Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tískupönkari sem fer eigin leiðir

Fata­hönn­uð­ur­inn Vivienne Westwood hefur ávallt farið sínar eigin leiðir.

Tískupönkari sem fer eigin leiðir

Vivienne Westwood hóf feril sinn á átt­unda ára­tugnum og tók þátt í því að móta pönk­tísku þess tíma. Í dag ber hönnun hennar enn keim af pönk­inu því hún er óhrædd við að prófa eitt­hvað nýtt og vísa í það gamla.

Vivienne Westwood og Malcolm McLaren. Vivienne er hér í bol með mynd­inni sem prýddi hið fræga plötu­umslag hljóm­sveit­ar­innar Sex Pistols.

Vivienne Isabel Swire fædd­ist árið 1941 í enskum smábæ í Der­bys­hire-hér­aði. Þar var iðn­bylt­ingin alls­ráð­andi og lítið benti til þess að hún myndi seinna leggja list­grein fyrir sig. Faðir hennar var skó­smiður og mamma hennar vann í bómull­ar­verk­smiðju sam­hliða heim­il­is­stör­f­unum. „Ég vissi ekk­ert um lista­söfn og hafði aldrei séð lista­verka­bók. Ég hafði ekki einu sinni farið í leik­hús,” segir hún.

Þegar Vivienne var sautján ára flutti fjöl­skyldan til Harrow, úthverfi London, og hún hóf kenn­ara­nám. Henni þótti alltaf gaman að föndra skart­gripi og sauma föt á sjálfa sig. Skömmu seinna kynnt­ist hún fyrsta eig­in­manni sínum, Derek Westwood, sem starf­aði í Hoover-verk­smiðj­unni. Þau giftu sig árið 1962, Vivienne saum­aði sjálf brúð­ar­kjól­inn, og eign­uð­ust son sinn Benjamin ári seinna.

Árið 1971 opn­aði Malcolm versl­un­ina Let it Rock á Kings Road og seldi fatnað sem þau hönn­uðu í sam­ein­ingu en vöru­merkið var engu að síður undir hennar nafni, Vivienne Westwood. Inn­blástur fengu þau úr öllum áttum; vænd­is­konum, mót­or­hjóla­gengjum og blæt­is­klæðn­aði.
Vivienne Westwood Red Label S/S 16.

Nokkrum árum eftir brúð­kaupið umturn­að­ist líf hennar þegar hún kynnt­ist lista­nem­anum Malcolm McLaren og varð yfir sig ást­fangin. Þau fluttu saman í félags­í­búð í Clapham, London og hún hélt áfram að starfa sem kenn­ari ásamt því að búa til skart­gripi sem hún seldi á Por­to­bello-mark­að­inum um helgar. „Malcolm opn­aði ýmsar dyr fyrir mér og virt­ist vita nákvæm­lega hvað ég þurfti þannig að ég hengdi mig á hann,” segir hún. Þau eign­uð­ust son­inn Joseph árið 1967.

Árið 1971 opn­aði Malcolm versl­un­ina Let it Rock á Kings Road og seldi fatnað sem þau hönn­uðu í sam­ein­ingu en vöru­merkið var engu að síður undir hennar nafni, Vivienne Westwood. Inn­blástur fengu þau úr öllum áttum; vænd­is­konum, mót­or­hjóla­gengjum og blæt­is­klæðn­aði.

Nafn versl­unar breytt­ist reglu­lega á næstu árum en lengst af var hún þekkt ein­fald­lega sem SEX. Á þessum Malcolm var einnig umboðs­maður pönk­sveit­ar­innar Sex Pistols og þeir klædd­ust iðu­lega Vivienne Westwood-hönnun á sviði. Fljót­lega byrj­uðu fylgj­endur hljóm­sveit­ar­innar sem og aðrir að flykkj­ast í versl­un­ina og Vivienne og Malcolm mót­uðu tísku pönk­tíma­bils­ins.

Vivienne Westwood saum­aði sinn eigin brúð­ar­kjól í bæði skiptin sem hún gekk í hjóna­band en árið 2008 gafst henni tæki­færi til að sauma brúð­ar­kjól á eina fræg­ustu sjón­varps­per­sónu tíunda ára­tugs­ins, Carrie Bradshaw úr Sex and the City. Kjóllinn var stór­feng­legur að sjá en Carrie komst því miður aldrei alla leið að alt­ar­inu í honum.

Vivienne var þó hvergi af baki dottin þegar pönkið leið undir lok, enda vildi hún frekar leiða tísk­una en fylgja henni. Þekkt stíl­brigði hennar eru til dæmis ókláraðir og tættir faldar, dragtir og jakka­föt, sögu­legar skír­skot­anir og notkun á skosku ull­ar­efni, eða tartan, tjulli, blúndu og leðri.

Fyrst og fremst er Vivienne ótta­laus og blátt áfram þegar kemur að hönnun. Í gegnum tíð­ina hefur hún reglu­lega valdið usla og hefur látið ýmis mál­efni sig varða, svo sem mann­rétt­indi, hlýnun jarðar og vatns­skort. Áhrif hennar á breska tísku­heim­inn og menn­ing­ar­líf eru hins vegar óneit­an­leg og hún hefur tvisvar verið val­inn hönn­uður árs­ins í Bret­landi og hlaut orðu breska heims­veld­is­ins árið 1992.

Þrátt fyrir þessa vel­gengni hefur Vivienne búið í sömu litlu íbúð­inni í Suður- London í rúm þrjá­tíu ár og hjólar enn þá í stúd­íóið sitt. Árið 1993, tíu árum eftir að hún og Malcolm slitu sam­vistum, gift­ist hún í annað sinn og þá aðstoð­ar­manni sínum, Andreas Kront­haler, sem er tutt­ugu og fimm árum yngri en hún. Þau eru eru enn ham­ingju­sam­lega gift í dag og vinna saman að hönnun merk­is­ins.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu