Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vinsælar jólaborgir

Þó að mörgum finn­ist best að vera heima hjá sér á aðvent­unni og um jólin eru alltaf ein­hverjir sem nota þennan árs­tíma til ferða­laga.

Vinsælar jólaborgir
Við Effel-turn­inn er skauta­svell fyrir fjöl­skyld­una.

París – trjá­göngin töfrum lík­ust
París er ein róm­an­tís­kasta borg heims, ekki síst yfir jóla­tím­ann þegar hún er böðuð í ljósum og skreyt­ingum. Þar er mikið um að vera fyrir fólk á öllum aldri, fjöl­breyttir tón­leikar eru víða um borg­ina, kórar syngja og ýmsir við­burðir. Jólin eiga það til að kalla fram börnin í okkur öllum þannig að hvort sem þú ferð­ast með börn eða ekki þá skaltu njóta alls sem borgin hefur upp á að bjóða. Við Effel-turn­inn er skauta­svell fyrir fjöl­skyld­una, mark­aðir eru víðs vegar um borg­ina og jóla­ljósin sem prýða Effel-turn­inn, Sig­ur­bog­ann og brýr og fleiri mann­virki lýsa svo sann­ar­lega upp skamm­degið. Ljósin á trjánum á göt­unni Champs Elysees eru töfrum lík­ust og gaman að fara hring í stóra par­ís­ar­hjól­inu og virða útsýnið fyrir sér. Stór­versl­unin Galeries Lafayette er ein af þeim bygg­ingum sem böðuð er ljósum að utan og innan og hana er mjög gaman að skoða, Notre Dam-kirkjan er afar hátíð­leg og ef þið eruð svöng þá skuluð þið endi­lega fá ykkur heita pönnu­köku með Nutella hjá götu­söl­unum.

New York – borgin sem aldrei sefur
New York er virki­lega jóla­leg allt frá miðjum nóv­em­ber og óhætt að segja að borgin sé sveipuð mik­illi ljósa­dýrð og fal­legum jóla­skreyt­ingum. Mikið er um að vera bæði á götum úti og inn­an­dyra þar sem ýmsir við­burðir eru í boði. Líf og fjör er í versl­unum og hægt að gera fín­ustu kaup eða njóta þess ein­fald­lega að ganga niður Fifth Avenue og skoða í glugg­ana. Alger skylda er að fara á skauta á skauta­svell­inu í Rockefeller Center undir hinu dásam­lega him­in­háa jóla­tré og ekki má heldur missa af því að hitta jóla­svein­inn. Svo er bara að njóta þess að fá sér gott að borða og fara inn á lítil sæt kaffi­hús og fá sér góðan kaffi­bolla eða heitt súkkulaði. Passið bara að vera vel klædd því það getur verið kalt á þessum árs­tíma.

New York er virki­lega jóla­leg allt frá miðjum nóv­em­ber og óhætt að segja að borgin sé sveipuð mik­illi ljósa­dýrð og fal­legum jóla­skreyt­ingum.

Akureyri – litla, vina­lega „stór­borgin“
Þó að Akureyri telj­ist ekki til borga þá hefur hún allt til alls eins og stór­borg en er á sama tíma svo agn­ar­lítil og krútt­leg. Þar er hægt að fara á tón­leika og í leik­hús, njóta lífs­ins á vina­legum kaffi­húsum, fara út að borða á veit­inga­stöðum á heimsklassa og rölta um og njóta fal­legra jóla­ljósa. Stróka í búðir og þá sér­stak­lega í gamla Bókval, snuðra í bókum og kaupa sér nokkrar, fara í Bakaríið við brúna og fá sér gott brauð að borða.

Borgin er mjög jóla­leg í des­em­ber og ynd­is­legt að fara á Strikið, borða epla­skífur og njóta þess að rölta um og skoða jóla­ljósin.

Kaup­manna­höfn – jólin byrja í Tívolí
Kaup­manna­höfn er í upp­á­haldi hjá mörgum enda vina­leg og heill­andi borg sem er mörgum Íslend­ingum hug­leikin en margir þeirra hafa búið þar í lengri eða skemmri tíma. Borgin er mjög jóla­leg í des­em­ber og ynd­is­legt að fara á Strikið, borða epla­skífur og njóta þess að rölta um og skoða jóla­ljósin. Nauð­syn­legt er að fara í Tívolíið, það er ein­stak­lega jóla­legt og fal­legt frá miðjum nóv­em­ber og fram yfir ára­mót. Það var árið 1994 sem farið var að opna Tívolíið á þessum tíma en áður hafði það aðeins verið opið yfir sum­ar­tím­ann, eða í 151 ár. Þar sem Danir eru þekktir fyrir bjór­menn­ingu þá er ekki ama­legt að skella sér inn á nær­liggj­andi veit­inga­stað og fá sér gott að borða og ískaldan jóla­bjór.

Berlín – para­dís jóla­mark­að­anna
Berlín er æðis­leg í des­em­ber, fal­lega skreytt og dásam­legir jóla­mark­aðir um allt eins og venja er í þýskum borgum. Í Berlín er meiri nútíma­bragur yfir jóla­mörk­uð­unum en ann­ars staðar í Þýska­landi og þeir eru stað­settir um alla borg­ina. Sá vin­sæl­asti og mest heim­sótti er í kringum Kaiser Wilhelm Gedächtniskirche og flott að sjá alla bás­ana í kringum kirkj­una. Kirkjan varð fyrir árás í síð­ari heims­styrj­öld­inni og rústir hennar standa enn til minn­ingar um stríðið. Fjöl­breyttir við­burðir eru í boði og borgin angar af rist­uðum möndlum, heitu súkkulaði og jólaglöggi.

Berlín er æðis­leg í des­em­ber, fal­lega skreytt og dásam­legir jóla­mark­aðir um allt eins og venja er í þýskum borgum.

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / www.pexels.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu