Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Í opnu sambandi

Í borg­inni St. Pet­ers­burg á Flórída er safn sem er til­einkað einum virtasta og umdeildasta mál­ara heims.

Í opnu sambandi
Dalí nam mynd­list í Madríd og varð á náms­ár­unum þegar þekktur fyrir að vera sér­virt­ingur auk þess sem myndir hans vöktu strax athygli.

Það er stærsta safn meist­ar­ans utan Spánar og hýsir að mestu einka­safn vina­hjóna hans, Reynolds og Eleanor Morse, auk ljós­mynda úr lífi Dalís og Gölu, eig­in­konu hans.

Stuttu áður en Reynolds og Eleanor Morse giftu sig árið 1942 fóru þau á sýn­ingu á verkum Dalís í Cleveland, Ohio. Þau féllu fyrir lista­mann­inum og keyptu sitt fyrsta verk eftir hann ári seinna. Þetta varð upp­hafið á söfnun þeirra á upp­runa­legum verkum Dalís og að ára­langri vin­áttu milli þess­ara hjóna. Verkin höfðu þau á heim­ili síni í Cleveland til árs­ins 1971 en þá opn­uðu þau safn við hlið­ina á skrif­stofu­hús­næði sínu í Beachwood, Ohio. Þeim varð hins vegar um megn að taka á móti þeim fjölda gesta sem sóttu safnið og ákváðu að flytja safnið á ný í lok átt­unda ára­tug­ar­ins. Eftir mikla leit sem vakti þjóð­ar­at­hygli völdu Morse-hjónin safn­inu stað í vöru­geymslu við höfn­ina St. Pet­ers­burg sem opn­aði árið 1982.

Árið 2008 var safn­inu svo val­inn nýr staður og glæsi­leg bygg­ing sem arki­tekt­inn Yann Weymouth hann­aði var tekin í notkun árið 2011. Bygg­ingin er það sterk­byggð að hún á að standa af sér felli­byl af stærð­argráðunni fimm.

The Hallucinogenic Toreador sem Dalí mál­aði 1968-70.

Á safn­inu eru meira en 2000 lista­verk – olíu­verk, vatns­lita­myndir, teikn­ingar, skúlp­t­úrar og fleira. Af þeim átján meist­ara­verkum sem Dalí gerði eru átta stað­sett í þessu safni. Flest af þekkt­ustu verkum Dalís eru í súr­r­eal­ískum stíl og því kemur mörgum gestum safns­ins á óvart hve gríð­ar­lega fjöl­breytt verk hans eru.
Fyrstu verk hans voru lands­lags-, and­lits- og kyrra­lífs­myndir á meðan verk sem hann gerði síðar á ævinni voru meðal ann­ars trú­ar­legs eðlis og þau sem sýna tvær myndir í einni. Síðan komu sjón­hverf­ingar, sterk form og þrí­vídd inn í verk hans. Á safn­inu eru myndir sem gefa góða inn­sýn í öll þessi tíma­bil.

Meðal verka sem þið ættuð alls ekki að láta fram hjá ykkur fara eru Slave Market with the Disapp­e­ar­ing Bust of Voltaire og Old Age, Adolescence, and Infancy (The Three Ages), súr­r­eal­ískar myndir sem blekkja augað.
Hægt er að verja klukku­stundum fyrir framan stærstu meist­ara­verkin eins og The Hallucinogenic Toreador sem Dalí mál­aði 1968-70, The Discovery of America by Christopher Columbus frá árinu 1959 og The Ecumenical Council sem hann mál­aði árið 1960. Einnig er vert að nefna verkið Gala Contemplating the Mediterra­nean Sea which at Twenty Meters Becomes the Portrait of Abraham Lincoln frá árinu 1976 sem er gott dæmi um mynd sem hefur tvær í einni.

Hið glæsi­lega safn er að finna í borg­inni St. Pet­ers­burg á Flórída. Mynd / www.commons.wikimedia.org

Gala eig­in­kona Dalís er við­fangs­efni í mörgum mynda hans en hún fylgdi honum alla tíð og sá til þess að hann gæti alger­lega ein­beitt sér að mynd­list­inni. Þau bjuggu ýmist í Banda­ríkj­unum eða á Spáni og litu á Ameríku sem sitt annað heim­ili. Þessa síð­ast­nefndu mynd mál­aði Dalí á hót­el­her­bergi í St. Régis-hót­el­inu í New York. Myndin er óður til lands­ins sem gaf honum skjól á meðan borg­ara- og heim­styrj­aldir geysuðu í Evrópu.

Þess má geta að sam­band þeirra hjóna var eng­inn dans á rósum. Þau voru í opnu sam­bandi og það vakti oft upp afbrýði­semi og leiddi til ill­deilna.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu