó verið erf­ið­ara fyrir for­eldra að taka þátt í því spili. Því ekki grafa upp spila­stokk og kenna börnum nokkra góða leiki sem þið spil­uðuð í æsku? Þetta gefur teng­ingu við for­tíð­ina og börn hafa gaman af því að heyra hvernig hlut­irnir voru þegar þið voruð krakkar. Borðspil eru einnig skemmti­leg þótt þau séu oft tíma­frek­ari en að spila á spil. Hægt er að nota tím­ann á meðan spilað er til að ræða dag­inn og veg­inn, spyrja um skóla­dag­inn eða hvað sem er án þess þó að það sé þvingað eða ein­hver pressa.

Í barn­dóm aftur
Það hafa allir gott af því að leika sér aðeins og finna barnið innra með sér. Börn hafa líka þörf fyrir að finna þessa teng­ingu við for­eldra sína, að þeir séu líka börn inn við beinið. Fyrir utan þessa klass­ísku leiki, svo sem felu­leik, er til dæmis skemmti­legt að búa til virki úr púðum, sófum og teppum og síðan er hægt að fara í þykjustu­leik inni í virk­inu. Annar skemmti­legur leikur er nokk­urs konar dóta­keila; þá er böngsum, dóta­köllum eða öðru dóti raðað upp við end­ann á löngum gangi og leik­menn skipt­ast svo á að rúlla bolta og reyna að fella dótið. Önnur útfærsla á þessum leik er að leik­menn stilli sér upp sitt hvorum megin við gang­inn með sína dóta­kalla og þá er mark­miðið að vera fyrstur til að fella alla kall­ana hjá hinum. Önnur góð leið til að fá útrás og hafa það gaman er að halda danspartí, þá er ein­fald­lega skemmti­legt lag sett á fón­inn og svo dansa allir eins og þeir eigi lífið að leysa.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir
Myndir / www.pixabay.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu