Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Furðu mikið að gera og sjá í Óðinsvéum

Sveinn Sig­urðs­son mælir með áhuga­verðum stöðum í Óðins­véum.

Furðu mikið að gera og sjá í Óðinsvéum

Sveinn Sig­urðs­son bjó í miðbæ Óðinsvéa árin 2013-2015 þar sem hann var í námi í Uni­versity of Southern Denmark og útskrif­að­ist með meistara­gráðu í vöru­merkja­stjórnun og mark­aðs­sam­skiptum. Hann er nú í atvinnu­leit og bloggar um bjór hjá nobsbrewing.com.

„Þrátt fyrir að Óðinsvé sé þriðja stærsta borg Dan­merkur með rúm­lega 170 þús­und íbúa þá minnir borgin meira á smábæ. Íbúarnir eru virki­lega vin­gjarn­legir og taka sér­stak­lega vel á móti Íslend­ingum,“ segir Sveinn sem bjó þar í tvö ár ásamt kær­ustu sinni, Þóreyju Richardt Úlf­ars­dóttur, og þar fædd­ist sonur þeirra, Almar Darri. „Í borg­inni eru margir við­burðir og hátíðir allan árs­ins hring, til dæmis H.C. Andersen Festival, Harry Potter-hátíð, Danski bjór­dag­ur­inn og tón­list­ar­há­tíðin Tind­er­box.“

Munke Mose og Eventyrhave
Í mið­borg Óðinsvéa eru tveir almenn­ings­garðar sem eru tengdir saman með göngu­stíg og þar þótti mér alltaf gaman að koma. Í Munke Mose er gott að setj­ast niður, fylgj­ast með mann­líf­inu og fugla­líf­inu og jafn­vel fara í sigl­ingu upp eftir Óðins­véánni. Í Eventyrhave sem er í göngu­fjar­lægð frá Munke Mose er fal­legur blóma­garður og einnig mörg lista­verk tengd ævin­týrum H.C. Andersen.

„Þrátt fyrir að Óðinsvé sé þriðja stærsta borg Dan­merkur með rúm­lega 170 þús­und íbúa þá minnir borgin meira á smábæ,“ segir Sveinn

Gamli bær­inn
Mér finnst gamli bær­inn sér­stak­lega fal­legur og mjög gaman að rölta þar í gegn. Þar er hægt að kíkja í skran­búðir, sjá fæð­ing­ar­stað H.C. Andersen og H.C. Andersen-safnið en einnig eru þar mörg sögu­fræg hús og staðir sem gaman er að líta á.

Egeskov-kastal­inn
Egeskov-kastal­inn er stað­settur í hálf­tíma akst­urs­fjar­lægð frá Óðins­véum og hefur eitt­hvað við hæfi allra. Þar er mjög stór blóma­garður sem fékk verð­launin Best European Historic Garden árið 2012. Hægt er að skoða sjálfan kast­al­ann og þar inni eru ýmsir sögu­legir munir. Á svæð­inu við kast­al­ann er einnig stórt safn með ýmsum far­ar­tækjum, mik­ill fjöldi af mót­or­hjólum og bílum sem maður hefur ekki oft tæki­færi til að sjá.

Mark­að­ur­inn á höfn­inni
Yfir sum­ar­tím­ann er gaman að fara niður á höfn á sunnu­dögum og skoða markað þar sem fólk kemur og selur not­aða hluti. Þar mynd­ast oft skemmti­leg stemn­ing og finna má ýmis­legt for­vitni­legt og skemmti­legt. Einnig er hægt að rölta um hafn­ar­svæðið og skoða bát­ana.

Dýra­garð­ur­inn
Dýra­garð­ur­inn í Óðins­véum er ein­stak­lega skemmti­legur og hefur fengið verð­laun fyrir að vera besti dýra­garður í Evrópu. Þar er hægt að sjá hin ýmsu dýr og smá­fólkið getur fengið að klappa dýrum í hús­dýra­garð­inum á svæð­inu. Ég mæli sér­stak­lega með því að taka með nesti og verja heilum degi í að skoða dýrin.

Christian Firtal
Vegna þess að ég er mik­ill bjórá­huga­maður þá get ég ekki sleppt því að minn­ast á Christian Firtal. Þessi litli staður er stað­settur í göngu­götu niðri í bæ og þar er boðið upp á marga af bestu hand­verks­bjórum sem fram­leiddir eru á Norð­ur­lönd­unum. Þar er hægt að fá 20 bjór­teg­undir á krana og fjöld­ann allan af bjór á flöskum en einnig eru margar gerðir af viskíi og kon­íaki.

Umsjón / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Mynd / Ingi­björg Hilm­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu