Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ást er ást

Myndir sem sýna les­bísk ást­ar­sam­bönd á heið­ar­legan og fal­legan hátt eru fágætar en hafa allar vakið tölu­verða athygli.

Ást er ást

Kvik­mynda­iðn­að­ur­inn hefur oft verið gagn­rýndur fyrir það að sýna aðeins gagn­kyn­hneigðar ást­ar­sögur og þegar fjallað er um sam­kyn­hneigð sam­bönd er það yfir­leitt á mjög ster­íótýpískan, jafn­vel nei­kvæðan, hátt. Hér eru nokkrar und­an­tekn­ingar sem sýna les­bísk ást­ar­sam­bönd á heið­ar­legan og fal­legan hátt, enda hafa þær allar vakið tölu­verða athygli.

Eitthvað vant­aði
La Vie d’Adèle, eða Blue is the Warmest Color eins og hún kall­að­ist á ensku (sjá mynd hér að ofan), fjallar um ósköp venju­lega fimmtán ára stúlku, Adele, sem hefur áhuga á öllu því sem ung­lings­stúlkur hafa áhuga á; vinum, skóla, tón­list og strákum. Þegar hún byrjar með einum vin­sælasta stráknum í skól­anum áttar hún sig á að ekki er allt eins og það á að vera. Samkvæmt bekkj­ar­fé­lögum hennar er hann hinn full­komni strákur en henni líður sem það vanti eitt­hvað. Þetta veldur rugl­ingi hjá henni og hún fer að velta fyrir sér hvað geti verið að. En þegar hún hittir fyrir til­viljun hina blá­hærðu Emmu finnur hún það sem hingað til hefur vantað. Hrá og hrein­skilin mynd sem vann Gullpálmann í Cannes árið 2013.

Í The Kids are Alright er sagt frá par­inu Jules og Nic sem hafa verið saman í næstum tutt­ugu ár og eiga tvo ung­linga.

Fram­sækin fjöl­skylda
Í mynd­inni The Kids are Alright er sagt frá les­bíska par­inu Jules og Nic sem hafa verið saman í næstum tutt­ugu ár og eiga tvo ung­linga, Joni og Laser, sem þær eign­uð­ust með hjálp tækni­sæð­ingar. Þær hafa alltaf verið hrein­skilnar við börnin sín og sagt þeim hvernig þau komu til. Þær bjugg­ust þó aldrei við að þau myndu vilja kynn­ast föður sínum en dag einn ákveða þau að hafa uppi á sæð­is­gjaf­anum, Paul,  sem kemur þeim skemmti­lega á óvart. Þau stofna til sam­bands við hann og bjóða honum meðal ann­ars í heim­sókn, sem kemur mæðrum þeirra í dálítið upp­nám.

________________________________________________________________

My Summer of Love fjallar um afdrifa­ríkt sumar í lífi tveggja ungra stúlkna, Tamsin og Monu.

Ólíkar en líkar
Eins og tit­ill­inn gefur til kynna þá fjallar My Summer of Love um afdrifa­ríkt sumar í lífi tveggja ungra stúlkna, Tamsin og Monu. Þrátt fyrir að vera úr ólíkum stéttum sam­fé­lags­ins þá lað­ast þær strax hvor að annarri. Þær eiga það sam­eig­in­legt að fjöl­skyldur þeirra eru fremur brotnar, en bróðir Monu er fyrrum afbrota­maður sem sner­ist til kristni í fang­elsi og faðir Tamsin heldur fram hjá móður hennar. Þær byrja að njósna um fjöl­skyldu­með­limi og kom­ast að ýmsum leynd­ar­málum en þau leynd­ar­mál binda þær fastar saman. Áhuga­verð og fal­leg mynd sem ger­ist í sveitum Bret­lands en þarna má sjá Emily Blunt unga taka sín fyrstu skref í kvik­mynda­leik.

________________________________________________________________

Á milli Carol og Theresu kviknar dálít­ill neisti.

Af litlum neista
Theresa er ung kona sem fær tíma­bundna vinnu um jólin 1952 hjá stór­verslun á Man­hattan en hún er áhuga­ljós­mynd­ari sem dreymir um að kom­ast að sem atvinnu­ljós­mynd­ari hjá ein­hverju traustu tíma­riti eða dag­blaði. Dag einn kemur í versl­un­ina hástétt­ar­konan Carol og á milli þeirra kviknar dálít­ill neisti. Eitt leiðir síðan af öðru og smám saman fer sam­band þeirra að þró­ast. Það á þó eftir að draga dilk á eftir sér því Carol á í deilu við eig­in­mann sinn en hann hefur hótað að nota sam­kyn­hneigð hennar sem rök­stuðn­ing fyrir því að hann eigi að fá fullt for­ræði yfir börnum þeirra. Carol er glæsi­leg mynd sem lýsir við­horfum til sam­kyn­hneigðar á þessum tíma. Báðar leikkon­urnar, Cate Blanchett og Rooney Mara, eiga stór­leik í mynd­inni.

________________________________________________________________

Kvöld eitt liggja leiðir Elinar og Agnesar saman og upp frá því þró­ast óvænt sam­band.

Ung­lings­árin erfið
Ung­lings­stúlk­urnar Elin og Agnes eru í sama skóla en eiga ann­ars litla sem enga sam­leið. Elín er hress og vin­sæl á meðan Agnes er vinafá og nið­ur­dregin. Þær eru samt báðar komnar með upp í kok á lífi sínu, en Elínu dreymir um að flýja smá­bæ­inn Åmål en Agnesi dreymir bara um Elínu. Kvöld eitt liggja leiðir þeirra saman og upp frá því þró­ast óvænt sam­band sem gæti reynst lausnin á vanda þeirra beggja. Spurn­ingin er þó hvort þær séu nógu kjark­aðar til að standa uppi í hár­inu á vinum sínum og sam­nem­endum. Fucking Åmål var langt á undan sam­tíð sinni, eins og svo margar skand­in­av­ískar myndir eru, og fjall­aði opin­skátt um sam­kyn­hneigð sam­hliða því að sýna hversu erfitt það er að vera ung­lingur.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu