Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Laugar á Vestfjörðum

Á Vest­fjörðum eru að finna heitar laugar í öllum stærðum og gerðum.

Laugar á Vestfjörðum

Fátt er betra en að hvíla lúin bein í nátt­úru­laug eftir langan dag á ferða­lagi. Á Vest­fjörðum eru margar heitar laugar í öllum stærðum og gerðum og virki­lega þess virði að leita þær uppi. Hér eru nokkrar þeirra.

Á Vest­fjörðum eru margar heitar laugar í öllum stærðum og gerðum og virki­lega þess virði að leita þær uppi.

Kross­neslaug er í fimm mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá Kaup­fé­lag­inu í Norð­ur­firði en vatn frá heitum hverum kyndir laug­ina. Hún er stað­sett við fjöru­borðið fyrir neðan veg og umhverfi hennar er virki­lega dramat­ískt og ein­stakt. Skyldu­bað fyrir alla sem eru að ferð­ast um Strand­irnar.

Poll­ur­inn er nokkru utan við kaup­túnið Tálka­fjörð og uppi í hlíð­inni. Hann er þrí­skiptur í tvo set­potta og einn nokkuð dýpri. Bún­ings­hús er á staðnum sem er við­haldið af hreppnum. Útsýnið úr pott­unum út Tálkna­fjörð­inn er dásam­legt.

Nátt­úru­laugin í Heydal er í stuttu göngu­færi frá Sveita­hót­el­inu í Heydal. Sumir segja að hún færi gestum hennar auk­inn kraft. Að sögn Stellu Guð­munds­dóttur, gest­gjafa í Heydal, er dal­ur­inn alger perla og ef gengið er með­fram ánni inn dal­inn má sjá nokkur gil og marga litla fossa. Hún segir að heita nátt­úru­laugin sé alltaf vin­sæl enda talið að Guð­mundur góði hafi vígt hana og hún því hin mesta heilsu­lind.

Útsýnið úr pott­unum út Tálkna­fjörð­inn er dásam­legt.

Rétt hjá Hótel Flóka­lundi er Hellu­laugin sem hlaðin er grjóti. Engin bún­ings­að­staða er hjá laug­inni en gestir láta það ekki á sig fá enda dásam­legt að njóta þess að liggja í heitri laug­inni á þessum fal­lega stað.

Í Reykja­firði við Arn­ar­fjörð má finna tvær heitar laugar. Önnur er steypt sund­laug sem gerð var árið 1975. Stutt frá henni er lítil hlaðin nátt­úru­laug og hit­inn í henni er um 40°C allt árið um kring. Vatn rennur í steyptu laug­ina allan árs­ins hring og hægt er að hafa fata­skipti í litlum kofa sem stendur við laug­ina.

Fátt er betra en að hvíla lúin bein í nátt­úru­laug eftir langan dag á ferða­lagi.

Í Bjarn­ar­firði á Ströndum er lítil hlaðin bað­laug um 100 metrum norðan við vest­ur­horn Hótels Laug­ar­hóls sem er í gamla skóla­hús­inu á Klúku. Laugin er frið­lýst sem forn­leifar og er ein margra Gvend­ar­lauga á Íslandi þar sem sagt er að Guð­mundur góði Arason, biskup á Hólum, hafi vígt vatnið.

Lítið eitt neðan við bað­laug­ina, á milli Hótels Laug­ar­hóls og Kotbýlis kuklar­ans, sem er hluti af Galdra­sýn­ingu á Ströndum, er sund­laug sem einnig er kölluð Gvend­ar­laug, eftir gömlu laug­inni.

Í fjöru­borð­inu á Drangs­nesi eru þrír heitir pottar sem komið var fyrir eftir að heitt vatn fannst á Drangs­nesi árið 1997. Pott­arnir hafa notið mik­illa vin­sælda jafn hjá heima­mönnum sem ferða­mönnum og ekki stendur til að fjar­lægja þá þrátt fyrir að byggð hafi verið glæsi­leg sund­laug á Drangs­nesi.

Hörgs­hlíð­ar­laug er stað­sett í Mjó­a­firði í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Hún er steyn­steypt, 2×6 metrar að stærð og tæpur metri að dýpt þar sem hún er dýpst.
Naut­eyr­ar­laug er í landi Naut­eyrar inn­ar­lega í Ísa­fjarð­ar­djúpi og hit­inn í henni er frá 35°C-42°C.

Heim­ildir: islandi­hnot­skurn.is og westfjords.is

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu