Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Flóknar fjölskyldur

Það er ekk­ert sjálf­sagt að fjöl­skyldum lyndi vel saman eins og sjá má í The Glass Castle og fleiri kvik­myndum.

Flóknar fjölskyldur

Erfið ævi
Í The Glass Castle (sjá mynd hér að ofan) kynn­umst við Jeann­ette Walls sem fædd­ist 1960 og ólst upp ásamt þremur systk­inum í mik­illi fátækt, óreiðu og afskipta­leysi. Faðir þeirra var drykk­felldur draum­óra­maður sem hélst hvergi í vinnu og móð­irin sagð­ist vera lista­kona þótt hún skap­aði aldrei neitt af viti og virt­ist oft hvorki vita í þennan heim né annan. Fjöl­skyldan festi hvergi rætur, flutti eða flúði stöðugt frá einum stað til ann­ars þannig að hvorki Jeann­ette né systk­ini hennar gengu í skóla á upp­vaxt­ar­ár­unum. Þetta upp­eldi gerði það þó að verkum að þau lærðu fljótt að standa á eigin fótum og flúðu for­eldra sína um leið og þau gátu. Það er þangað til for­eldr­arnir daga uppi sem hús­töku­fólk í New York. Áhuga­verð mynd með hinni hæfi­leik­a­ríku Brie Larson en hand­ritið er byggt á sjálfævi­sögu Jeanette Walls sjálfrar.

_______________________________________________________________

Þessi skraut­legi hópur leggur af stað í ferða­lag á heið­gulri rútu til að koma yngsta barn­inu í feg­urð­ar­sam­keppni.

Sól­skins­ferðin
Allir fjöl­skyldu­með­lim­irnir í Little Miss Sunshine eiga það sam­eig­in­legt að taka sjálfa sig aðeins of alvar­lega. Fjöl­skyldan sam­anstendur af keðjureykj­andi móður, nær gjald­þrota fjöl­skyldu­föður, sam­kyn­hneigðum frænda sem er að jafna sig eftir sjálfs­morð­stil­raun, þung­lyndum tán­ingi og afa sem reyn­ist vera heróín­sjúk­lingur. Þessi skraut­legi hópur leggur af stað í ferða­lag á heið­gulri rútu til að koma yngsta barn­inu í feg­urð­ar­sam­keppni og að sjálf­sögðu fer allt í bál og brand á leið­inni.

_______________________________________________________________

Fjöl­skyldan í The Royal Tenen­baums er skemmti­lega öðru­vísi.

Furðu­fuglar
Persónur í kvik­myndum Wes And­er­sons eiga alltaf í dálítið furðu­legum sam­skiptum og það á sann­ar­lega við um fjöl­skyld­una í The Royal Tenen­baums. Fjöl­skyldu­fað­ir­inn, Royal, hefur hvorki reynst góður faðir né góður eig­in­maður. Þegar hann er loks­ins búinn að glopra öllu frá sér reynir hann að kom­ast aftur í mjúk­inn hjá fjöl­skyldu sinni, fyrrum eig­in­konu og þremur börnum. Í stað þess að biðj­ast afsök­unnar eins og maður þyk­ist hann hins vegar vera með ban­vænan sjúk­dóm og höfðar til sam­visku þeirra. Þetta verður óvænt til þess að draga saman alla fjöl­skyld­una – en alls ekki hrak­falla­laust.

_______________________________________________________________

The Squid and the Whale fjallar um áhrif skiln­aðar á fjöl­skyldu.

Skiln­aður og brestir
Myndin The Squid and the Whale fjallar um áhrif skiln­aðar á fjöl­skyldu. Bernard Berkman er hroka­fullur rit­höf­undur sem var eitt sinn mik­ils met­inn en fer­ill hans hefur smám saman orðið að engu. Hann starfar sem háskóla­kenn­ari og verður afar ósáttur þegar ótrú eig­in­kona hans, Joan, fær rit­verk sín útgefin og mjög góðar við­tökur. Þau ákveða þau að skilja og til­kynna það tveimur sonum sínum, Walt sem er sextán ára og Frank sem er tólf. Drengirnir skipt­ast á að dvelja hjá for­eldrum sínum og fljót­lega fara þeir að skipa sér í lið með hvoru þeirra fyrir sig. Þessi tog­streita hefur gríð­ar­leg áhrif á strák­ana en for­eldr­arnir virð­ast bara hugsa um sjálfa sig.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu