Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tíu flottustu jólamarkaðir í Evrópu

Fátt er skemmti­legra og jóla­legra en að spóka sig um á fal­legum jóla­mörk­uðum.

Tíu flottustu jólamarkaðir í Evrópu

Einn þekkt­asti jóla­mark­að­ur­inn er í Nurem­berg í Þýska­landi (sjá mynd hér að ofan) þrátt fyrir að vera hvorki sá stærsti né elsti en umgjörðin er mjög fal­leg. Hann byrj­aði árið 1628 og var upp­haf­lega mið­stöð við­skipta með hand­gerðar við­ar­styttur. Mark­að­ur­inn er þekktur fyrir mat­inn sem þar er í boði og á kvöldin er hann lýstur upp með hund­ruðum ljósa, ásamt því sem hljóm­sveitir spila allt milli him­ins og jarðar.

_______________________________________________________________

Garð­ur­inn í kringum mark­að­inn er lýstur upp með jóla­ljósum.

Vín
The Christkindlmarkt er á torg­inu fyrir framan ráð­húsið í Vín og er einn elsti jóla­mark­aður Evrópu, enda 700 ára gam­all. Hann er opn­aður um miðjan nóv­em­ber sem er hent­ugt fyrir þá sem vilja sleppa við ösina þegar nær dregur jólum. Garð­ur­inn í kringum mark­að­inn er lýstur upp með jóla­ljósum sem setur ævin­týra­legan blæ á svæðið.

_______________________________________________________________

Köln
Jóla­mark­aðir í Köln í Þýska­landi draga að sér millj­ónir gesta víða úr heim­inum fyrir hver jól. Sá vin­sæl­asti í borg­inni er „Am Com“ sem er á torg­inu fyrir framan tveggja turna kirkj­una.

_______________________________________________________________

Jóla­mark­að­ur­inn í Dresden í Þýska­landi á rætur sínar að rekja til árs­ins 1434.

Dresden
Jóla­mark­að­ur­inn í Dresden í Þýska­landi á rætur sínar að rekja til árs­ins 1434 og er sá elsti í Evrópu. Heima­menn eru sér­stak­lega stoltir af Striezelmarkt sem er nefndur eftir ávaxta­kök­unni Striezel eða Stollen. Hápunktur mark­að­ar­ins er The Stollen Festival sem haldið er annan sunnu­dag í des­em­ber.

_______________________________________________________________

Mark­að­ur­inn á Grand Place-torgi í Brussel er þekktur fyrir frá­bæran mat, jólaglögg og belgískt konfekt.

Brussel
Mark­að­ur­inn er á hinu glæsi­lega Grand Place-torgi í Brussel og er þekktur fyrir frá­bæran mat, jólaglögg og belgískt konfekt. Jóla­ljósin lýsa upp kof­ana sem standa fyrir mis­mun­andi Evr­ópu­lönd og þar er hægt að fá allt milli him­ins og jarðar.

_______________________________________________________________

Jólalegt um að lít­ast í München í Þýska­landi.

München
Í des­em­ber bein­ast öll spjót að Marienplatz sem er í hjarta gamla bæj­ar­ins í München í Þýska­landi en þar er stærsti jóla­mark­aður borg­ar­innar. Hann opnar föstu­dag­inn fyrir fyrsta í aðventu þegar þús­undir manna koma saman á torg­inu þegar kveikt er á 30 metra háu jóla­trénu. Yfir 140 básar eru á torg­inu og hægt að kaupa fullt af flottum, hand­gerðum munum.

_______________________________________________________________

Í Prag er stærsti jóla­mark­að­ur­inn á Old Town Square-torg­inu.

Prag
Tékkar taka jólin alvar­lega og mikið er um að vera í höf­uð­borg­inni Prag á aðvent­unni. Jóla­mark­að­irnir eru þó frekar lág­stemmdir og fjöl­skyldu­vænir, stað­settir víða um borg­ina en sá stærsti er á Old Town Square-torg­inu.

_______________________________________________________________

Mark­að­ur­inn í Tallin er afar róm­an­tískur og þar er nota­legt and­rúms­loft.

Tallinn
Jóla­mark­að­ur­inn í Tallin í Eist­landi er ungur að árum, enda ekki opn­aður fyrr en árið 1991. Mark­að­ur­inn er afar róm­an­tískur og þar er nota­legt and­rúms­loft en hann er stað­settur á Raekoja Plats-torg­inu í gamla bænum. Fyrir þá sem þrá snjó­inn er næstum bókað að fá hann þarna.

_______________________________________________________________

Í Berlín er meiri nútíma­bragur yfir jóla­mörk­uð­unum en ann­ars staðar í Þýska­landi

Berlín
Í Berlín er meiri nútíma­bragur yfir jóla­mörk­uð­unum en ann­ars staðar í Þýska­landi og þeir eru stað­settir um alla borg­ina. Sá vin­sæl­asti og mest heim­sótti er í kringum Kaiser Wilhelm Gedächtniskirche og flott að sjá alla bás­ana í kringum kirkj­una. Kirkjan varð fyrir árás í síð­ari heims­styrj­öld­inni og rústir hennar standa enn til minn­ingar um stríðið.

_______________________________________________________________

Tívolíið í Kaup­manna­höfn í Danmörku er elsti skemmti­garður í Evrópu. Þar er jóla­mark­aður ár hvert.

Kaup­manna­höfn
Tívolíið í Kaup­manna­höfn í Danmörku er elsti skemmti­garður í Evrópu. Þar er jóla­mark­aður ár hvert með hund­ruðum jólatrjáa og yfir hálfa milljón jóla­ljósa sem lýsa upp garð­inn. Tjörn­inni er breytt í skauta­svell og gestir geta leigt skauta. Yfir 60 lit­ríkir básar eru á staðnum og hægt að fá fjöl­breyttar vörur.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu