Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einkastundir barna

Gjafir sem inni­halda ást og hlátur hitta alltaf í mark hjá yngstu kyn­slóð­inni.

Einkastundir barna

Allir krakkar elska að fá pakka. Þeir geta komið í öllum stærðum og gerðum en þær gjafir sem hitta alltaf í mark inni­halda ást og hlátur. Þessar gjafir segja hvað skýr­ast: „Ég var að hugsa um þig“. Kostn­að­ur­inn er eng­inn enda eru dýr­ustu gjaf­irnar eru ekki þær bestu.

Barnið upp­lifir sig ein­stak­ara við það eitt að fá tíma þegar aðeins það á hug og hjörtu for­eldra sinna.

Öll börn þrá að eiga einka­stund með for­eldrum sínum. Barnið upp­lifir sig ein­stak­ara við það eitt að fá tíma þegar aðeins það á hug og hjörtu for­eldra sinna.  Það er jafn­framt mik­il­vægt fyrir for­eld­rana að eiga gæða­stund með barn­inu sínu.

Þegar tíma­leysið er algjört er snjallt að gera elda­mennsk­una að skemmti­legu stefnu­móti barns og for­eldris. Búð­ar­ferðin getur líka orðið að æsispenn­andi rann­sókn­ar­leið­angri og bíla­þvotta­stöðin reynst sann­kall­aður ævin­týra­heimur með réttu hug­ar­fari.  Því er mik­il­vægt að bregða reglu­lega út af van­anum, fara jafn­vel lengri leið­ina og finna það áhuga­verða í hvers­dags­legum við­komu­stöðum.

Þegar kemur að stefnu­móti er gott ráð að leyfa barn­inu að velja hvað það vill gera. Oft eru það ein­föld­ustu og ódýr­ustu lausn­irnar sem það leitar að. Þegar barnið fær tæki­færi til þess að velja verður skipu­lagn­ingin mun meira spenn­andi og barn­inu finnst það vera við stjórn.

Börn elska að hjálpa og hafa hlut­verk. Þvottakarfan getur til að mynda reynst hin besta skemmtun þegar barnið fær að taka þátt og sortera sokk­ana. Vissu­lega er oft fljót­legra að þjóta einn í búð­ina eða henda til­búnum rétti í ofn­inn en með því að virkja þátt­töku barn­anna og leyfa þeim að gera hlut­ina á sínum hraða söfnum við dýr­mætum augna­blikum í minn­inga­bank­ann sem verða aldrei metin til fjár.
Að fara á stefnu­mót með for­eldr­inu í bak­aríið getur sem dæmi orðið upp­spretta ynd­is­legra minn­inga síðar meir.

Foreldrasamviskubitinu sagt stríð á hendur

Stefnu­mótið þarf ekki að vera þaul­skipu­lagt því lausnin liggur oft í því að skapa augna­blik í hvers­dags­leik­anum. Með þessum hætti má kría út nokkrar dýr­mætar mín­útur í dag­legri rútínu og forð­ast um leið hið alræmda for­eldra­sam­visku­bit. Sam­veru­stundir sem oft eru af svo skornum skammti aukast í kjöl­farið og upp spretta nýjar hug­myndir af skemmti­legri afþr­ey­ingu með barn­inu.

Þegar kemur að skipu­lögðu stefnu­móti er gott ráð að leyfa barn­inu að velja hvað það vill gera.

Þegar kemur að skipu­lögðu stefnu­móti er gott ráð að leyfa barn­inu að velja hvað það vill gera. Oft eru það ein­föld­ustu og ódýr­ustu lausn­irnar sem það leitar að. Þegar barnið fær tæki­færi til þess að velja verður skipu­lagn­ingin mun meira spenn­andi og barn­inu finnst það vera við stjórn.

Að kasta steinum í læk eða safna lauf­blöðum getur verið hin mesta skemmtun. Tína köngla og mála síðan heima, eða fara í fjár­sjóðs­leit í skóg­inum. Rann­sókn­ar­leið­angur um hverfið eða heim­sókn á skóla­lóð­ina fyrir til­von­andi nem­endur. Meira að segja kanilsnúða­bakstur getur vakið upp mikla kátínu eða barn sem fær að telja kart­öflur ofan í kvöld­verð­ar­pott­inn. Kostn­að­ar­hliðin þarf því ekki að vefj­ast fyrir fjársveltum for­eldrum og enn síður fyr­ir­höfnin. Ein­föld­ustu atriði geta vakið stór­kost­lega kæti hjá börnum.

Ekki van­meta úti­ver­una, það er flest auð­veld­ara að vera úti, hvort sem það er göngu­ferð, hjóla­ferð eða könn­un­ar­leið­angur. Ferska loftið gerir öllum gott. Tímara­mm­inn er síðan annað mál. Margir for­eldar bera fyrir sig tíma­leysi og áætla að til þess að stefnu­mótið eigi að bera til­ætl­aðan árangur verði það að vera langt. Viðveran mun kannski taka nokkrar klukku­stundir en barnið mun muna eftir því og tala um það í langan tíma á eftir. Eins ber að hafa í huga að gleðirammi barna er ákveðið langur og auð­velt fyrir for­eldra að mikla hluti óþarf­lega fyrir sér.

Nokkrar hugmyndir af einkatíma barns

Leyfðu barn­inu að velja hvað er í mat­inn og hvar þið borðið hann, hvort sem það er heima eða á veit­inga­staðnum. Sjálfs­traust barna eykst með því að fá að stjórna.

Ef þú ert for­eldri hef­urðu sjálf­sagt heyrt setn­ing­una sjáðu mig oftar en einu sinni. Gefðu barn­inu athygl­ina – leyfðu því að vera í sviðs­ljós­inu.

Eftir kvöld­baðið er ómet­an­leg stund að barnið velji sér bók til að lesa. Þannig sam­ein­ast það for­eldri sínu í dags­ins lok sem reyn­ist oftar en ekki besta stund hans fyrir inni­leg sam­töl.

Fyrir suma eru morgn­arnir besti tím­inn sem for­eldrið getur átt með börnum sínum en fyrir aðra eru kvöldin þeirra tími. Nýtið tím­ann og styrk­leika barn­anna til fulls.

Setið upp skipu­lagt stefnu­mót með hverju barni fyrir sig.

Súperkvöld er önnur hug­mynd að skemmti­legri til­breyt­ingu fyrir barna­fólk en það eru kvöld sem börnin ráða ferð­inni í einu og öllu.

Höfundur / Íris Hauks­dóttir
Myndir / www.pixabay.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu