Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólitísk tíska

Tísku­hönn­uðir taka þátt í kven­rétt­inda­bar­átt­unni með því að fagna fjöl­breyti­leik­anum.

Pólitísk tíska
Múslímska fyr­ir­sætan Halima Aden, sú fyrsta til að ganga niður tísku­sýn­ing­ar­pall á tísku­viku í New York með hijab bund­inn um höf­uðið.

Við vorum orðin allt of vön því að sjá eins­leitar og svip­lausar fyr­ir­sætur ganga niður tísku­sýn­ing­ar­pall­ana til að kynna fyrir okkur nýj­ustu tísku.

Síðustu miss­eri virð­ist tísku­heim­ur­inn þó vera far­inn að ranka við sér og hönn­uðir eru farnir að taka þátt í kven­rétt­inda­bar­átt­unni með því að fagna fjöl­breyti­leik­anum. Þeir sem sýndu tísk­una síð­ustu mán­uði og vikur not­uðu meðal ann­ars konu á átt­ræð­is­aldri, ofur­fyr­ir­sætu í svo­kall­aðri „yfir­stærð“og múslímska fyr­ir­sætu með hijab. Þá veigr­uðu þeir sér ekki við að senda frá sér rammpóli­tísk og fem­inísk skila­boð sem eiga erindi til allra.

Sterk skila­boð
Óhætt er að segja að sjaldan eða aldrei hafi tísku­sýn­ing­ar­pall­arnir verið eins stút­fullir af kvenna­krafti og á síð­ustu vikum og margir hönn­uðir gáfu okkur von um að hægt og rólega séu tím­arnir að breyt­ast til hins betra.

Tísku­heim­ur­inn virð­ist smám saman vera að brjóta niður veggi í stað­inn fyrir að byggja þá og leyfir ein­stak­lingum frekar að njóta sín óháð kyn­þætti, kyni, aldri, trú­ar­brögðum eða kílóa­fjölda.

Í ljósi þess að konur yfir sex­tugt eru með stærstu kaup­endum hátísku í heim­inum verður að þykja skrítið að þær sé sjaldan sýni­legar á tísku­sýn­ing­arpöll­unum eða í aug­lýs­ingum. Þess vegna var ein­stak­lega ánægju­legt að að sjá eldri konu ganga niður pall­inn fyrir tísku­húsið Simone Rocha.

Michael Kors fékk ofur­fyr­ir­sæt­una í „yfir­stærð“, Ashley Graham, til að sýna fötin sín.

Múslímska fyr­ir­sætan Halima Aden, sú fyrsta til að ganga niður tísku­sýn­ing­ar­pall á tísku­viku í New York með hijab bund­inn um höf­uðið.

Feminísk skila­boð komust vel til skila á tísku­sýn­ing­ar­palli Prabal Gurung sem sendi fyr­ir­sætur sínar niður pall­inn í rammpóli­tískum bolum.

Í loka­at­rið­inu hjá Missoni báru fyr­ir­sæt­urnar bleikar píku­húfur sem eru nýtt merki kven­rétt­inda­hreyf­ing­ar­innar (sbr. aðal­mynd).

Litadýrð

Michael Kors fékk ofur­fyr­ir­sæt­una í „yfir­stærð“, Ashley Graham, til að sýna fötin sín.

Margir stærstu tísku­hönn­uð­irnir fengu inn­blástur frá götu­tísk­unni og sendu fyr­ir­sætur niður pall­inn með ein­stak­lega lit­ríkt hár. Við sáum meðal ann­ars gular strípur hjá Versace, skær­blátt hár hjá Marc Jacobs, eldrautt hjá Saint Laurent og Barbie-bleikt hjá Dior.

Förðunin und­ir­strik­aði per­sónu­lega tján­ingu þeirra sem hana báru og lita­dýrð var víða að finna bak­sviðs.

Nú er tími til kom­inn að þora að vera „öðru­vísi“ og prófa sig áfram með liti sem við þorum vana­lega ekki að snerta. Augnskugga­pal­lettan Color Shot í stílnum Bold frá Smashbox er til­valin í verkið.

Baksviðs hjá Prada sendi förð­un­ar­goð­sögnin Pat McGrath þau skila­boð að förðun fyr­ir­sætn­anna sé frekar ætluð til per­sónu­legrar tján­ingar en til þess að þókn­ast öðru fólki.

Persónulegar klippingar

Í takt við ein­staka per­sónu­leika sem sáust víða á haust­tísku­sýn­ing­arpöll­unum voru sér­stakar klipp­ingar áber­andi. Nátt­úru­leg áferð á hári fyr­ir­sætn­anna fékk að njóta sín og töffara­legir drengja­kollar og bob-klipp­ingar komu sterkar inn.

Lengi lifi byltingin

Fyr­ir­sætur Dior báru leð­ur­alpa­húfur en alpa­húfan hefur löngum verið tengd bylt­ingu og upp­reisn en það má með sanni segja að upp­reisnin sé hafin innan tísku­heims­ins.

Það var ein­stak­lega ánægju­legt að að sjá eldri konu ganga niður pall­inn fyrir tísku­húsið Simone Rocha.

Texti / Helga Krist­jáns

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu