Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hvetur fólk til að tileinka sér mínímalískan lífsstíl

Japanski til­tekt­ar­gúrú­inn Marie Kondo hvetur fólk til að eiga aðeins hluti sem vekja hjá því gleði.

Hvetur fólk til að tileinka sér mínímalískan lífsstíl
Marie Kondo hefur helgað líf sitt til­tekt og mínimal­ískum lífs­stíl. Hún rekur fyr­ir­tæki í Tókíó þar sem hún kemur inn á heim­ili fólks, kennir því að fara í gegnum eigur sínar og losa sig við allan óþarfa.

Hin jap­anska Marie Kondo hefur helgað líf sitt til­tekt og mínimal­ískum lífs­stíl. Hún rekur fyr­ir­tæki í Tókíó þar sem hún kemur inn á heim­ili fólks, kennir því að fara í gegnum eigur sínar og losa sig við allan óþarfa. Þessi þjón­usta hennar er svo vin­sæl að það er þriggja mán­aða bið­tími. Bók hennar The Life Changing Magic of Tidying Up kom út árið 2014 en nýtur enn hylli og blogg­arar um allan heim hafa til­einkað sér KonMari-aðferð­ina. Þessi aðferð hennar snýst um að eiga aðeins hluti sem vekja hjá þér gleði og það á jafnt við um föt, hluti, bækur og margt fleira. Hún ráð­leggur fólki að meta hvern hlut út frá því hvort hann veiti þér gleði og ef ekki þá skaltu losa þig við hann.

Fleiri góð ráð úr smiðju Marie Kondo

Tiltekt er sam­tal við sjálfan sig. Marie lítur á til­tekt sem nokk­urs konar hug­leiðslu þar sem hún þarf að hlusta á eigið inn­sæi. Hún hvetur fólk til að finna frið­sæla stund og alls ekki hlusta á tón­list, það sé bara til að flækja hlut­ina.

Hver hlutur á að eiga sinn ákveðna stað. Marie er þeirrar skoð­unar að sem minnst dót og drasl eigi að vera á gólfum eða uppi á borðum. Í hverju rými á að vera að minnsta kosti einn góður skápur eða kommóða þar sem hægt er að geyma hluti sem ekki er prýði af. Inni í skáp­unum er svo mik­il­vægt að hafa minni geymslu­ein­ingar eins og kassa sem eru vel merktir og hægt er að stafla.

Taktu til eftir flokkum, ekki her­bergjum. Marie vill meina að þetta sé gryfja sem margir falli í. Við eigum til að gleyma því að við geymum oft sömu eða svip­aða hluti á mörgum stöðum í íbúð­inni og erum því að end­ur­taka sömu til­tekt­ina á nokkrum stöðum. Þetta skapar til­tekt­ar­víta­hring sem er stundum erfitt að rjúfa. Þess vegna mælir hún með því að ákveða hvaða flokk þú ætlar að taka til í í dag í stað­inn fyrir stað­setn­ingu, það er, taka til föt í stað þess að taka til inni í svefn­her­bergi.

Ekki stafla hlutum. Það segir sig sjálft að hlutir sem eru neðst í stafla eru not­aðir sjaldnar, sama hversu hrifin þú ert af þeim hlut. Þessi regla á jafnt við um föt, bækur og snyrti­vörur. Marie mælir til dæmis með því að brjóta föt þannig að þau geti staðið upp á rönd, raða þeim þannig í kassa og ofan skúffu.

Sjaldan eða stundum þýðir í raun aldrei. Marie hlustar ekki á neinar afsak­anir í þessum efnum. Ef þú klæð­ist ein­hverri flík aðeins einu sinni á ári þá er hún bara að taka óþarfa pláss í skápnum þínum rest­ina af árinu.

Hentu öllum pappír. Það er algengur mis­skiln­ingur að það sé minna um papp­íra inni á heim­ili en á skrif­stofu fyr­ir­tækis. Við sönkum að okkur alls kyns óþarfa pappír; kvitt­unum, reikn­ingum, glósum, úrklippum og þar fram eftir götum. Marie segir að ein­faldasta leiðin sé að skipta öllum papp­írum niður í geyma og henda en þeir papp­írar sem þú geymir eru aðeins algjör nauð­syn. Helst myndi hún þó vilja henda öllum papp­írum, því til eru for­rit eins og Evernote þar sem þú getur skannað inn papp­íra og geymt raf­ræna útgáfu af þeim.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu