Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Áhrifamikil tískuíkon

Nokkur af áhrifa­mestu tískuí­konum innan brans­ans í dag.

Áhrifamikil tískuíkon

Tískuí­kon dags­ins í dag eru enda­laus upp­spretta inn­blást­urs þegar kemur að því hvernig við klæðum okkur. Hér eru nokkrar af þeim áhrifa­meiri innan brans­ans sem eru í upp­á­haldi hjá okkur.

Olivia Palermo
Tísku­drottn­ing­una Oliviu Palermo þekkja flestir sem hafa áhuga á tísk­unni. Hún skaust upp á stjörnu­him­in­inn með þátt­töku sinni í banda­rísku raun­veru­leika­þátt­unum The Hills en hefur síðan komið víða við. Hún var meðal ann­ars lær­lingur í kynn­ing­ar­málum hjá hönn­uð­inum Diane von Fursten­berg og vann í fylgi­hluta­deild hjá tísku­tíma­rit­inu Elle en Olivia er þekkt fyrir að vera ein­stak­lega smekk­leg þegar kemur að því að nota fylgi­hluti á ferskan hátt. Olivia hefur verið áber­andi í félags­lífi þeirra ríku og frægu og er mynduð hvert sem hún fer, enda eitt stærsta tískuí­kon sam­tím­ans. Það er alltaf hægt að leita til Oliviu að inn­blæstri, oli­vi­apal­ermo.com.

______________________________________________________________

Hanneli Must­aparta
Hin norska Hanneli Must­aparta er fyrr­ver­andi fyr­ir­sæta sem fljót­lega fann hjá sér mik­inn áhuga á því að stílisera. Frá því hún lagði fyr­ir­sætu­skóna á hill­una að mestu árið 2008 hefur hún unnið fyrir hin ýmsu tísku­tíma­rit og stíliserað fyrir stór fyr­ir­tæki. Áhugi hennar á útliti og stílis­er­ingu þró­að­ist svo út í það að taka myndir en síð­ustu árin hafa götu­tísku­myndir eftir hana birst í Vogue og á Vogue.com. Hanneli er með ein­stakt auga fyrir smá­at­riðum og ekki skemmir útlit hennar fyrir, að við tölum ekki um hárið, okkur dreymir um að hafa hár eins Hanneli!

______________________________________________________________

Hedvig Opshaug
Norski tísku­blogg­ar­inn Hedvig Opshaug er konan á bak við the-northern­light.com. Nafnið á blogg­inu teng­ist heima­slóðum hennar í Norður-Noregi þar sem norð­ur­ljósin eru sýni­leg allan vet­ur­inn. Hún á stuttan fyr­ir­sætu­feril að baki en lærði stærð­fræði og vann í banka í Stokk­hólmi þegar hún ákvað að breyta til og flytja til London. Hún segir að fer­ill sinn sem tísku­blogg­ari hafi fyrir til­viljun undið upp á sig en var ekki eitt­hvað sem hún stefndi bein­línis að. Hedvig er alltaf með putt­ann á tískupúls­inum og gaman að fylgj­ast með þess­ari glæsi­legu konu.

______________________________________________________________

Miroslava Duma
Miroslava Duma vakti fyrst heims­at­hygli þegar myndir af henni birt­ust á þekkt­ustu tísku­blogg­unum eins og The Sar­tor­i­alist. Hún hefur unnið fyrir mörg af stærstu tíma­ritum heims en hefur síð­ustu fimm árin unnið sjálf­stætt fyrir Buro247.com en hún er með­stofn­andi þeirrar vef­síðu sem fjallar meðal ann­ars um tísku og listir og sendir út fréttir allan sól­ar­hring­inn. Það er ekki að undra að Miroslava skuli eiga marga aðdá­endur enda alltaf óað­finn­an­leg og klæðn­aður hennar áhuga­verður.

______________________________________________________________

Pernille Teisbaek
Pernille Teisbaek hefur unnið bæði fyrir framan og aftan mynda­vél­arnar. Hún byrj­aði feril sinn sem tísku­stjóri hjá danska tíma­rit­inu Woman en hún hefur einnig unnið fyrir ALT for Damerne og Eurowoman. Í dag vinnur hún í fullu starfi sem stílisti, blogg­ari og tísku­sér­fræð­ingur hjá stærstu sjón­varps­stöðvum Dan­merkur. Ef þú ert í leit að  skand­in­av­ískum stíl­inn­blæstri skaltu kíkja á Pernille, pern­il­let­eis­baek.com.

______________________________________________________________

Chiara Ferragni
Hin ítalska Chiara Ferragni er konan á bak við eitt allra stærsta tísku­blogg heims, The Blonde Salad. Hún hefur unnið til verð­launa fyrir besta tísku­bloggið mörg ár í röð og birst á lista Forbes yfri rík­asta fólk heims. Hún hefur átt í sam­starfi við marga af stærstu tísku­hönn­uðum sam­tím­ans og er tals­kona fyrir Pantene-hár­vörur. Chiara birt­ist á for­síðu spænska Vogue í apríl í fyrra og er þar með fyrsti tísku­blogg­ar­inn til að verma for­síðu tísku­bibl­í­unnar.

______________________________________________________________

Leandra Medine
Húmorinn skín ávallt í gegn hjá Leöndu Medine, sem heldur úti vef­síð­unni The Man Repeller. Hún er einn þekkt­asti tísku­blogg­ari heims og áhrifa­mikil með meiru innan tísku­heims­ins. Leandra er þekkt fyrir að blanda saman ólík­leg­ustu flíkum og fylgi­hlutum og er ávallt upp­spretta tísku­inn­blást­urs.

______________________________________________________________

Alexa Chung
Hin kín­verk-breska Alexa Chung er eitt áhrifa­mesta tískuí­kon sam­tím­ans og hefur alið af sér margar hermi­krákur í gegnum tíð­ina. Hún byrj­aði feril sinn sem fyr­ir­sæta og fór þaðan yfir í sjón­varp. Síðustu árin hefur hún sett nafn sitt við ýmsan varn­ing eins og fatnað og snyrti­vörur og meðal ann­ars skrifað fyrir breska Vogue. Þá hefur hún einnig veitt mörgum tísku­hönn­uðum inn­blástur því stíll­inn hennar er svo ein­stakur. Alexu má oftar en ekki finna á fremsta bekk á tísku­sýn­ing­unum en hún er ein mest ljós­mynd­aða kona Bret­lands.

Texti / Helga Krist­jáns

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu