Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mikilvægt að huga vel að húðinni á meðan maður ferðast

Ráð­legg­ingar um vörur sem gott er að hafa með­ferðis í hand­far­angri .

Mikilvægt að huga vel að húðinni á meðan maður ferðast

Það getur tekið sinn toll á húð­ina að ferð­ast erlendis því um borð í flug­vélum er afar þurrt loft. Þess vegna fer húðin að sýna merki raka­skorts. Það þýðir að þurr húð verður þurr­ari en feit húð verður enn feit­ari því fitu­kirtl­arnir fara á fullt við að vinna á móti rakatap­inu. Þess vegna er ekki síður mik­il­vægt að huga vel að húð­inni á meðan maður er um borð. Hér eru nokkrar ráð­legg­ingar um vörur sem gott er að hafa með­ferðis í hand­far­angri.

Alls ekki gleyma að drekka nóg af vatni.

Sótt­hreins­andi klútar: Það er nauð­syn­legt að byrja á því að sótt­hreinsa á sér hend­urnar áður en þú ferð að snerta á þér and­litið. Klútar hafa það fram yfir hand­spritt að þeir fjar­lægja líka megnið af óhrein­indum af hönd­unum. Fyrst þú ert byrjuð, hví ekki strjúka klút yfir borð, sæt­is­arma og belt­is­sylgju og tryggja þannig að þeir fletir sem þú snertir mest séu líka lausir við bakt­er­íur.

Hreinsi­klútar: Í lengra flugi, til dæmis til Norður-Ameríku, er lang­besta ráðið að þrífa strax allan farða af húð­inni þannig að þú getir notað alvöruraka­sprengjur til að vinna gegn þurra loft­inu um borð. Þægi­leg­ast er að nota þartil­gerða hreinsi­klúta því þeir telj­ast ekki til vökva í hand­far­angri og þú þarft ekki að kom­ast í vatn til að þrífa húð­ina. Hafðu í huga að þú þarft alltaf að nota fleiri en einn klút á and­litið.

Maski eða olía: Þegar þú ert búin að taka af þér farð­ann, eða gerð­ist svo djörf að mæta ómáluð, þá er næsta skref að gefa húð­inni eins mik­inn raka og mögu­legt er. Hér duga ekki venju­leg raka­krem heldur er betra að nota raka­serum, and­litsolíu eða ein­fald­lega maska. Upp á síðkastið hafa komið á markað svo­kall­aðir svefnma­skar sem er ekki nauð­syn­legt að þrífa af og eru í raun ofur­næt­ur­krem. Einnig grípa sumir til þess ráðs að setja á sig taumaska en þú verður þá að vera til­búin til þess að líta út eins og múmía á meðan. Hvað sem þú kýst að nota gildir það að bera oft og mikið á.

Raka­gef­andi sprey: Í styttra flugi er kannski ekki ástæða til að fjar­lægja af sér allan farða til að setja á sig olíu eða maska, þó að sumar geri það. Við verðum samt sem áður að passa að veita húð­inni nægan raka og þá geta raka­gef­andi and­litsvötn komið að góðum notum. Þau inni­halda flest raka­gef­andi efni svo sem aloe vera eða hyaluronic-sýru en sum þeirra inni­halda einnig plöntu­ol­íur. Hægt er að fá mörg þess­ara and­lits­vatna í sprey­formi sem má þá spreyja yfir allt and­litið, jafn­vel þótt það sé farðað, og við mælum með því að spreyja að minnsta kosti eina umferð á klukku­tíma fresti meðan þú ert um borð.

Vara­salvi: Vegna þess að í vörum okkar eru engir fitu­kirtlar stóla þær á utan­að­kom­andi raka, hvort sem það er úr vara­salva eða munn­vatni. Vara­sal­var eru mjög mis­mun­andi, sumir inni­halda vaselín og eru fyrst og fremst fyr­ir­byggj­andi gegn þurrki og henta því ágæt­lega í flug en aðrir inni­halda góðar nátt­úru­legar olíur sem mýkja húð­ina og veita raka. Báðar týpur henta vel í flug þannig að það er bara um að gera að velja þann sem þér þykir bestur.

Augn­dropar: Þurrt flug­véla­loftið hefur lík­lega mest áhrif á augu okkar og til að gera ástandið enn verra erum við oft að horfa á kvik­myndir eða lesa bækur á upp­lýstum skjám sem erta líka augun. Þau verða því oft þurr og rauð og okkur klæjar í þau. Þess vegna er mjög snið­ugt að ferð­ast með augn­dropa með sér til að róa augun og gefa þeim raka.

Vatns­flaska: Alls ekki gleyma að drekka nóg af vatni.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu