Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leyndardómsfullir staðir sem eru flestum lokaðir

Víða um heim eru staðir með tak­markað aðgengi og aðrir sem eru harð­lok­aðir almenn­ingi.

Leyndardómsfullir staðir sem eru flestum lokaðir

Þegar við ferð­umst viljum við reyna að sjá sem mest og fá eins mikið út úr ferða­lag­inu og hægt er. Sums staðar rek­umst við þó á veggi því margir staðir í heim­inum hafa tak­markað aðgengi og aðrir eru harð­lok­aðir almenn­ingi. Hér má lesa um nokkur þeirra og Ísland á að sjálf­sögðu sinn full­trúa.

Lascaux-hella­mynd­irnar.

Bohemian Grove
Bohemian-klúbb­ur­inn í Monte Rio, Kali­forníu sam­anstendur af rík­asta og valda­mesta fólki heims. Á stórri og skógi­vax­inni land­ar­eign­inni getur það skemmt sér án þess að almúg­inn flæk­ist fyrir. Það kostar 25 þús­und doll­ara, rúm­lega 3,2 milljón krónur, að ganga í klúbb­inn og árgjaldið er 5 þús­und doll­arar, eða um 640 þús­und krónur. Ekki fær þó hver sem er að verða með­limur og þeir sem reyna að lauma sér óboðnir inn á svæðið verða umsvifa­laust hand­teknir. Athygl­is­verður klúbbur sem er sagður búa yfir mörgum leynd­ar­málum.

Lascaux-hella­mynd­irnar
Hinn átján ára Marcel Ravidat, ásamt þremur vinum sínum, fann hell­inn með þessum for­sögu­legu hella­myndum þann 12. sept­em­ber 1940. Átta árum síðar voru hell­arnir opn­aðir almenn­ingi og allt að 1200 manns heim­sótti þá dag­lega. Um 2000 myndir/fígúrur er að finna á veggj­unum, bæði af mönnum og dýrum og einnig abstrakt­tákn. Mynd­irnar eru taldar vera rúm­lega 17 milljón ára gamlar. Strax árið 1955 var komið í ljós að þessi umgangur fór illa með minjarnar en það var ekki fyrr en árið 1963 að var hell­unum lokað almenn­ingi.

Örkin hans Nóa á Sval­barða
Á norsku eyj­unni Sval­barða er að finna hvelf­ingu sem byggð er langt inn í fjall. Hún geymir miklar fræ­birgðir í örygg­is­skyni ef eitt­hvað alvar­legt ger­ist í heim­inum og hung­ursneyð blasir við. Aðeins starfs­menn og stöku vís­inda­menn fá aðgang að hvelf­ing­unni en of áhættu­samt þykir að hleypa öðrum þar inn. Um 865 þús­und fræ­teg­undir alls staðar að í heim­inum er að finna þar. Meira að segja Norður-Kórea á þarna inn­legg. Fræ­hvelf­ingin var tekin í notkun árið 2008 og þegar hefur ein úttekt farið fram, nú nýlega þegar fræ­geymsla Sýr­lend­inga í Aleppo var eyðilögð í sprengju­árás.

Svæði 51
Banda­ríkja­menn hafa loks við­ur­kennt til­vist þessa staðar í Nevada eftir ára­langar klikk­aðar sam­sær­is­kenn­ingar um hann. Það þýðir þó ekki að almenn­ingur sé vel­kom­inn þangað.

Menwith Hill 
Vissu­lega getur maður ekki spíg­sporað inn í hvaða her­stöð sem er. Almenn­ingur er þó sér­lega óvel­kom­inn á her­stöð breska flug­hers­ins í Norður-Yorks­hire í Bret­landi þar sem hin banda­ríska NSA-leyni­þjón­usta hefur aðstöðu en leyndin er aðals­merki hennar. Hún er sögð mik­il­væg­asta her­stöð Banda­ríkj­anna á erlendri grund. Stærsta hler­un­ar­stöð heims?

Surtsey
Eyjan varð til í eld­gosi sem hófst árið 1963 og hefur verið frið­lýst frá 1965. Mark­miðið var að tryggja að þróun eyj­ar­innar verði eftir lög­málum nátt­úr­unnar, að land­nám plantna og dýra, fram­vinda líf­ríkis og mótun jarð­myndana verði með sem eðli­leg­ustum hætti og truflun af völdum manna sem minnst. Óheimilt er að fara í land eða kafa við eyna nema til rann­sókna og verk­efna þeim tengdum og þá aðeins með skrif­legu leyfi Umhverf­is­stofn­unar. Sigl­ingar í kringum Surtsey eru þó heim­ilar. Þess má geta að Vest­manna­ey­ingar vildu ólmir að eyjan fengi nafnið Vesturey en fengu ekki.

Hvítukarla­klúbb­ur­inn í London
Hann heitir White’s Gentleman’s Club, og þar drekkur og spilar bresk karl­kyn­sel­íta. Umsækj­endur þurfa sam­þykki 35 með­lima og árgjaldið er him­in­hátt.

Í þessu leynda safni Vatikans­ins eru geymd flest þau skjöl sem Páfa­stóll hefur sankað að sér.

Skjala­safn Vatikans­ins
Í þessu leynda safni eru geymd flest þau skjöl sem Páfa­stóll hefur sankað að sér. Hluti safns­ins var opn­aður árið 1922 og nokkru síðar sá sem teng­ist seinni heims­styrj­öld­inni. Mikil leynd hefur hvílt yfir stærstum hluta safns­ins og margar sam­sær­is­kenn­ingar hafa orðið til um hvað það hefur að geyma.

MF: Ilha da Queimada Grande
Brasil­ísk eyja sem er sund­ur­grafin af nöðrum og þarf ekki annað en að ganga nokkur skref til að eiga á hættu að missa lífið. Aðeins örfáir vís­inda­menn hafa leyfi til að heim­sækja þessa snáka­eyju.

Niihau
Þessi eyja er ein af Havaí-eyja­kla­s­anum. Ástæðan fyrir því að eng­inn má koma þangað er sú að hún er í einka­eign. Um 130 manns búa þar en aðeins þeir sem Robinson-fjöl­skyldan býður mega koma í heim­sókn.

Jiangsu-alþjóða­leyni­fræðslu­safnið
Jiangsu National Security Education Museum er stað­sett í Nanjing í Kína og er ein­göngu opið kín­verskum almenn­ingi. Öllum öðrum er úthýst vegna við­kvæmra njósn­a­upp­lýs­inga sem þar er að finna.

Heard-eyja
Aðeins 400 manns er leyft að heim­sækja þessa áströlsku eyju ár hvert. Bátur fer þangað á tveggja vikna fresti yfir úfinn sjó og veð­ur­farið er svo ömur­legt að frekar fáir eru hvort eð er spenntir fyrir að berja eyj­una augum.

Texti / Guðríður Har­alds­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu