Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einfaldar leiðir til að krydda sambandið

Stundum þarf bara smá hug­mynda­flug til að hressa upp á sam­bandið.

Einfaldar leiðir til að krydda sambandið

Misjafnt er hvað pör eru dug­leg að gera hluti saman til að krydda sam­bandið þegar grár hvers­dag­ur­inn tekur við eftir gáska­fulla hveiti­brauðs­daga svo ekki sé talað um þegar börnin fara að koma í heim­inn og taka í burtu mest­allan frí­tím­ann. Nota­legar stundir þurfa þó ekki að vera flóknar og geta vel sam­ræmst dag­legum athöfnum – eina sem þarf er smá­vegis hug­mynda­flug.

Fáðu pössun á mánu­dags­kvöldi, taktu á móti mak­anum með sjóð­heitu baði, kerta­ljósum og hafðu betri fötin til­búin.

Stefnu­mót á virkum degi
Stundum henta virkir dagar betur til stefnu­móta en helgar sem oft eru fullar af dag­skrá og fólk vill kannski frekar nýta með börn­unum. Fáðu pössun á mánu­dags­kvöldi, taktu á móti mak­anum með sjóð­heitu baði, kerta­ljósum og hafðu betri fötin til­búin. Svo getið þið skellt ykkur út að borða, jafn­vel í einn kaffi­bolla á eftir og samt verið komin heim á skikk­an­legum tíma til að hleypa barnapí­unni heim og kom­ast það tím­an­lega í rúmið að þið verðið ekki að deyja úr þreytu dag­inn eftir. Auðvitað mætti líka skreppa saman í bíó eða leik­hús en það gefur ykkur nátt­úr­lega ekki eins mik­inn tíma til að tala saman.

Saman í heim­il­is­verkin
Í stað þess að híma í sitt­hvoru horn­inu við heim­il­is­verkin getur verið snið­ugt að boða til stefnu­móts við þvotta­fjallið, upp­vaskið eða elda­mennsk­una. Þegar mikið er að gera eru oft fáar stundir sem nást til að spjalla saman um dag­inn og veg­inn. Það getur því verið mjög skemmti­legt að njóta þess að vera saman á stundum sem mörgum finnst kvöð. Þeir sem hafa prófað þetta hafa sagt að á þessum klukku­tíma sem tók að brjóta saman allan hreina þvott­inn sem hafði safn­ast saman hafi þau hjónin náð að spjalla meira saman en í langan tíma. Það sama á við um elda­mennsku – njótið þess að búa til mat­inn og spjalla saman í leið­inni um dag­inn og veg­inn. Sumir hafa líka nefnt að það sé ofsa­lega róandi að vaska upp, eins og hálf­gerð hug­leiðsla, og þarna geta pör hug­leitt saman án þess að verða fyrir nokk­urri truflun. Af hverju ekki að njóta þess­ara dag­legu athafna, það þarf að gera þær hvort sem er.

Hittast í hádeg­inu
Sama hversu mikið við höfum að gera þá þurfum við alltaf að gefa okkur tíma til að borða og því er ein­hvern veg­inn svo hent­ugt að nota þær stundir til að njóta sam­vista. Skipu­leggið að hitt­ast sem oft­ast í hádeg­inu og fá ykkur „löns“ saman. Þetta brýtur upp vinnu­dag­inn, þið hitt­ist og eigið saman stund – gætu verið einu stund­irnar sumar vik­urnar sem þið hafið til að hitt­ast bara tvö saman. Stundum gætuð þið jafn­vel gripið með ykkur pizzu, góðan heilsu­drykk eða jafn­vel bara fengið ykkur skyr eða eitt­hvað álíka fljót­legt og hist heima í hádeg­inu – fengið ykkur einn stuttan í leið­inni.

Þegar mikið er að gera eru oft fáar stundir sem nást til að spjalla saman um dag­inn og veg­inn. Það getur því verið mjög skemmti­legt að njóta þess að vera saman á stundum sem mörgum finnst kvöð.

Dans­nám­skeið
Mikil skemmtun og sam­vera getur verið fólgin í því að fara saman á dans­nám­skeið. Það er bara enn skemmti­legra ef þið hafið aldrei kunnað neitt að dansa því þá getið þið grenjað af hlátri yfir klunna­skapnum og til­raun­unum til að ná spor­unum rétt. Hver veit nema þið náið svo að láta þetta allt smella saman að lokum og getið þá svifið um í hvort ann­ars örmum og slegið í gegn á dans­gólfum skemmti­stað­anna.

Taka til í geymsl­unni – saman
Margir hugsa til þess með hryll­ingi að fara í gegnum allt dótið sem hefur safn­ast saman í geymsl­unni á und­an­förnum árum og flestir muna varla hvað þar reyn­ist vera – alla vega í fæstum til­fellum hlutir sem vantar því þeirra hefur ekki verið saknað síðan þeir fór í geymsl­una. En þetta þarf ekki að vera svo slæmt. Skipu­leggið stefnu­mót í geymsl­unni því þetta þarf ekki að vera svo leið­in­legt ef þið gerið þetta saman. Þegar hver hlut­ur­inn birt­ist á fætur öðrum þá rifjar það upp alls konar skemmti­legar minn­ingar, t.d. lamp­inn frá Gunnu frænku sem ykkur fannst svo ljótur, hall­æris­legi jakk­inn sem mak­inn kom með í sam­bandið en mátti aldrei henda og svo fram­vegis. Þegar þið hafið farið í gegnum allt og flokkað eftir því hvort eigi að geyma það áfram, henda eða að losa ykkur við þá getið þið aug­lýst eigu­lega hluti á bland.is, jafn­vel pantað bás í Kola­port­inu eða haldið bíl­skúrs­sölu og grætt á öllu saman.

Ekki leita langt yfir skammt
Skoðaðu hvað snið­ugt er hægt að gera í þínu nán­asta umhverfi því oft er það sem snið­ugt er að gera rétt fyrir framan nefið á okkur. Það þarf ekki alltaf að ferð­ast langar leiðir, krefj­ast mik­ils útbún­aðar eða fjár­út­láta að gera eitt­hvað skemmti­legt. Farið saman á bóka­safnið og kíkið á bækur og blöð saman. Þar er til dæmis hægt að kíkja í gömul tíma­rit og oft er ekk­ert fyndn­ara en að sjá hvað fólk og tískan hefur breyst í áranna rás. Farið saman í göngu­ferð á staði sem ykkur hefur aldrei dottið í hug að fara á en stendur ykkur nærri. Þá gæti tak­markið til dæmis verið að ganga leið og götur sem þið hafið ekki farið áður og þá mun áreið­an­leg margt koma á óvart.

Bakaðu köku, vöfflur eða gerðu heilsu­sam­lokur og vertu til­búin/n með kaffi og með því þegar mak­inn kemur heim úr vinnu seinni­part­inn.

Sjón­varps­laus fimmtu­dags­kvöld
Mörg okkar muna þá tíð þegar engar sjón­varps­út­send­ingar voru á fimmtu­dags­kvöldum og ekki í júlí heldur. Á þess­ari tækniöld sem nú er runnin upp þá væri ekki vit­laust að hverfa ein­stöku sinnum aftur til þess­ara tíma. Slökkvið á sjón­varp­inu, GSM-símum, Neti og tölvum. Heima­sím­inn má lifa svona til öryggis. Kveikið á kertum og njótið þess að vera heima í kyrrð­inni frá þessu utan­að­kom­andi áreiti. Ef þið eigið börn þá skuluð þið leyfa þeim að njóta þess­ara stunda með ykkur. Komið saman og látið ykkur detta eitt­hvað snið­ugt til að gera saman, t.d. spila, teikna, fara í leiki eins og að fela hlut, mjálm­aðu nú kisa mín eða hollin skollin. Þarna gæti skap­ast tími sem allir fjöl­skyldu­með­limir gætu kunnað að meta og þjappað ykkur saman.

Komdu á óvart
Verið dug­leg að gera eitt­hvað óvænt fyrir mak­ann. Bakaðu köku, vöfflur eða gerðu heilsu­sam­lokur og vertu til­búin/n með kaffi og með því þegar mak­inn kemur heim úr vinnu seinni­part­inn. Ef mak­inn sér alltaf um ákveðin hús­verk skaltu koma honum á óvart með því að klára þau án þess að hann viti og segja að í stað­inn séuð þið að fara saman í bíó. Komdu með góðan kaffi­bolla á leið­inni heim úr vinnu og færðu elsk­unni þinni eða keyptu upp­á­halds­tíma­ritið, bók eftir upp­á­halds­höf­und­inn, gott freyði­bað eða sturtu­sápu, kassa af upp­á­halds­drykknum sem aldrei er nóg til af eða bara hvað sem þér dettur í í hug.

Sól­ar­hrings­sjón­varps­mara­þon
Farið saman á hótel í einn sól­ar­hring með allar ser­í­urnar af upp­á­halds­sjón­varps­þætt­inum ykkar og skipu­leggið mara­þon. Setjið fyr­ir­fram reglur um hluti sem þið eigið að gera ef eitt­hvað ákveðið ger­ist í þátt­unum. Ef þetta er til dæmis Friends gætuð þið haft: Alltaf þegar Phoebe spilar á gít­ar­inn þá á að fara í sleik, alltaf þegar Joey reynir að sjar­mera ein­hvern upp úr skónum á að kyss­ast, þegar Ross gerir eitt­hvað vand­ræða­legt á að fara úr að ofan og svo fram­vegis.

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu