Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hrokinn kom mér á botninn“

Bjartur Guð­munds­son býður upp á óvenju­lega árang­urs­þjálfun.

„Hrokinn kom mér á botninn“

Bjartur Guð­munds­son er leik­ari, árang­urs­þjálfi og eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins Optimized Performance sem hann stofn­aði í febr­úar 2016. Hann býður upp á óvenju­lega árang­urs­þjálfun fyrir alla sem vilja öðl­ast hámarks­að­gengi að getu sinni og hæfi­leikum á hvaða sviði sem er. Bjartur byggir nám­skeiðin ekki síst út frá eign reynslu.

Bjartur Guð­munds­son er leik­ari, árang­urs­þjálfi og eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins Optimized Performance sem hann stofn­aði í febr­úar 2016. Hann býður upp á óvenju­lega árang­urs­þjálfun fyrir alla sem vilja öðl­ast hámarks­að­gengi að getu sinni og hæfi­leikum á hvaða sviði sem er.

„Ég trúi því að allur árangur, óháð í hverju, sé bund­inn við þrjá þætti. Í fyrsta lagi þekk­ingu og kunn­áttu, í öðru lagi við­horfi okkar til okkar sjálfra og þess sem við viljum ná árangri í og í þriðja lagi venju­bundnu til­finn­inga­legu ástandi.

Af þessum þremur atriðum vegur til­finn­inga­legt ástand þyngst, svo við­horf og síðan þekk­ing og kunn­átta. Þar af leið­andi gengur Optimized Performance út á til­finn­inga- og við­horfs­þjálfun sem fer fram á hrika­lega skemmti­legum og áhrifa­ríkum námkeiðum þar sem þátt­tak­endur læra að örva tauga­kerfið þannig að útkoman verði það sem ég kalla topp til­finn­inga­legt ástand,“ segir Bjartur.

„Í þessu öfl­uga ástandi galopn­ast aðgengi tauga­kerf­is­ins að hæfi­leikum, upp­lýs­ingum og skap­andi hugsun, við tökum upp­byggi­legri ákvarð­anir og fylgjum þeim eftir með vand­aðri athöfnum, sam­skipta­hæfni fer upp á annað plan og kær­leiks­ríkt sjálfs­traust fer í hæstu hæðir. Þetta er alveg geggjað hreint út sagt.“

Var hræddur við höfnun

Bjartur seg­ist hafa mis­stigið sig ótal sinnum og upp­haf þessa ævin­týris megi rekja til þess að hann hélt að hann væri búinn að meika það sem leik­ari stuttu eftir að hann útskrif­að­ist frá Lista­há­skóla Íslands árið 2009. „Fyrir vikið féll ég í þann fúla pitt að trúa því að nú myndu leik­stjórar og fram­leið­endur bjóða mér hlut­verk í hrönnum. Með öðrum orðum þá varð ég hroka­fullur og taldi mér trú um að það væri fyrir neðan mína virð­ingu að sækj­ast af krafti eftir hlut­verkum en raun­veru­lega var ég bara skít­hræddur við höfnun og að stand­ast ekki vænt­ingar. Ég áork­aði þó einu og það var að verða graut­fúll, reiður og bitur á met­tíma en sem betur fer er ég frekar jákvæður ein­stak­lingur að upp­lagi og fór að leita leiða til að kom­ast á betri stað. Það er sagt að við þurfum ann­að­hvort örvænt­ingu eða inn­blástur til að taka nýja stefnu í líf­inu og ég var svo sann­ar­lega örvænt­inga­fullur á þessum tíma­punkti. Inn­blást­ur­inn kom svo þegar vinur minn benti mér á mann­rækt­ar­fröm­uð­inn Anthony Robbins en ég er undir gríð­ar­legum áhrifum frá honum, hef marglesið allar bækur hans, farið í gegnum hljóð­prógrömm og setið nám­skeið. Síðan þá hef ég verið mik­ill áhuga­maður um mann­rækt og jákvæða sál­fræði sem svo varð til þess að ég stofn­aði Optimized Performance,“ segir Bjartur.

„… Með öðrum orðum þá varð ég hroka­fullur og taldi mér trú um að það væri fyrir neðan mína virð­ingu að sækj­ast af krafti eftir hlut­verkum en raun­veru­lega var ég bara skít­hræddur við höfnun og að stand­ast ekki vænt­ingar.“

Til þessa hefur hann unnið með tæp­lega 80 vinnu­stöðum og rúm­lega 3.000 ein­stak­lingum og segir að við­brögðin við nám­skeið­unum hafi verið ótrú­lega góð. „Það er eitt­hvað við það að gefa af sér en mark­miðið með þessu öllu er að miðla hug­mynda­fræði og aðferðum sem geta stór­bætt lífs­gæði fólks. Nám­skeiðin eru fyrir alla sem hafa áhuga á því að taka skref fram á við og eru til­búnir að axla ábyrgð á eigin gæfu.

Það hefur verið sagt að ef við viljum betra líf þá þurfum við sjálf að verða betri í líf­inu. Með því að læra hvernig hægt er að inn­prenta upp­byggi­leg við­horf og hvernig hægt er kynda upp öfl­ugar upp­byggi­legar til­finn­ingar sem veita kraft, hug­rekki, trú og traust þá eru okkur bók­staf­lega allir vegir færir. Fyrir mér eru þetta lyk­il­at­riði ef maður vill verða góður í líf­inu og það magn­aða er að þetta er ekki flókið og er meira að segja frekar létt ef maður skilur og kann aðferð­irnar.“

Niðurrif engum til góðs

Bjartur lumar á ýmsum ráðum til fólks sem á það til að tala sig niður. „Já. Í fyrsta lagi verðum við að átta okkur á því að við gerum ekk­ert nema við trúum því að það muni hafa ein­hverjar jákvæðar afleið­ingar í för með sér eða við trúum því að það forði okkur frá ein­hverjum nei­kvæðum afleið­ingum. Það að tala okkur niður getur leitt til þess að annað fólk sýni okkur alúð og hlýju og þannig upp­lifum við ást og teng­ingu. Sumir trúa því að það sé bók­staf­lega mik­il­vægt að drulla yfir sjálfa sig til þess að læra af mis­tökum. Sjálfs­nið­ur­rif getur verið leið okkar til að finn­ast við vera auð­mjúk, ekki hroka­full eins og allir hroka­fullu fávit­arnir og þannig upp­lifum við að við séum merki­leg. Stundum notum við nið­ur­rif til að búa til afsak­anir, til að stjórna, til að forð­ast að gera eitt­hvað sem við ótt­umst en vitum að væri gott fyrir okkur. Við notum sjálfs­nið­ur­rif líka til að gefa okkur leyfi til að gera eitt­hvað sem veitir skjót­fengna vellíðan en er raun­veru­lega ekki gott fyrir okkur né aðra.

Ég veit að þetta kann að hljóma fárán­lega og það er fárán­legt að við notum sjálfs­nið­ur­rif á þennan hátt en ef við gerum mikið af því, þá er það vegna þess að við höldum að það muni forða okkur frá meiri sárs­auka eða hrein­lega veita okkur vellíðan.

Með því að læra hvernig hægt er að inn­prenta upp­byggi­leg við­horf og hvernig hægt er kynda upp öfl­ugar upp­byggi­legar til­finn­ingar sem veita kraft, hug­rekki, trú og traust þá eru okkur bók­staf­lega allir vegir færir, að sögn Bjarts. Mynd / www.pixabay.com

Til að venja okkur af þessum ósið þurfum við að kom­ast að því hvaða sárs­auka við erum að reyna að forð­ast og/eða hvaða vellíðan við erum að sækj­ast eftir. Því næst þurfum við að átta okkur á því að sjálfs­nið­ur­rif mun alltaf leiða til meiri sárs­auka en vellíð­unar og taka ákvörðun um að það sé heimsku­legt og ekki þess virði. Þetta gerum við með því að svara eft­ir­far­andi spurn­ingum: Hvaða sárs­auka mun það leiða af sér að rífa mig niður? Hvaða vellíðan mun það leiða af sér að hætta að rífa mig níður? Hvaða vellíðan mun ég upp­lifa ef ég tem mér að tala mig upp?

Hér er mik­il­vægt að koma með eins mörg svör og hægt er við hverri spurn­ingu og svörin verða að kynda upp til­finn­ingar. Ef okkur tekst að gera þetta þá fer okkur virki­lega að langa til að breyta hugs­ana­mynstri okkar sem þýðir að við erum opin fyrir næsta skrefi sem er að taka eftir því þegar við dettum inn í nið­ur­rif og gera eft­ir­far­andi um leið: Hoppa með hendur upp í loft og íhuga þessar spurn­ingar í tvær mín­útur: Hvað gæti ég verið þakk­lát/ur fyrir núna ef ég vildi virki­lega vera þakk­lát/ur? Hvað gæti mér líkað vel við í eigin fari ef ég virki­lega vildi? Hverju gæti ég verið stolt/ur af við sjálfa/n mig ef ég virki­lega vildi? Lík­ams­beit­ing hefur stór­kost­leg áhrif á líðan okkar og það eitt að hoppa með hendur upp í loft í tvær mín­útur kemur okkur í betra and­legt ástand þar sem er auð­veld­ara að tala sig upp. Það sama gildir með spurn­ing­arnar en með því að ein­beita okkur að þeim og svara í tvær mín­útur getum við kynt upp sterkar upp­byggi­legar til­finn­ingar. Með því að hoppa og svara spurn­ing­unum getum við keyrt okkur upp í frá­bært til­finn­inga­legt ástand á aðeins tveimur mín­útum og tamið okkur upp­byggi­legri við­horf gagn­vart sjálfum okkur. Ég hvet alla til að prófa þetta,“ segir Bjartur bros­andi.

„Æfingin hér að ofan er frá­bær til að kom­ast í gott til­finn­inga­legt ástand en almennt er það þrennt sem ber að hafa í huga. Að beita lík­am­anum og rödd­inni eins og þegar okkur líður vel, hug­leiða upp­byggi­legar spurn­ingar og nota orða­lag sem er upp­byggi­legt.“

Og það er margt skemmti­legt fram undan hjá Bjarti. „Ég er á fullu að bóka nám­skeið með hinum ýmsu fyr­ir­tækjum fyrir vet­ur­inn en ég bendi áhuga­sömum á að senda mér bara tölvu­póst á [email protected] eða fara á www.optimized.is og kynna sér málið betur. Svo er ég svo brattur að lofa því að ef þér líkar ekki nám­skeiðið þá færðu það end­ur­greitt að fullu,“ segir hann sposkur að lokum.

Texti / Ragn­hildur Aðals­steins­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu