Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fegurð og form

Arki­tektúr í París.

Fegurð og form

Þegar fólk hugsar um bygg­ing­ar­list Parísar þá dettur því yfir­leitt í hug Eiffel-turn­inn, Notre Dame eða jafn­vel Pompidou-safnið. Í úthverfum borg­ar­innar leyn­ast hins vegar gjör­ó­líkar og mjög fram­úr­stefnu­legar bygg­ingar sem vert er að skoða.

Í kjöl­far loka seinni heims­styrj­aldar hófst gríð­ar­legur fólks­flutn­ingur til Parísar, bæði úr sveitum Frakk­lands og frá öðrum löndum. Borg­ar­yf­ir­völd brugðu á það ráð að byggja stórar fjöl­býl­is­húsa­sam­stæður, grands ens­embles, í úthverfum borg­ar­innar. Á sjötta ára­tugnum voru reistar bygg­ingar í hinum hag­nýta móderníska stíl, stórir háir turnar sem voru umluktir opnum grænum svæðum. Fljót­lega upp úr 1970 byrj­uðu arki­tektar að aðhyll­ast frekar póst­módern­isma sem ein­kennd­ist af fjöl­breyti­leika, skrauti, húmor og vísun í for­tíð­ina.

Á árunum á eftir risu fjöl­margar skraut­legar sam­stæður. Hópur ungra fram­bæri­legra arki­tekta sá tæki­færi í skipu­lags­upp­dráttum fyrir ný úthverfi, vil­les nouvelles, til að láta ljós sitt skína. Þeir not­uðu nútíma­lega bygg­ing­ar­tækni til að sýna fram á að hægt væri að byggja fjöl­býli fyrir félags­í­búðir á stórum skala án þess að fórna feg­urð­inni og glæsi­leik­anum.

Ríflega þrjá­tíu árum eftir að þær voru byggðar liggja lang­flestar þess­ara bygg­inga undir skemmdum, enda hafa þær bara upp­skorið háð og spott Par­ís­ar­búa í mörg ár. Því verður þó ekki neitað að arki­tekt­unum tókst ætl­un­ar­verk sitt, að gera fólki kleift að búa í fal­legum bygg­ingum sem voru á við­ráð­an­legu verði. Þeir ein­beittu sér þó kannski of mikið að útliti bygg­ing­anna og minna að því að skapa sam­fé­lag fyrir íbú­ana.

Les Espaces d’Abraxas er hug­ar­fóstur spænska arki­tekts­ins Ricardos Bofill.

Les Espaces d’Abraxas er hug­ar­fóstur spænska arki­tekts­ins Ricardos Bofill. Hann vildi hanna glæsi­legan minn­is­varða fyrir hið nýja úthverfi Marne-La-Vallée sem einnig væri búið í. Bygg­ing­ar­stíll­inn vísar mikið í klass­ískan franskan bygg­ing­ar­stíl en með nútíma­legum stíl­brigðum. Íbúð­irnar í sam­stæð­unni eru 591 tals­ins og skipt­ast í þrjá hluta. Le Palacio er 18 hæða blokk­ar­bygg­ing sem hýsir 441 íbúði. Le Théatre er boga­dregin bygg­ing sem myndar torg í miðj­unni sem svipar til róm­versks leik­húss og hýsir 130 íbúðir sem allar vísa bæði inn að torg­inu og út að París. Að lokum er L’Arc, lítil bygg­ing í miðju torgs­ins, eins og sig­ur­bogi, en sú bygg­ing hýsir 20 íbúðir á 9 hæðum.

Bygg­inga­sam­stæðan við Place Pablo Picasso.

Bygg­inga­sam­stæðan við Place Pablo Picasso er stein­snar frá Les Espaces d’Abraxas. Bygg­ing­arnar rað­ast í átt­hyrn­ing og á sitt­hvorum end­anum eru mjög sér­stakar 17 hæða hring­laga bygg­ingar. Sam­stæðan hýsir 540 íbúðir, leik­skóla, gagn­fræða­skóla, íþrótta­velli og nokkrar versl­anir. Heið­ur­inn af þess­ari heild­rænu og metn­að­ar­gjörnu hönnun á Manolo Nunez Yanowsky en hann segir að hring­laga bygg­ing­arnar tákni hjól á vagni sem hefur hvolft.

Les Orgues de Flandre er bygg­inga­sam­stæða í 19. hverfi Parísar.

Les Orgues de Flandre, sem þýðir í raun líf­færi Flanders, er bygg­inga­sam­stæða í 19. hverfi Parísar. Bygg­ing­arnar voru hann­aðar af arki­tekt­inum Martin van Trek um mið­bik átt­unda ára­tug­ar­ins en bygg­ingu þeirra lauk árið 1980. Fjórir him­in­háir turnar ein­kenna sam­stæð­una þó að flestar bygg­ing­anna séu um fimmtán hæðir en þær ná yfir 6 hekt­ara land­svæði.

Les Tours Aillaud sam­stæðan sam­anstendur af 18 turnum sem eru allt frá 13 og upp í 20 hæðir.

Á útjaðri La Défense-við­skipta­hverf­is­ins rísa Les Tours Aillaud, nefndir eftir hönn­uði þeirra Émile Aillaud. Sam­stæðan sam­anstendur af 18 turnum sem eru allt frá 13 og upp í 20 hæðir. Fyrir utan hæð­ar­mis­mun­inn er lögun turn­anna sú sama, nokkrir sam­settir sívaln­ingar. Utan á klæðn­ing­unni eru freskur með skýjum og þess vegna eru bygg­ing­arnar stundum kall­aðar Les Tours Nuages í dag­legu tali, sem útleggst sem skýja­t­urn­arnir á íslensku.

Bygg­inga­sam­stæða frá Ricardo Bofill.

Önnur stór­kost­leg bygg­inga­sam­stæða frá Ricardo Bofill er í úthverf­inu Saint-Quentin-en-Yvelines skammt frá Ver­sala­höll. Eins og Les Espaces d’Abraxas skipt­ist þessi bygg­inga­sam­stæða í þrjá hluta: Le Viaduc sam­anstendur af 74 íbúðum í sex blokkum sem reistar eru í röð út í vatnið, tengdar samar með göngu­götu og litlum brúm. Les Arcades du Lac eru fjórar kassa­laga bygg­ingar með sam­eig­in­legum garði í miðj­unni á hverri þeirra. Íbúð­irnar eru 389 tals­ins, á þremur hæðum, sem allar snúa bæði inn að garði og út að umhverf­inu. Le Temple er svo á hinum enda vatns­ins en sá hluti sam­anstendur af meg­in­bygg­ingu og tveimur boga­dregnum bygg­ingum sem hýsa 200 íbúðir. Bofill seg­ist hafa viljað útfæra franskan garð, líkt og þann sem er við Ver­sala­höll, þar sem bygg­ingar kæmu í stað snyrtra runna og ef svæðið er skoðað úr lofti má sjá hvað hann átti við.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu