Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Konur í karlaveldi

Fjórir fræg­ustu kven­leik­stjórar sam­tím­ans.

Konur í karlaveldi
|

Kvik­mynda­brans­inn er algjört karla­veldi; karlar reka fram­leiðslu­fyr­ir­tækin, vinna flest verð­laun, fá betur borgað fyrir leik sinn í kvik­myndum og svona mætti lengi telja. Það hallar sér­stak­lega á kven­kyns­leik­stjóra. Ein skýr­ingin á þessu er að konur eru ekki með­vit­aðar um full­trúa sína innan þess­arar stéttar og átta sig því ekki á að þetta sé mögu­legur starfs­fer­ill fyrir þær. Við viljum því fjalla um fjóra fræg­ustu kven­leik­stjór­ana í brans­anum um þessar mundir.

Kathryn Bigelow
Einn fræg­asti kven­leik­stjóri sam­tím­ans er Kathryn Bigelow (á mynd­inn hér að ofan). Hún var lengi gift öðrum frægum leik­stjóra, James Cameron, sem leik­stýrði meðal ann­ars Titanic. Kathryn er þekkt fyrir fremur karllægar kvik­myndir svo sem Zero Dark Thirty og Point Break og var fyrsta konan til að vinna Ósk­arsverð­laun fyrir leik­stjórn kvik­mynd­ar­innar The Hurt Locker árið 2008.

„Ef það er ein­hver mót­staða gegn því að konur séu að gera kvik­myndir þá kýs ég að leiða hana alveg hjá mér af tveimur ástæðum: Ég get ekki breytt kyni mínu og ég þver­neita að hætta að gera kvik­myndir.“

________________________________________________________________

Sofia Copola vann Ósk­arsverð­laun árið 2004 fyrir hand­ritið að Lost In Translation og hún var einnig til­nefnd fyrir leik­stjórn sömu myndar.

Sofia Coppola
Það má með sanni segja að leik­stjórn sé Sofiu Coppola í blóð borin en hún er dóttir leik­stjór­ans fræga Francis Ford Coppola sem á meðal ann­ars heið­ur­inn að mynd­unum um Guð­föð­ur­inn. Hún vann Ósk­arsverð­laun árið 2004 fyrir hand­ritið að Lost In Translation og hún var einnig til­nefnd fyrir leik­stjórn sömu myndar. Sofia fékk einnig þann mikla heiður að fá Gullpálmann fyrir leik­stjórn á kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes en hún er aðeins önnur konan til að hljóta þau verð­laun og fyrsta banda­ríska konan.

„Með­al­mennska og miðju­moð er það versta sem ég get hugsað mér. Það er miklu áhuga­verð­ara að fá sterk og afger­andi við­brögð og að það sé blanda af fólki sem ýmist fílar mynd­ina eða fílar hana ekki. Þannig verða til sam­ræður.“

________________________________________________________________

Jane Campion sló í gegn með mynd­inni The Piano sem fjall­aði um mál­lausan píanó­leik­ara.

Jane Campion
Fyrir um það bil tveimur ára­tugum var Jane Campion aðal­konan í leik­stjóra­brans­anum. Hún byrj­aði að reyna fyrir sér í heima­landi sínu, Ástralíu, og sló svo í gegn með mynd­inni The Piano sem fjall­aði um mál­lausan píanó­leik­ara. Hún var aðeins til­nefnd til Ósk­arsverð­launa en vann hins vegar Gullpálmann fyrst kvenna fyrir þá mynd.

„Ég myndi svo gjarnan vilja sjá fleiri kven­leik­stjóra því þær standa fyrir helm­ing mann­kyns sem fæddi allan heim­inn. Ef þær eru ekki að skrifa og leik­stýra þá munum við hin ekki fá að heyra alla sög­una.“

________________________________________________________________

Catherine Hardwicke vakti mikla athygli fyrir hina hráu og átak­an­legu þroska­sögu sem sögð er í Thirteen.

Catherine Hardwicke
Þó að hún sé eflaust þekkt­ust fyrir að hafa leik­stýrt fyrstu, og bestu, Twilight-mynd­inni þá er Catherine Hardwicke mest metin fyrir leik­stjórn­ar­lega frumraun sína, Thirteen, sem er hrá og átak­an­leg þroska­saga. Hún hefur mik­inn áhuga á að segja sögur kvenna og ein af nýrri myndum hennar er fal­lega vin­áttu­mynd­ina Miss You Already.

„Ég hef setið fundi þar sem voru bók­staf­lega tólf reiðir karlar í fund­ar­her­bergi og ég. Þegar hver ein­asti þeirra skaut niður hug­mynd mína stóð ég samt bara fastar á mínu.“

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu