Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Lítill tími í tilhugalíf“

Sjöfn Krist­jáns­dóttir selur prjóna­upp­skriftir af barna­fötum sem hún hannar á vef­versl­un­inni Petit Knitting.

„Lítill tími í tilhugalíf“
Hjónin Sjöfn Krist­jáns­dóttir og Grétar Karl Arason.

Sjöfn Krist­jáns­dóttir prjón­aði svo mikið á son sinn í fæð­ing­ar­or­lof­inu að eig­in­maður hennar, Grétar Karl Arason, stakk upp á því að hún gerði þetta að atvinnu. Hug­myndin var gripin á lofti og vef­versl­unin Petit Knitting varð til þar sem hægt er að kaupa prjóna­upp­skriftir af barna­fötum sem Sjöfn hannar.

„Þessi hug­mynd kom þegar ég var í fæð­ing­ar­or­lofi með Ara, sem er 1 árs, en þá prjón­aði ég alveg eins og vind­ur­inn á hann. Eitt kvöldið spurði Grétar mig af hverju ég gerði ekki eitt­hvað úr þessu, hvort ég gæti ekki skrifað upp þessar upp­skriftir og selt. Ég hef sjálf aldrei farið eftir upp­skriftum því mér finnst þær oft of flóknar og hef því alltaf verið að breyta þeim og laga að mínu smekk. Við kýldum hug­mynd­ina í gang og þetta átti að vera svona auka áhuga­mál en þrátt fyrir að það séu aðeins sex mán­uðir síðan við byrj­uðum erum við orðin stórt nafn í íslenskum prjóna­heimi með yfir fjögur þús­und fylgj­endur á Facebook og yfir tvö þús­und fylgj­endur á Instagram. Við byrj­uðum með eina upp­skrift en erum núna komin með yfir 30 upp­skriftir í sölu. Grétar sér um tækni­legu hlið­ina, kaupir aug­lýs­ingar og heldur utan um mark­aðs­setn­ingu og fjár­málin. Ég sé um að hanna, skrifa og prjóna upp­skrift­irnar og taka myndir af því sem ég hef verið að gera,“ segir Sjöfn.

„Ég hef sjálf aldrei farið eftir upp­skriftum því mér finnst þær oft of flóknar og hef því alltaf verið að breyta þeim og laga að mínu smekk.“

Skandinavísk hönnun

Sjöfn er for­stöðu­maður í dægradvöl Vatns­enda­skóla og Grétar er við­skipta­stjóri hjá Símanum. Þau eiga tvö börn, Sögu Sjafnar, sem er 11 ára, og Ara Sjafnar, sem er eins og áður sagði nýorð­inn eins árs. „Petit Knitting er þriðja barnið og er vef­verslun með

„Ég legg mikið upp úr því að hafa upp­skrift­irnar mínar ein­faldar, skýrar og aðgengi­legar þannig að allir prjón­a­rar kom­ist í gegnum þær.“

prjóna­upp­skriftir. Við seljum upp­skriftir í stykkja­tali en það er svo­lítil vöntun á því hér á landi. Nú gefst fólki kostur á því að versla þessa einu upp­skrift sem það langar í án þess að þurfa að kaupa heilt blað eða heila bók. Svo er þetta líka allt raf­rænt hjá okkur sem gerir okkur umhverf­is­væn. Grétar vinnur að heiman eins og er og sér um Ara á meðan ég vinn frá 8-16 á dag­inn. Ég kem svo heim og tek við og Grétar klárar það sem þarf að gera í hans vinnu. Svo er eldað, baðað, sett í þvotta­vélar, látið læra heima og komið í hátt­inn. Þegar heim­ilið er komið í ró sest ég við prjóna­skap og prjóna þar til ég fer að sofa. Það er alltaf nóg að gera hjá okkur og lít­ill tími í til­huga­líf,“ segir hún hlæj­andi.

„Við erum aðal­lega að hanna upp­skriftir að barna­fötum. Við byrj­uðum að hanna föt í stærðum 0-2 ára en erum nú komin með upp­skriftir í stærðum 0-10 ára. Það var eft­ir­spurn eftir stærri stærðum svo við urðum við þeirri beiðni. Eins og er eru allar upp­skriftir á íslensku og nokkrar höfum við þýtt yfir á ensku. Um þessar mundir er verið að þýða allar upp­skriftir yfir á dönsku og svo er mark­miðið að koma öllum upp­skriftum yfir á norsku og ensku líka. Skand­in­avía er stór og prjóna­á­hugi í lönd­unum þar er mjög mik­ill. Hönnun mín er í skand­in­av­ískum stíl svo mögu­leikar okkar eiga eftir að marg­fald­ast þegar við komum upp­skriftum yfir á Norð­ur­landa­málin sem og á ensku. Nafnið á fyr­ir­tæk­inu er eig­in­lega sam­eig­in­leg ákvörðun mín og vin­kvenna minna, þeirra Abbýjar og Ástríðar. Ég henti nokkrum nöfnum á þær og við vorum svo sam­mála um að Petit Knitting væri full­komið. Það er bæði alþjóð­legt og lýsir því sem ég er að gera – að prjóna á litla fólkið.“

Með tíu þumalfingur

Áhuginn á prjóna­skap og hönnun byrj­aði snemma hjá Sjöfn. „Mamma, Guðný Guð­munds­dóttir, var mikil prjóna­kona og hann­aði og seldi flíkur eftir sjálfa sig. Hún hlaut einnig gull­prjóna árs­ins 1995 sem voru veittir af prjóna­búð­inni Tinnu fyrir prjóna­skap og hönnun. Ég var sjálf 13 ára þegar ég prjón­aði fyrstu flík­ina mína hjálp­ar­laust en það var húfa og að sjálf­sögðu var hún ekki prjónuð eftir upp­skrift. Eftir það var ekki aftur snúið og hef ég verið að prjóna síðan en með nokkrum hléum þó. Ég útskrif­að­ist svo árið 2002 af hönn­unar- og textíl­braut frá FB en fór svo í upp­eldis- og mennt­un­ar­fræði í HÍ og tók meist­ara­próf í því fagi. Hönnunin hefur samt alltaf yfir­hönd­ina þó að ég þurfi að sinna henni í frí­tíma mínum eins og er. Ég stefni að því að geta unnið við þetta sem aðal­starf eftir um það bil tvö ár.“

„Hönnun mín er í skand­in­av­ískum stíl svo mögu­leikar okkar eiga eftir að marg­fald­ast þegar við komum upp­skriftum yfir á Norð­ur­landa­málin sem og á ensku,“ segir Sjöfn.

Hún er enn sú eina í fjöl­skyld­unni sem prjónar en hún hefur reynt að ná mann­inum sínum og dóttur í þetta með sér. „Ég hef mikið reynt að fá Grétar til að grípa í prjón­ana því ég er með svo margar hug­myndir í koll­inum en bara tvær hendur svo það er fullt af hug­myndum sem þurfa að bíða. En hann hefur ekki fallið í þá freistni enn þá. Hann seg­ist vera með tíu þum­al­putta. Saga er aðeins byrjuð að prjóna með mér en þol­in­mæðin er ekki alveg nógu mikil enn þá. Hún hefur þó mik­inn áhuga á því sem ég er að gera svo það er aldrei að vita hvernig fram­tíðin verður hjá henni. Hún er mjög skap­andi en það er spurn­ing á hvaða sviði sköp­unar hún endar. Ari hefur mjög mik­inn áhuga á garn­hniklum en það kemur í ljós hvort hann verði með tíu þum­al­fingur eins og pabbi sinn.“

„Ég legg mikið upp úr því að hafa upp­skrift­irnar mínar ein­faldar, skýrar og aðgengi­legar þannig að allir prjón­a­rar kom­ist í gegnum þær. Það er fátt leið­in­legra en flóknar og óskýrar upp­skriftir sem gera það að verkum að maður endar með því að henda prjón­unum ofan í skúffu.“

Annars eru spenn­andi tímar fram undan og mark­að­ur­inn sívax­andi eftir því sem upp­skrift­irnar eru þýddar á fleiri tungu­mál. „Ég legg mikið upp úr því að hafa upp­skrift­irnar mínar ein­faldar, skýrar og aðgengi­legar þannig að allir prjón­a­rar kom­ist í gegnum þær. Það er fátt leið­in­legra en flóknar og óskýrar upp­skriftir sem gera það að verkum að maður endar með því að henda prjón­unum ofan í skúffu,“ segir Sjöfn að lokum.

Nánari upp­lýs­ingar eru á heima­síð­unni petitknitt­ing.com, á Instagram undir petitknitt­ing_iceland og á Facebook undir Petitknitt­ing.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir /Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu