Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Settu á þig grímu

Á und­an­förnum árum hafa komið á markað fjöl­margar nýj­ungar í húð­vörum sem eiga upp­runa sinn að rekja til Asíu, þá sér­stak­lega til Japan og Suður-Kóreu.

Settu á þig grímu
est er að spreyja á sig ilm­vatni þegar maður er nýkom­inn úr sturtu og áður en maður klæðir sig því þá er húðin rök og grípur frekar ilm­inn.
Á und­an­förnum árum hafa komið á markað fjöl­margar nýj­ungar í húð­vörum sem eiga upp­runa sinn að rekja til Asíu, þá sér­stak­lega til Japan og Suður-Kóreu.

Ein þess­ara nýj­unga eru svo­kall­aðir tauma­skar en hvernig virka þeir og er árang­ur­inn þess virði að líta út eins og Hannibal Lechter í hálf­tíma?

Ólíkt venju­legum and­lits­möskum, yfir­leitt þykkt krem eða leir í túbu sem er bor­inn á og síðan þvegin af eftir til­tek­inn tíma, eru tauma­skar í raun lík­ari serumi. Um er að ræða grímu úr tauefni, gegn­sósa í þunnu, gel­kenndu serumi, stút­fullu af virkum efnum.Tauefnið sjálft er úr örþunnri bóm­ull eða öðrum trefjum og sniðið eins og gríma, með götum fyrir augu, nef og munn, ásamt litlum blöðkum á hlið­unum til að tryggja að maskinn passi á öll and­lit. Áferðin á gel­inu sem efnið er bleytt í er nógu þykk til að maskinn loði við húð­ina án þess að renna til og efnið leki ekki niður og fari til spillis.

Maskann á að setja á hreina, þurra húð en gott er að nota ávaxta­sýru eða ens­ím­hreinsi til að fjar­lægja dauðar húð­frumur af yfir­borð­inu.

Samkvæmt leið­bein­ingum á að leyfa mask­anum að vera á í tíu til tutt­ugu mín­útur. Það er samt óhætt að láta hann vera á húð­inni þar til hún hefur upp­tekið meiri­hluti serums­ins og gríman sjálf orðin nokkuð þurr. Þessi aðferð tryggir hámarks­upp­töku virku efn­anna.

Best er að liggja út af á meðan maskinn er á því þá fær­ist hann ekk­ert til. Það er líka mik­il­vægt að gefa sér tíma og slaka á, við þurfum öll á því að halda og við lítum betur út fyrir vikið.

Helstu kostir taumaska

  • Fyrst og fremst eru þeir ótrú­lega þægi­legir og auð­veldir í notkun, meira að segja þeir sem eru ekk­ert alltof dug­legir við að hugsa um húð­ina geta skellt einum á sig.
  • Mörgum finnst sér­stak­lega gott að ferð­ast með þá milli landa því þeir telj­ast ekki sem vökvi og má þess vegna taka með í hand­far­angri. Sumir setja þá meira að segja á sig í lengri flugum því þurrt loft í flug­vélum getur leikið húð­ina grátt og þá er gott að setja á sig maska en þurfa ekki að þvo sér eftir notkun. Þú gætir samt fengið nokkur skrítin augna­ráð frá sam­ferða­mönnum.
  • Til eru fjöl­margar gerðir taumaska sem hafa ólíka virkni, flestar þeirra eiga það þó sam­eig­in­legt að veita mjög öfl­ugt raka­skot. Árang­ur­inn er því strax sjá­an­legur, húðin verður mun þétt­ari og ung­legri. Það þýðir að það hentar vel að nota þá rétt fyrir eitt­hvert sér­stakt til­efni, enda hafa margar stór­stjörnur birt mynd af sér með taumaska rétt áður en þær ganga rauða dreg­il­inn.
  • Þegar öllu er á botn­inn hvolft koma tauma­skar ekki beint í stað­inn fyrir ann­ars konar and­lits­maska, heldur eru þeir góð við­bót sem er þægi­legt að grípa til þegar maður vill líta extra vel út án þess að þurfa að hafa mikið fyrir því.

Höfundur / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu