Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jólasveinar einn og átta

Í kvik­myndum er að finna alls kyns áhuga­verðar útfærslur á jóla­svein­inum.

Jólasveinar einn og átta

Þó að við á Íslandi séum vön bræðr­unum þrettán sem við köllum jóla­sveina þekkjum við samt öll káta, rauð­klædda jóla­svein­inn sem á hug og hjörtu barna um allan heim. Í kvik­myndum er að finna alls kyns útfærslur á sveinka, bæði góðar og slæmar, og hér eru nokkrar þeirra.

Mynd­irnar um Bad Santa segja frá Willie Stokes sem flakkar, ásamt félaga sínum, á milli versl­ana­mið­stöðva og ræna hvern ein­asta stað sem þeir koma á.

Vondi jóli

Mynd­irnar um Bad Santa segja frá svika­hrapp­inum Willie Stokes sem flakkar, ásamt félaga sínum, á milli versl­ana­mið­stöðva klæddur sem jóla­sveinn en í stað­inn fyrir að breiða út fagn­að­ar­er­indi jól­anna er mark­mið tvíeyk­is­ins að ræna hvern ein­asta stað sem þeir koma á. Í fyrri mynd­inni kynn­ist Willie átta ára gömlum krakka sem flækir svo sann­ar­lega hlut­ina fyrir honum. Önnur myndin var frum­sýnd í lok nóv­em­ber. Í henni nálg­ast jólin á ný og Willie er við sama hey­garðs­hornið og áður, nú safnar hann pen­ingum fyrir bág­stadda en hirðir svo pen­ing­ana sjálfur. Willie vill samt enn meira, fégráð­ugur sem hann er, og því ákveður hann að ræna vel­stæð góð­gerð­ar­sam­tök í slag­togi við smá­vaxna félaga sinn, Marcus, og móður sína, Sunny.

Nýr jólasveinn

Í mynd­inni The Santa Clause, sem er fyrsta myndin í þrí­leik, er sagt frá Scott Calvin. Hann er bara venju­legur maður sem lendir í því óhappi að jóla­sveinn­inn dettur af þaki hans og slasast á aðfanga­dags­kvöld. Scott og sonur hans, Charlie, finna 8 hrein­dýr á þak­inu og þeir ákveða að klára að send­ast með pakk­ana fyrir sveinka. Að ferð­inni lok­inni fara þeir til Norð­ur­póls­ins þar sem Scott er tjáð að hann verði að ger­ast nýi jóla­sveinnin og hafi því 11 mán­uði til að ganga frá sínum málum og mæta aftur á pól­inn á þakk­ar­gjörð­ar­dag­inn.

Í Miracle on 34th Street virð­ast öll börn New York-borgar sann­færð um að Kris Kringle, nýi jóla­sveinn­inn í Cole’s-stór­versl­un­inni, sé hinn raun­veru­legi jóla­sveinn.

Kraftaverkajól

Í Miracle on 34th Street virð­ast öll börn New York-borgar sann­færð um að Kris Kringle, nýi jóla­sveinn­inn í Cole’s-stór­versl­un­inni, sé hinn raun­veru­legi jóla­sveinn. Vin­sældir Kris vekja bæði tor­tryggni og afbrýði­semi meðal ann­arra jóla­sveina og versl­un­ar­eig­enda. Þeir reyna að taka hann úr umferð með því að höfða dóms­mál gegn honum. Þá kemur lög­mað­ur­inn Bryan Bedford og reynir að sanna til­vist jóla­sveins­ins og vinna málið. Það reyn­ist auð­vitað ekki ein­falt mál en eins og allir vita þá ger­ast krafta­verk á jól­unum.

Yngri sonur jólasveinsins

Í teikni­mynd­inni Arthur Christmas fáum við loks svar við ráð­gát­unni um hvernig jóla­svein­inum tekst að afhenda allar gjaf­irnar á einni nóttu. Starf­semin á Norð­ur­pólnum ein­kenn­ist af útpældu skipu­lagi og mik­illi hátækni sem er vel falin fyrir okkur hinum. En undir niðri leyn­ist venju­leg fjöl­skylda sem fer á kostum í góð­lát­legum deilum og valda­bar­áttu. Yngri syni jóla­sveins­ins, Arthur, er enn mjög annt um anda jól­anna og þegar hann fær óvænt upp í hend­urnar óend­an­lega mik­il­vægt verk­efni leggur hann allt í söl­urnar til þess að klára það áður en jólin renna upp.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu