Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heilsubætandi frí

Víðs­vegar um heim bjóða heilsu­hæli upp á afslöppun, lík­ams­rækt, sól­böð og fleira.

Heilsubætandi frí

Hver hefur ekki lent í því að koma heim úr fríi bæði þreytt­ari og þybbn­ari en þegar hann fór út? Und­an­farin ár hafa svokölluð heilsu­hæli sprottið upp víða um heim. Þau bjóða upp hið full­komna frí – afslöppun, lík­ams­rækt og sól­böð. Þetta gefur þér tæki­færi til að losa þig við slæma ávana og hefja nýjan lífs­stíl. Það besta er að þú lítur betur út og þér líður mun betur þegar þú kemur heim. Heilsu­hælin hafa ýmsar ólíkar áherslur: jóga, fjall­göngur, her­manna­þjálfun og svo fram­vegis. Hér eru nokkrir spenn­andi kostir sem finn­ast í Evrópu.

Helsta sér­staða Shanti-Som er heild­ræn nálgun, þar er unnið jafn­mikið að and­legri heilsu og þeirri lík­am­legu.

Shanti-Som í Marbella á Spáni

Í heilsu­setr­inu Shanti-Som á Spáni mætir austrið vestr­inu. Stuðst er við fornar hefðir og athafnir til að vinda ofan af streitu nútím­ans og öllum fylgi­fiskum hennar.

Gestir hlaða batt­er­íin með því að stunda jóga og hug­leiðslu og með fersku, hreins­andi matar­æði.

Helsta sér­staða Shanti-Som er heild­ræn nálgun, þar er unnið jafn­mikið að and­legri heilsu og þeirri lík­am­legu. Gestir eru leiddir í gegnum hug­leiðslu, sjálf­skoðun og styrk­ingu. Mark­miðið er að hvetja, verð­launa og fræða en aldrei að dæma.

Gestir yfir­gefa setrið reiðu­búnir til að breyta lífs­stíl sínum til hins betra og ráða betur við streitu í sínu dag­lega lífi.

Best fyrir: Þá sem eru í leit að innri friði og vilja ná betri tökum á jóga.

Frekari upp­lýs­ingar á shant­isom.com.

38°N á Ibiza

Í 38°N er lögð meg­in­á­hersla á hámarks­ár­angur án ofþjálf­unar. Boðið er upp á fjöl­breytta og skemmti­lega hreyf­ingu en alls eru yfir fimm klukku­stundir af hreyf­ingu á dag. Þau sem reka fyr­ir­tækið bjóða upp á fjórar mis­mun­andi gerðir heilsu­fría því þau trúa ekki á að eitt henti öllum og sér­sníða ferð­ina fyrir hvern gest. Einnig leggja þau upp með að hafa hópa­stærðir litlar svo gest­irnir fái per­sónu­lega og góða þjón­ustu á meðan á dvöl­inni stendur. Allir ættu að geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi hjá 38°N, bæði hvað varðar lengd og gerð nám­skeiðs.

Best fyrir: Þá sem vilja fá góða og per­sónu­lega þjón­ustu.

Frekari upp­lýs­ingar á thirtyeightdegreesnorth.com.

Allir ættu að geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi hjá 38°N, bæði hvað varðar lengd og gerð nám­skeiðs.

Wildfitness á Krít

Hjá Wildfitness segja þau að nátt­úran sé einn öfl­ug­asti kenn­ar­inn sem völ er á.

Horft er aftur til upp­runa okkar þar sem mað­ur­inn þurfti að aðlag­ast erf­iðum aðstæðum og lifa af í nátt­úr­unni með aðeins hug­vit og lík­ams­styrk sinn að vopni.

Heilsu­fríið sem þau bjóða upp á bygg­ist því á nátt­úr­unni og þau leggja áherslu á þrennt: Wild Moving, veru í og hreyf­ingu í nátt­úr­unni með aðstoð reyndra leið­bein­enda, Wild Eating, ljúf­fengan, hreinan og nátt­úru­legan mat, og Wild Living, að læra að hlusta á lík­amann og finna nátt­úru­legan takt hans þegar kemur að hvíld, hleðslu og hreyf­ingu.

Mark­miðið er að end­urstilla og þjálfa hug og lík­ama þannig að gestir geti áfram notað þær lex­íur sem þeir lærðu eftir að heim er komið.

Frekari upp­lýs­ingar á wildfitness.com.

Spa í Puyssentut í Suður-Frakklandi og á Mallorca

Spa gefur sig út fyrir að blanda saman lík­ams­rækt, jóga, hollu matar­æði og nær­ingu, nuddi og slökun til að ná frá­bærum árangri. Þau lofa að eftir aðeins sjö daga muntu snúa aftur heim sem ný mann­eskja. Mjög tak­mark­aður fjöldi er í hverjum hóp til að tryggja per­sónu­lega þjón­ustu. Hver og einn fær nær­ing­ar­við­tal, reglu­lega nudd­tíma, einka­þjálfun, fjall­göngur með leið­sögn og ýmsa ein­tak­lings­ráð­gjöf. Vegna þess hve ein­stak­lings­miðað þetta heilsu­frí er þá hentar það bæði byrj­endum og lengra komnum og fólki á öllum aldri.

Best fyrir: Þá sem vilja lúxus á góðu verði.

Frekari upp­lýs­ingar á inspa-retr­eats.com.

Gaia House í Devon í Bretlandi

Gaia House er setur þar sem iðkuð er þögul hug­leiðsla. Setrið er heppi­lega stað­sett milli hæða og hóla í Suður-Devon og þar ríkir mikil kyrrð. Boðið er upp á heilsu­frí þar sem gestir fá hand­leiðslu og fræðslu í hefðum búdd­isma en sér­stök áhersla er lögð á vipass­ana eða

The Body Camp er mjög vin­sælt meðal þekktra ein­stak­linga í Bret­landi og lúx­us­inn er eftir því. Enginn ætti að láta lúx­us­inn blekkja sig því hér er á ferð­inni alvöru, alhliða heilsu­hæli.

inn­sæ­is­hug­leiðslu. Í frí­inu geta gestir aukið innri ró, visku og sam­kennd sína í gegnum hug­leiðslu og gjör­hygli. Kennarar koma hvaðanæva að og eru með gríð­ar­mikla reynslu á bak­inu.

Best fyrir: Þá sem vilja finna innri frið.

Frekari upp­lýs­ingar á gaiahouse.co.uk.

No.1 Boot Camp á Ibiza

Hér er á ferð­inni alvöru­æf­ing­ar­búðir og allir gestir sjá veru­legan árangur. Her­manna­þjálfun er iðkuð af krafti og hörku í sjö daga auk þess eru jóga­æf­ingar og nudd notað til að tryggja vellíðun og góðan vöðva­bata. Venju­legur dagur getur til dæmis ein­kennst af krefj­andi göngu­ferðum um hæðir eyj­unnar, styrkta­ræf­ingar, hóp­í­þróttir og fleira. Matar­æðið er strangt en samt hollt og gott.

Best fyrir: Þá sem vilja finna og sjá alvöru­ár­angur.

Frekari upp­lýs­ingar á no1bootcamp.com

The Body Camp á Ibiza

The Body Camp er mjög vin­sælt meðal þekktra ein­stak­linga í Bret­landi og lúx­us­inn er eftir því. Enginn ætti að láta lúx­us­inn blekkja sig því hér er á ferð­inni alvöru, alhliða heilsu­hæli. Vikan hefst á þol­prófi og lík­ams­mæl­ingu, frekar ógn­vekj­andi en nauð­syn­legt. Síðan eru dag­arnir upp­fullir af fjöl­breyttri og erf­iðri hreyf­ingu. En það sem dregur fólk helst að er mat­ur­inn sem er sér­snið­inn af kokk­inum Benjamin Whale. Matar­æðið er 80% plöntu­fæði sem er síðan bætt með hágæða kjöti og fiski. Í umsögnum talar fólk um að það hafi aldrei getað ímyndað sér að heilsu­fæði gæti smakk­ast svona vel.

Best fyrir: Þá sem vilja lúxus og ljúf­fengan mat.

Frekari upp­lýs­ingar á thebodycamp.com.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu